Skattleggjum séreignarsparnaðinn strax

Tillaga Sjálfstæðismanna um að skattleggja séreingarsparnaðinn strax við inngreiðslu í sjóðina er afar góð og skynsamleg tillaga.

Með því móti væri hægt að komast hjá því skattahækkunarbrjálæði á fjölskyldurnar í landinu, sem ríkisstjórnin er að undirbúa og jafnvel þó það þýði eitthvað lægri skatttekjur í framtíðinni, þá er það meira en réttlætanlegt til þess að rétta af halla ríkissjóðs núna, þegar enginn er aflögufær til að greiða allta þá skatta sem boðaðir eru.

Þar fyrir utan má spyrja sig, hvort ástæða sé til að séreignarsjóðirnir séu að ávaxta á misáhættumikinn hátt, þann hluta lífeyrissjóðsgreiðslanna, sem eru í raun eignarhluti ríkissjóðs.  Ríkissjóður hlýtur að vera jafnhæfur til þess að ráðstafa þeim hluta sjálfur, eða ávaxta hann, ef tekst að snúa halla ríkissjóðs upp í tekjuafgang, eins og var á undanförnum árum.

Tillögu Sjálfstæðismanna verður að ræða af fullri alvöru, án alls pólitísks dilkadráttar.


mbl.is Vilja afla tekna með skattlagningu séreignasparnaðar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Katrín G E

Þetta er fullsterkt til orða tekið hjá þér að "enginn sé aflögufær"  Hvað með alla millana ???

Það er geinilegt a' sjálfstæðismenn vilja standa vörð um þá ríku enn og aftur !!

Katrín G E, 18.11.2009 kl. 13:45

2 identicon

Já, og svo þegar þið sjálfstæðismenn komist í stjórn aftur, þá getið þið endurskattlagt séreignasparnaðinn. Stór möguleiki á að ná honum öllum til ríkisins. Þetta er draumahugmynd. Gera sparnað litla fólksins upptækan til að standa skil á óráðsíu dekurdrengjanna ykkar.

Pacifier (IP-tala skráð) 18.11.2009 kl. 13:52

3 Smámynd: Ragnar Gunnlaugsson

 Þessi leið hlýtur að hugnast betur en þær leiðir sem ráðlaus ríkistjórn leggur til. Maður þarf hvort sem er að borga staðgreiðslu af séreignasparnaði áður en maður nýtir hann.

Ragnar Gunnlaugsson, 18.11.2009 kl. 14:03

4 Smámynd: Axel Jóhann Axelsson

Katrín, sjálfsagt eru millarnir aflögufærir og verða sjálfsagt skattlagðir aukalega fyrir það eitt, að hafa orðið millar.

Skattahækkanabrjálæði ríkisstjórnarinnar mun hins vegar bitna minnst á þeim hlutfallslega, því neysluskattarnir leggjast þyngst á þá sem lægst hafa launin.  Hækkun bensín-, tóbaks- áfengis-, sykur- kolefnis- og almenns virðisaukaskatts kemur miklu verr niður á láglaunafólki, en því hálaunaða, því það eyðir stæstum hluta tekna sinna í almennar og daglegar neysluvörur.

Lækkun vaxta- og barnabóta kemur líka verr við láglaunaða en hálaunaða, þannig að allar fyrirhugaðar aðgerðir ríkisstjórnarinnar munu bitna á lág- og millitekjuhópunum og það eru einmitt þeir hópar, sem ekki eru aflögufærir um þessar mundir.

Skattlagning séreignarsparnaðarins við inngreiðslu í stað útgreiðslu kemur út á eitt fyrir lífeyrisþegann.  Hann fær nákvæmlega sömu krónutölu út úr sjóðnum, þegar hann fer að nýta hann, hvort sem iðgjaldið er skattlagt í upphafi eða við útgreiðsluna.

Það þarf að ræða þetta mál á vitrænan hátt, en ekki sama gamla pólitíska skítkastinu og vinstri menn grípa alltaf til í rökþroti sínu.

Axel Jóhann Axelsson, 18.11.2009 kl. 14:28

5 identicon

Ég bloggaði í september um skattlagningu á inngreiðsluhlutann í lífeyrissjóði.  Þ.e. ekki verið að tala um skattlagningu á þá fjármuni sem í lífeyrissjóðunum eru núna, heldur eingöngu um skatt á innborgun frá mánuði til mánaðar og sýndi með dæmum hvað það jafngildir í hækkun skattprósentu auk þess sem ég sýni fram á að sveitarfélögin fá auknar tekjur þannig.

Þessa færslu má sjá hérna: http://jonoskarss.blog.is/blog/jonoskarss/entry/955000/

Jón Óskarsson (IP-tala skráð) 19.11.2009 kl. 10:05

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband