19.11.2009 | 20:38
Stórríki Evrópu að fæðast
Forsætisráðherra Belgíu, Herman Van Rompuy, hefur nú verið kjörinn eiginlegur forseti Evrópusambandsins og breska barónessan Catherine Ashton var útnefnd nýr yfirmaður utanríkismála, eða útanríkisráðherra. Ef rétt er skilið verður hún einnig yfirmaður sameinaðs herafla stórríkisins.
Hafi einhver haldið að ESB væri aðeins bandalag um frjálst flæði fólks og fjármagns milli aðildarlanda sambandsins, ætti hinn sami að spyrja sjálfan sig hvað efnahagsbandalag hafi að gera með forseta, utanríkisráðherra og herafla.
Eftir samþykkt Lissabonsáttmálans og þessa skipun í embætti forseta og utanríkisráðherra er fyrsta skrefið stigið til endanlegrar þróunar stórríkis Evrópu.
Hafa Íslendingar áhuga á að Ísland verði útnárahreppur í þessu fimmhundruð milljón manna ríki?
![]() |
Van Rompuy fyrsti forseti ESB |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
19.11.2009 | 16:22
Forsetinn mun ekki hafna Icesave
Sjálfstæðismenn í Fjárlaganefnd Alþingis telja einsýnt að forsetinn muni synja hinu nýja Icesavefrumvarpi staðfestingar, ef það verður samþykkt óbreytt á Alþingi. Þetta byggja þeir á þeim sýndarleik forsetans að samþykkja lögin um ríkisábyrgðina í sumar, með sérstakri bókun um mikilvægi fyrirvaranna, sem samþykktir voru við ríkisábyrgðina á skuldum Landsbankans.
Þetta rökstyðja þingmennirnir á þennan hátt: Með því frumvarpi sem hér er til umfjöllunar hafa þeir fyrirvarar Alþingis sem forsetinn taldi svo mikilvæga þegar hann staðfesti hin fyrri Icesave-lög, og voru forsenda staðfestingar hans, verið að engu gerðir."
Það er auðvitað algerlega rétt hjá þingmönnum Sjálfstæðisflokksins, að miðað við fyrri yfirlýsingar sínar ætti forsetinn að synja þessu nýja frumvarpi staðfestingar, vilji hann vera samkvæmur sjálfum sér.
Staðreyndin er hins vegar sú, að Ólafur Ragnar Grímsson hefur aldrei verið samkvæmur sjálfum sér, heldur stjórnast hann af hentistefnu í hverju máli og mun því finna sér nýjar afsakanir til þess að staðfesta þessi nýju og hertu þrælalög.
Ólafur Ragnar er guðfaðir þessarar ríkisstjórnar og mun því staðfesta hvaða vitleysislög sem frá henni koma, þar á meðal nýju skattabrjálæðislögin hennar, ásamt því að samþykkja þrælkunina í þágu Breta og Hollendinga. Hann mun styðja ríkisstjórnina í baráttu hennar við að dýpka og lengja kreppuna, með þeim ráðum, sem hann hefur tiltæk.
Vonir, sem bundnar eru við Ólaf Ragnar Grímsson, eru aldrei annað en falsvonir.
![]() |
Sjálfstæðismenn: Forsetinn myndi hafna Icesave |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 16:26 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
19.11.2009 | 10:10
Dularfullt hvarf 150 milljarða króna
Það verður að teljast með ólíkindum, að allt í einu uppgötvist að Glitnir skuldi allt að 150 milljörðum króna meira en fram kom í bókhaldi bankans við hrun hans.
Við innköllun krafna á bankann, kemst Deloitte að því að kröfur á bankann finnast ekki í bókhaldi hans, eða eins og segir í fréttinni: "Þegar skuldir Glitnis hafa verið uppfærðar með tilliti til þessara 793 milljóna evra þá nemur þessi viðbót um 5,5% af heildarskuldum Glitnis þann 30. júní eins og þær voru upphaflega gefnar upp þann 31. ágúst 2009. Núverandi mat skilanefndarinnar er að fara verði með þessar skuldir eins og önnur útgefin skuldabréf sem færð eru í liðnum Verðbréfaútgáfa og önnur lántaka í yfirliti yfir eignir og skuldir þann 30. júní 2009."
Ef 5.5% af heildarskuldum bankans koma ekki fram í bókhaldi hans, hlýtur að vakna upp spurning um hvað hafi orðið af peningunum, sem fengust fyrir sölu þessara skuldabréfa. Það er með ólíkindum að sala á skuldabréfum fyrir um 150 milljarða króna, geti farið fram án þess að sjást nokkurs staðar í bókhaldi bankans og ef milljarðarnir hafa ekki skilað sér í kassann hjá bankanum, hvert fóru þeir þá?
Fjármálaeftirlitið hlýtur að kanna málið og skjóta því svo til Sérstaks saksóknara, svo hann geti kyrrsett eignir einhversstaðar á meðan á rannsókninni stendur.
![]() |
Veruleg skuldaaukning Glitnis |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
18.11.2009 | 16:41
Gífurlegar hækkanir ofan á kjararýrnun
Nú eru tekjuskattstillögur ríkisstjórnarinnar komnar fram og þar eru boðaðar talsverðar hækkanir á tiltölulega lág laun og millitekjur, þó hækkunin sé mest á hæstu launin, en eins og nú er ástatt hefur fólki með mjög háar tekjur fækkað mjög og allir aðrir hafa þurft að taka á sig tekjuskerðingu.
Í töflunni hér fyrir neðan sést hvernig skattarnir samkvæmt nýja skattkerfinu hefðu komið út á árinu 2009 í samanburði við núverandi kerfi og er þá miðað við sama persónuafslátt í báðum tilvikum. Ekkert hefur komið fram hvort og þá hve mikið persónuafsláttur muni hækka um áramót.
Samanbuðartaflan lítur svona út:
Núverandi skattkerfi | Nýtt skattkerfi | Hækkun | Hækkun | |||
(Persónuafsláttur | Hlutfall af | (Persónuafsláttur | Hlutfall af | skatta | skatta | |
Laun á mánuði: | kr. 42.205) | tekjum í % | kr. 42.205) | tekjum í % | í krónum | í % |
150.000 | 13.595 | 9,06 | 13.595 | 9,06 | 0 | 0,00 |
200.000 | 32.195 | 16,10 | 32.195 | 16,10 | 0 | 0,00 |
300.000 | 69.395 | 23,13 | 72.295 | 24,10 | 2.900 | 4,18 |
400.000 | 106.595 | 26,65 | 112.395 | 28,10 | 5.800 | 5,44 |
500.000 | 143.795 | 28,76 | 152.495 | 30,50 | 8.700 | 6,05 |
600.000 | 180.995 | 30,17 | 192.595 | 32,10 | 11.600 | 6,41 |
650.000 | 199.595 | 30,71 | 212.645 | 32,71 | 13.050 | 6,54 |
700.000 | 218.195 | 31,17 | 235.695 | 33,67 | 17.500 | 8,02 |
800.000 | 255.395 | 31,92 | 281.795 | 35,22 | 26.400 | 10,34 |
900.000 | 292.595 | 32,51 | 327.895 | 36,43 | 35.300 | 12,06 |
1.000.000 | 329.795 | 32,98 | 373.995 | 37,40 | 44.200 | 13,40 |
1.200.000 | 404.195 | 33,68 | 466.195 | 38,85 | 62.000 | 15,34 |
1.400.000 | 478.595 | 34,19 | 558.395 | 39,89 | 79.800 | 16,67 |
1.600.000 | 552.995 | 34,56 | 650.595 | 40,66 | 97.600 | 17,65 |
1.800.000 | 627.395 | 34,86 | 742.795 | 41,27 | 115.400 | 18,39 |
2.000.000 | 701.795 | 35,09 | 834.995 | 41,75 | 133.200 | 18,98 |
Ofan á þetta eru boðaðar gífurlegar hækkanir á alls konar óbeinum sköttum, sem eiga að skila tugum milljarða í ríkissjóð á næsta ári og þeir lenda af mestum þunga á láglaunafólki, því það þarf að eyða meginhluta ráðstöfunartekna sinna til kaupa á daglegum nauðsynjavörum.
Óbeinu skattarnir fara beint út í verðlagið og hækka þar með vísitöluna, þannig að öll húsnæðislán munu hækka sem því nemur og hækkandi afborganir munu því bætast við aðra erfiðleika lág- og millitekjuhópanna.
Fyrir utan allt þetta er spáð 16% rýrnun kaupmáttar á næsta ári og ekki kemur það verst við hálaunafólkið, þvert á móti hjálpast þetta allt að til að lág- og millitekjufólkið mun ekki ná endum saman á næsta ári og kreppan mun fara að bíta almenning af miklu meiri krafti en fram til þessa.
Þetta er jólaboðskapur ríkisstjórnarinnar til þjóðarinnar, þó ekki sé hægt að segja að hann sé hátíðlegur..
![]() |
Þriggja þrepa skattkerfi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (20)
18.11.2009 | 13:14
Skattleggjum séreignarsparnaðinn strax
Tillaga Sjálfstæðismanna um að skattleggja séreingarsparnaðinn strax við inngreiðslu í sjóðina er afar góð og skynsamleg tillaga.
Með því móti væri hægt að komast hjá því skattahækkunarbrjálæði á fjölskyldurnar í landinu, sem ríkisstjórnin er að undirbúa og jafnvel þó það þýði eitthvað lægri skatttekjur í framtíðinni, þá er það meira en réttlætanlegt til þess að rétta af halla ríkissjóðs núna, þegar enginn er aflögufær til að greiða allta þá skatta sem boðaðir eru.
Þar fyrir utan má spyrja sig, hvort ástæða sé til að séreignarsjóðirnir séu að ávaxta á misáhættumikinn hátt, þann hluta lífeyrissjóðsgreiðslanna, sem eru í raun eignarhluti ríkissjóðs. Ríkissjóður hlýtur að vera jafnhæfur til þess að ráðstafa þeim hluta sjálfur, eða ávaxta hann, ef tekst að snúa halla ríkissjóðs upp í tekjuafgang, eins og var á undanförnum árum.
Tillögu Sjálfstæðismanna verður að ræða af fullri alvöru, án alls pólitísks dilkadráttar.
![]() |
Vilja afla tekna með skattlagningu séreignasparnaðar |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
18.11.2009 | 11:04
Ein mynd kúgunar
Ekkert er svo smátt í sniðum, að þjóðir innan ESB geti ekki notað það til hótana og kúgana gagnvart þjóðum sem ekki eiga aðild að stórríkinu.
Allir vita um kúganir ESB gegn Íslendingum vegna skulda Landsbankans.
Nú kemur enn ein birtingarmynd þessa hugarfars frá Grikklandi vegna heimildamyndar um Makedóníu, en fram kemur í fréttinni: "Að sögn vefjarins MTnet sagði sjónvarpsstöðin Kanal 5 frá því í gærkvöldi, að grískir sendimenn hefðu komið því á framfæri við íslenska sendiherrann að grísk stjórnvöld myndu beita sér gegn aðildarumsókn Íslands að Evrópusambandinu yrði myndin sýnd."
Þessi yfirdrottnunar- og kúgunarárátta aðildarlanda að stórríkinu ESB er ekki einleikin.
Hvað vill Samfylkingin hafa með svona félagsskap að gera?
![]() |
Mynd Íslendings um Makedóníu veldur uppnámi í Grikklandi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 11:14 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
18.11.2009 | 08:28
Hver axli sína ábyrgð
Vangaveltur Styrmis Gunnarssonar um hvort ummæi Páls Hreinssonar, formanns rannsóknarnefndar Alþingis, um að engin nefnd hefði þurft að færa þjóðinni jafn þungbær tíðindi og rannsóknarnefndin myndi þurfa að gera í fyllingu tímans, ættu við að ráðherrar yrði hugsanlega stefnt fyrir Landsdóm, eru afar athyglisverð.
Ef svo færi, að ráðherrum yrði stefnt fyrir Landsdóm fyrir athafnir sínar, eða athafnaleysi í aðdraganda bankahrunsins, yrði það í fyrsta sinn í lýðveldissögunni, sem fjallað yrði um ráðherraábyrgð með þeim hætti.
Verði niðurstaðan sú, að ráðherrar hafi gerst sekir um vanrækslu í störfum sínum, ber að sjálfsögðu að refsa þeim í samræmi við sekt þeirra.
Þessi umræða má þó ekki skyggja á ábyrgð þeirra, sem raunverulega bera höfuðábyrgð á því hvernig fór, þ.e. banka- og útrásarglæframannanna, sem spiluðu sinn Matador og lögðu efnahagslíf þjóðarinnar undir í fáráðlegu fjárhættuspili sínu.
Þeirra er höfuðábyrgðin og þeirra er að bera höfuðábyrgðina.
![]() |
Ráðherrar fyrir dóm? |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
17.11.2009 | 14:06
Samþykkja þrælavist, sem þjóðin mun ekki lifa af
Lilja Mósesdóttir og Ögmundur Jónasson virðast ætla að styðja það, að þjóðin verði hneppt í þrælaánauð fyrir Breta og Hollendinga til næstu áratuga, vegna Icesave skulda Landsbankans, þvert á sína fyrri afstöðu til málsins.
Það merkilega er, að þau gera sér ennþá grein fyrir því, að íslenskir skattgreiðendur bera enga ábyrgð á þessu fjármálarugli bankamannanna og þar að auki viðurkenna þau, að skattgreiðendur muni tæpast standa undir þessum þrælaskuldbindingum, nema með því að lepja dauðann úr skel um áratuga skeið.
Þetta sést vel á áliti þeirra, sem fylgir meirihlutasamþykki Fjárlaganefndar Alþingis, þar sem fjallað er um skuldaklafa ríkissjóðs, en þar segir m.a: Ósjálfbærni skulda mun óhjákvæmilega leiða til greiðslufalls, en þá þurfa íslensk stjórnvöld að biðja kröfuhafa um hagstæðari endurfjármögnun á skuldum hins opinbera, þ.e. með lægri vöxtum og lengingu lánstímans. Í þessu felst mikil áhætta því að erfitt er geta sér til um viðbrögð kröfuhafa við slíkri beiðni," segir í álitinu. Þar segir einnig, að draga þurfi verulega úr einkaneyslu og samneyslu á næstu árum til að þjóðin geti staðið undir greiðslubyrðinni.
Þessi afstaða minnir á atkvæðagreiðsluna um aðildarumsókn Íslands að ESB, en þá greiddu nokkrir þingmenn VG með umsókninni, en lýstu jafnframt yfir að þeir væru samt alfarið á móti aðild að ESB.
Nú virðast þeir ætla að samþykkja að hneppa þjóðina í þá þrælavist, sem þeir vita fyrirfram að hún muni ekki lifa af.
![]() |
Ekki hætta á greiðsluþroti |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
17.11.2009 | 13:12
Tilraunastarfsemi
Enn er ríkisstjórnarnefnan við sama heygarðshornið varðandi þreifingar sínar um aðgerðir í þeim málum, sem hún er að kljást við. Fyrst er alltaf lekið upplýsingum um, hvað stjórnin sé með á prjónunum og svo er dregið í land, eftir að almenningur hefur kveðið hugmyndirnar í kútinn og nýjar og svolítið mildari tillögur kynntar.
Þessi leikur hefur verið leikinn frá upphafi stjórnarsamstarfsins, nú síðast í skattamálunum. Fyrst voru látnar leka út tillögur um gífurlegar skattahækkanir á millitekjufólkið og svo eftir mikil mótmæli í þjóðfélaginu eru kynntar nýjar tillögur, sem eiga að koma sér betur fyrir þann hóp og þá er reiknað með, að fólk taki endanlegu breytingunni betur, fyrst hún er ekki jafn skelfileg og þær sem voru látnar leka.
Félagsmálaráðherranefnan er nú að kynna arfavitlausar tillögur um að svipta ungt fólk, á aldrinum 18-24 ára helming atvinnuleysisbóta sinna, til þess að hægt verði að styrkja það til að sækja námskeið á atvinnuleysistímanum. Hvers vegna manninum dettur ekki bara í hug að setja námskeiðin af stað og bjóða svo unga fólkinu að kaupa aðgang að þeim, er ráðgáta sem er eins skrýtin og margt annað í kýrhaus ríkisstjórnarinnar.
Þetta eru reyndar hefðbundin vinnubrögð, sem auðvitað verða dregin til baka, þegar einhver verður búinn að útskýra fyrir Árna Páli, hversu vitlausar hugmyndir hans eru.
![]() |
Skattatillögur kynntar á morgun |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
17.11.2009 | 10:08
Krónan eða Evrutenging
Aðalhagfræðingur Nordea bankans hefur látið hafa þetta eftir sér: "Erfiðleikarnir á Íslandi eru barnaleikur í samanburði við ástandið í Lettlandi," og skýringin er ekki flókin, að hans mati, eða eins og bankinn segir: "Nordea segir að á Íslandi hafi gengisfall íslensku krónunnar örvað útflutning og ferðaþjónustu og þannig dregið úr áhrifum bankahrunsins. Lettnesk stjórnvöld hafa hins vegar haldið gengi gjaldmiðilsins stöðugu en brugðist við fjármálakreppunni með niðurskurði hjá hinu opinbera. Margir telja þó að ekki verði hægt að frysta gengið til lengdar og hrynji það munu erlendir bankar, sem eiga talsverðar eignir í Lettlandi, tapa miklu."
Hvað skyldi oft þurfa að benda á muninn á afleiðingum hrunsins á efnahag Íslands og ýmissa landa ESB, sem eru svo óheppin að hafa Evruna, eða fasttengingu við hana, til þess að ESB sinnar hætti stuðningi sínum við inngöngu landsins sem smáhrepps í stórríki ESB?
Útflutningur Lettlands hefur nánast hrunið vegna fastgengisins þar í landi á meðan útflutnings- og ferðaiðnaður blómstrar, sem aldrei fyrr á Íslandi og munu verða þær atvinnugreinar, sem munu koma Íslandi út úr kreppunni áður en langt um líður. Hefðu þessar greinar búið við fast Evrugengi hefðu Íslendingar nú verið jafn illa, eða ver settir en Lettar og þykir þó flestum nóg um ástandið hér á landi.
Enn og aftur mega Íslendingar þakka sínum sæla fyrir að hafa sjálfstæðan gjaldmiðil og að ekki skuli enn hafa tekist að flytja þjóðina hreppaflutningi inn í sambandsríkið ESB.
Viðbót: Fróðlega frétt um Evruna og áhrif hennar á atvinnulíf Evrópu má lesa hérna
![]() |
Dökkt útlit í Lettlandi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 13:24 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)