Bloggfærslur mánaðarins, janúar 2010

Útsölurnar lækka húsnæðislánin

Útsölur verslana í janúar lækka vísitölu neysluverðs mun meira, en hvað skattahækkanir ríkisstjórnarinnar hífa hana upp.  Þetta mun auðvitað breytast til hins verra, þegar útsölunum lýkur og skattahækkanirnar koma þá af fullum þunga fram í vísitölunni.

Það sem verkur hins vegar athygli, er mikil sveifla á flugfargjöldum milli mánaða, en í desember voru flugfargjöld sögð hafa hækkað um rúm 20%, en í janúar lækka þau aftur um rúmlega 20%.   Hvort jólafargjöldin eru svon miklu dýrari, en önnur fargjöld, kemur ekki fram, en hlýtur að vera skýringin.

Þá vaknar sú spurning, hvort eðlilegt sé, að svona skammtímasveiflur í verlagi, t.d. árstíðabundin flugfargjöld og útsölur, eigi að hafa svona mikil áhrif á vísitölu neysluverðs, sem aftur hefur bein áhrif á húsnæðislán almennings, oftast til hækkunar.

Væri ekki eðlilegra, að miða við meðaltalsverðlag, t.d. síðustu þriggja mánaða, við þessa útreikninga, því það myndi minnka sveiflurnar í vísitölunni og gefa réttari mynd til lengri tíma litið.


mbl.is Verðbólgan mælist 6,6%
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Er einhver hissa lengur?

Þann 15. Ágúst árið 2008, einum og hálfum mánuði fyrir hrun bankanna, birtist þessi frétt um ævintýralegan gróða Pálma í Fons á viðskiptum hans við félaga sinn og samstarfsmann, Jón Ásgeir Jóhannesson, eða hagnað upp á litla áttatíu milljarða króna.

Á svipuðum tíma kom Pálmi fyrirtækinu Iceland Express út úr Fons og í sína eigin eigu, en þrátt fyrir þennan ævintýralega hagnað urðu engar eignir eftir í Fons og fyrirtækið var sett í gjaldþrot.  Um sama leiti lét félagi hans, Jón Ásgeir svipaðan leik, þegar hann kom Högum út úr Baugi, rétt fyrir gjaldþrot þess félags, yfir í eigu nýstofnaðs fyrirtækis síns, 1998 ehf., sem nú rær að því öllum árum, að fá niðurfellingu á 50 milljarða skuldum, til þess að Baugsfjölskyldan geti rekið Haga áfram.

Þessir viðskiptafélagar hafa skilið eftir sig hundruð milljarða gjaldþrot vegna ýmissa fyrirtækja sinna hérlendis og erlendis, en njóta svo mikils trausts innan nýju bankanna, sem alls ekki geta hugsað sér að slíta viðskiptum við þá, þar sem þetta eru svo snjallir viðskiptamenn, að aðrir slíkir finnist ekki í veröldinni og þó víðar væri leitað.

Er einhver hissa lengur á því, að bankarnir hafi ausið tugmilljarða lánum til þessara manna, jafnvel eftir bankahrunið?


mbl.is Glitnir mokaði fé í Fons
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Vammlaus sómamaður

Friðrik Sophusson, fyrrverandi fjármálaráðherra og síðar forstjóri Landsvirkjunar, hefur verið kjörinn formaður stjórnar Íslandsbanka og verður það að teljast vel valið í stöðuna.

Friðrik er einn besti fjármálaráðherra sem því embætti hefur gegnt og stóð hann fyrir miklum breytingum á ríkisreikningum, þ.e. kom þeim í nútímahorf, en uppgjörsaðferð ríkisbókhaldsins var þá algerlega stöðnuð í fornum vinnubrögðum.  Einnig beitti hann sér fyrir stórhertu skattaeftirliti, nýjum vinnubrögðum á skattstofunum og hertri innheimtu skatttekna og allt varð þetta til að gera vinnu við tekjuöflun ríkisins mun skilvirkari, en hún hafði áður verið.

Einhugur er um að hann hafi staðið sig afburða vel í starfi forstjóra Landsvirkjunar og jafnvel hörðustu náttúruvendarsinnar viðurkenna, að hann hafi sinnt náttúruvernd, eins vel og mögulegt er í rekstri og uppbyggingu orkumannvirkja.

Í stöðu formanns bankaráðs Íslandsbanka gat varla valist betri og óumdeildari maður.


mbl.is Friðrik Sophusson formaður ÍSB
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ákærurnar standa óhaggaðar

Þrátt fyrir þann klaufaskap Valtýs Sigurðssonar, ríkissaksóknara, að víkja ekki sæti stax, sem saksóknari í málinu gegn óþjóðalýðnum, sem réðst inn í Alþingi, með ofbeldi, í október 2008, standa ákærurnar fyrir sínu og málið fer fyrir dóm, þó Valtýr hafi dregið sitt bréf til baka frá Héraðsdómi.

Lára V. Júlíusdóttir hefur verið skipaður saksóknari í málinu og mun vafalaust ákæra að nýju, enda um mjög alvarleg afbrot að ræða, hjá þessum hópi misindisfólks, sem bæði truflaði störf Alþingis og slasaði þingverði og lögregluþjóna.

Ekki er með nokkru móti hægt að láta eins og ekkert sé, þegar svo alvarleg afbrot eru framin og furðulegt af fólki, að tala um að forgangsröðun sé ekki rétt, fyrst ekki sé búið að ákæra og dæma aðra glæpamenn.

Glæpir annarra réttlæta ekki framferði þessa hóps og verður hann að standa reikningsskap gerða sinna, eins og aðrir, sem fremja glæpi í landinu.


mbl.is Lára settur ríkissaksóknari
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þvílíkt lið - Þvílíkur leikur

Æsispennandi leik Íslendinga og Króata var að ljúka og spenningurinn var slíkur, að jöfnuður er ekki kominn á sálartetrið ennþá.

Baráttan var ótrúleg á báða bóga og bæði lið stóðu sig stórkostlega í þessum ótrúlega baráttuleik, sem því miður fyrir Ísland, endaði með jafntefli.

Síðustu tíu mínútur leiksins virtust tékknesku dómararnir dæma Króötunum einum of oft í vil og ekki alveg útilokað að dómgæslan hafi kostað Íslendinga sigurinn.

Ekki þýðir þó að gráta það, næsti leikur verður við Rússa og sá leikur mun og verður að vinnast.

Strákunum okkar er vel treystandi til þess, eins og liðið er stemmt þessa dagana.


mbl.is Jafntefli gegn Króötum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Nefndin fái þann tíma sem hún þarf

Fram er komið frá Rannsóknarnefnd Alþingis, að hún þurfi lengri tíma til þess að ljúka við skýrslu sína um aðdraganda bankahrunsins og þeirra spillingarmála, sem á borð hennar hafa ratað á rannsóknartímanum.

Ummæli Tryggna Gunnarssonar, nefndarmanns, um að það sem hann hafi kynnst í starfi sínu við rannsóknina sé það versta, sem hann hafi séð á sínum rannsóknaraferli, gefur ýmislegt miður gott til kynna um efnið.  Eftir því sem hann segir sjálfur, þá hafi hann "oft verið gráti nær og mjög pirraður yfir því sem maður hefur séð.“

Páll Hreinsson, formaður nefndarinnar, sagði á blaðamannafundinum í morgun:  "Að þau vandamál sem við erum að kryfja og gera þjóðinni grein fyrir skuli vera stærri og umfangsmeiri en gert var ráð fyrir í upphafi er ekki á ábyrgð nefndarinnar. Þetta er vandamál okkar allra. Ég bið því bæðí þing og þjóð, að sýna okkur biðlund og veita okkur færi á að ganga frá skýrslunni.“ 

Ekki er nema sjálfsagt, að gefa nefndinni allan þann tíma, sem hún þarf, til að ljúka rannsókn sinni og frágangi skýrslunnar, sem mun væntanlega verða um 2.000 blaðsíður, áður en yfir lýkur.

Aðalatriðið er, að rannsóknin verði sem mest tæmandi um þá spillingu sem grasseraði í þjóðfélaginu á þessum tíma og hverjir bera þar ábyrgð.

Það er það, sem máli skiptir, vegna þeirrar hreinsunar, sem fram þarf að fara vegna fortíðarinnar og uppbyggingarinnar í kjölfarið.


mbl.is Gráti nær yfir efni skýrslunnar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Auðvitað er líf á öðrum hnöttum

Vísindamenn eru loksins farnir að viðurkenna að líklegt sé, að líf finnist á öðrum hnöttum en Jörðinni og að líkur á að finna það, séu sífellt að aukast.

Hingað til hafa flestir haldið því fram að lífið á Jörðinni væri einstakt í algeymnum og annarsstaðar væri ekkert nema auðn og dauði.  Vetrarbrautirnar eru óteljandi og líkur á lífi á öðrum stjörnum því meira en líklegt, nánast öruggt, að gífurlegur fjöldi hnatta hýsi lifandi verur í ýmsum myndum og víða sé þróunin miklu lengra komin, en á því sandkorni alheimsins, sem jörðin er.

Að halda því fram, að jörðin og lífið, sem á henni þrífst, sé það merkilegasta í öllum sólkerfum og stjörnuþokum algeymsins, er álíka mikið mikilmennskubrjálæði og hefur lengi þjáð Íslendinga, sem alltaf telja sig mesta, besta, merkilegasta og fallegasta hér á jörð.

Því miður eru Íslendingar ekki meðal þeirra mestu og bestu í heimi, nema í handbolta.


mbl.is Líkur á að finna líf á öðrum hnöttum aukast
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Allir leikir eru úrslitaleikir

Í dag keppir íslenska landsliðið í handbolta við það króatíska, sem er geysiöflugt og vant að vinna stóra tiltla, þó það hafi ekki ennþá unnið Evrópumeistaratitilinn.  Þar sem Króatar hafa unnið flest, sem hægt er að vinna í handbolta, annað en EM, er alveg víst, að þeir munu mæta ákveðnir til leiks og munu ekki sætta sig við neitt, nema sigur, enda taplausir það sem af er móts.

Ekki er að efa, að íslenska liðið mun mæta ákveðið til leiks, enda búið að setja sér háleit markmið í mótinu.  Liðið er taplaust í mótinu og eftir frækinn sigur á Dönum, munu strákarnir koma vel stemmdir í leikinn, ákveðnir í að sigra.  Hver leikur sem eftir er í mótinu er í raun úrslitaleikur.

Svona keppni er eitthvert besta sjónvarpsefni sem til er, ásamt ýmsum öðrum íþróttaviðburðum, en nú hefur RÚV boðað, að hætt verði að sýna frá landsleikjum Íslendinga og verður það að teljast mikil skammsýni, ekki síst ef handboltalandsleikir eru þar meðtaldir.

Burt séð frá því hvað RÚV mun gera í framtíðinni, mun þjóðin standa einhuga að baki strákanna í dag og senda þeim alla þá hlýju strauma og orku, sem hægt er að senda úr fjarlægð.

Það verður mikil gleðistund í leikslok, eftir íslenskan sigur.


mbl.is Króatar eru óárennilegir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Noregur kemur ekki til greina

Einar Karl Haraldsson, upplýsingaleynari forsætisráðuneytisins, hefur látið þau boð út ganga, að þrjú lönd komi helst til greina, sem sáttasemjarar milli Íslans annars vegar og Breta og Hollendinga hinsvegar.  Þessi lönd eru Frakkland, Þýskaland og til mikillar furðu, helst Noregur.

Auðvitað kemur Noregur alls ekki til greina í þessu sambandi, enda hafa stjórnvöld þar tekið einarða afstöðu með kúgurunum og gert allt sem í þeirra valdi hefur staðið, til að skaða Ísland og málstað þess á allan mögulegan máta.

Það land, sem skást væri úr þessum hópi er Þýskaland, enda hafa Þjóðverjar ávallt verið velviljaðir Íslendingum og frekar tekið upp hanskann fyrir landið, heldur en hitt.

Hvað sem öðru líður, er nánast móðgun við íslenska hagsmuni, að yfirleitt ræða þessi mál við Norðmennn.


mbl.is Þrjú lönd koma til greina
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bankasýslan óskiljanleg nema sálfræðingum

Engan skyldi undra, að Bankasýsla ríkisins skuli auglýsa eftir sálfræðingi, til þess að raða skjölum, sem þetta ríkisapparat meðhöndlar. 

Hver er hæfari til að skilja hugsunarhátt þeirra, sem fjalla um bankamál á Íslandi, aðrir en sálfræðingar?  Ekki margir, aðrir en þá geðlæknar.

Furðulegra er, að sú æskilega menntun, sem skjalavörurinn mætti hafa, næst sálfræðinni, er stjórnmálafræði.  Varla geta bréfin og póstarnir, sem Bankasýslan sendir og móttekur, verið svo pólitískir, að þeir séu óskiljanlegir til flokkunar, nema sálfræðingum og stjórnmálafræðingum.

Þetta er öllum óskiljanlegt, nema bankamönnum, sem hafa þurft á sálfræðihjálp að halda undanfarið.

Líklega hefði verið réttara að auglýsa eftir sérfræðingi í áfallahjálp.


mbl.is Sérfræðingur í skjalastjórn - má vera sálfræðingur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband