Hallbera Gísladóttir er drengur góður

Hallbera Guðný Gísladóttir kemur vel fram við Jón Þór, landsliðsþjálfara kvenna, þegar hún þakkar honum fyrir gott samstarf undanfarin tvö ár og gefur honum bestu meðmæli sem þjálfara, þó leiðir hans og liðsins hafi skilið á leiðinlegan hátt.

Ekki hefur komið fram að aðrar landsliðskonur hafi þakkað honum samstarfið opinberlega á svipaðan hátt, þó maðurinn sé breyskur og eigi jafnvel við ákveðin vandamál að stríða utan vallar?

Ekki verður frá Jóni Þóri tekið að hann hefur verið farsæll þjálfari undanfarin ár og hefur líklega náð besta árangri allra þjálfara með kvennalandsliðið í fótbolta sem endaði með að koma liðinu beint á stórmót.

Því miður kom, að því er virðist utanfrá séð, að vandamál með stjórn á áfengisdrykkju og röfli af þess völdum, hafi orðið til að trúnaðarbresture hafi orðið milli hans og liðsins sem hafi valdið óhjákvæmilegum samstarfsslitum.

Vonandi verður þetta leiðindamál ekki til þess að knattspyrnan verði án þjálfunarhæfileika Jóns Þóris í framtíðinni.


mbl.is „Ég get ekki setið undir slíkum ásökunum“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Helga Kristjánsdóttir

Ég er hjartanlega sammála þér og langaði á tímabili að tjá mig en óvæntir gestir trufluðu þá áætlun..Svo ég nota nú tækifærið eftir þessa góðu grein þína og óska honum einnig góðs gengis.

Helga Kristjánsdóttir, 10.12.2020 kl. 23:53

2 Smámynd: Jóhann Elíasson

Meiriháttar góð grein Axel og tek ég undir hvert einasta orð hennar....

Jóhann Elíasson, 12.12.2020 kl. 15:20

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband