Dularfullt hvarf 150 milljarða króna

Það verður að teljast með ólíkindum, að allt í einu uppgötvist að Glitnir skuldi allt að 150 milljörðum króna meira en fram kom í bókhaldi bankans við hrun hans. 

Við innköllun krafna á bankann, kemst Deloitte að því að kröfur á bankann finnast ekki í bókhaldi hans, eða eins og segir í fréttinni:  "Þegar skuldir Glitnis hafa verið uppfærðar með tilliti til þessara 793 milljóna evra þá nemur þessi viðbót um 5,5% af heildarskuldum Glitnis þann 30. júní eins og þær voru upphaflega gefnar upp þann 31. ágúst 2009. Núverandi mat skilanefndarinnar er að fara verði með þessar skuldir eins og önnur útgefin skuldabréf sem færð eru í liðnum „Verðbréfaútgáfa og önnur lántaka“ í yfirliti yfir eignir og skuldir þann 30. júní 2009."

Ef 5.5% af heildarskuldum bankans koma ekki fram í bókhaldi hans, hlýtur að vakna upp spurning um hvað hafi orðið af peningunum, sem fengust fyrir sölu þessara skuldabréfa.  Það er með ólíkindum að sala á skuldabréfum fyrir um 150 milljarða króna, geti farið fram án þess að sjást nokkurs staðar í bókhaldi bankans og ef milljarðarnir hafa ekki skilað sér í kassann hjá bankanum, hvert fóru þeir þá?

Fjármálaeftirlitið hlýtur að kanna málið og skjóta því svo til Sérstaks saksóknara, svo hann geti kyrrsett eignir einhversstaðar á meðan á rannsókninni stendur.


mbl.is Veruleg skuldaaukning Glitnis
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Glitnisklúðrið er mikill áfellisdómur yfir fyrrverandi endurskoðendum bankans, núverandi endurskoðunarfyrirtæki sem tók saman stöðu gamla bankans miðað við 30.júní 2009 sem og Fjármálaeftirlitsins og stjórnendum hins fallna banka.

Það virðist eiga að holdgera fjármálahrunið á Íslandi í einum fyrrverandi ráðuneytisstjóra sem flokkaður er sem stórglæpamaður fyrir það eitt að hafa selt hlutabréfin sín á óheppilegum tíma.  Vel má vera að hann kunni að reynast "sekur" um innherjaupplýsingar og þá fær hann einfaldlega sekt í samræmi við það.  En að það skuli skyndilega vera hægt að frysta allar hans eignir og að vinnutíma sérstaks saksóknara skuldi sólundað í að rannsaka þennan eina mann vekur upp reiði í þjóðfélaginu og hinn almenni borgari skilur þetta ekki.  Af hverju er hægt að frysta hans eignir en ekkert var hægt að gera gagnvart þeim fremur þrönga og smáa hóp sem kallast daglegu tali "útrásarvíkingar". 

Glitnismálið og e.t.v. fleiri hliðstæð mál sem fram eiga eftir að koma eru svo margfalt stærri og ástæða til að rannsaka það af fullum þunga og með öllum tiltækum ráðum er svo mikið meiri en að ráðast á einhverja venjulega Jón og Gunnu.

Jón Óskarsson (IP-tala skráð) 19.11.2009 kl. 10:33

2 Smámynd: Finnur Bárðarson

Geggjunin nær áður óþekktum hæðum. Nú þarf sérstakur saksóknari að fara af stað með ruddagangi.

Finnur Bárðarson, 19.11.2009 kl. 15:45

3 Smámynd: Tómas Ibsen Halldórsson

Þetta er hreint ótrúlegt.  Víkingarnir halda veislur á meðan þjóðin er í dauðateygjunum.

Tómas Ibsen Halldórsson, 19.11.2009 kl. 16:00

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband