9.10.2009 | 17:14
Stjórnin dregur lappirnar, enda hölt á báðum
Financial Times fullyrðir að það sé útbreidd skoðun erlendra embættis- og bankamanna, að stjórnvöld á Íslandi dragi lappirnar í öllum málum, sem snerta uppgjör og rannsókn banka- og útrásarglæfra og segir t.d: "....að íslensk stjórnvöld séu að draga lappirnar og hafi hvorki vilja né getu til að takast á við þau vandamál sem verði að leysa og fari vaxandi dag frá degi. "
Þetta er hárrétt skilgreining á ríkisstjórninni, enda gera illdeilur innan og milli stjórnarflokkanna það að verkum, að stjórnin er hölt á báðum fótum og dregst ekki áfram mikið lengur.
Einnig undrast blaðið hægaganginn í glæparannsóknunum, enda segið það: Það er ljóst að hægt hefur gengið að leggja fram ákærur á hendur útrásarvíkingunum: á sama tíma og Bernard Madoff hefur verið afhjúpaður, dæmdur og fangelsaður fyrir stórfelld fjársvik hefur engin ákæra verið lögð fram af hálfu íslenska ríkissaksóknarans," segir blaðamaðurinn Robert Jackson í greininni." Blaðamaðurinn er greinilega jafn óþolinmóður og Íslendingar sjálfir, en hann þekkir líklega ekki til Baugsmálsins fyrsta og stuðning meginþorra almennings við sakbornigna í því og hvaða áhrif það hafði til lömunar á dómskerfi landsins, enda logaði samfélagið árum saman vegna móðursýkinnar, sem Baugsliðinu tókst að æsa upp í tengslum við rannsókn þess.
Hins vegar er það mikill misskilningur hjá blaðinu, að einungis tvær leiðir sér færar fyrir Ísland í framtíðinni, þ.e. annaðhvort ESB eða einangrun landsins til framtíðar.
Heimurinn er miklu stærri en ESB. Innan ESB búa innan við 10% mannkyns, þannig að allir vegir eru færir í samskiptum við hin nítíu prósentin. Þau hafa líka miklu fleira að bjóða en ESB.
![]() |
Telja íslensk stjórnvöld draga lappirnar |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
9.10.2009 | 14:39
Málaferli best úr því sem komið er
Jóhanna Sigurðardóttir, meintur forsætisráðherra, sem á að telja kjark og þor í þjóðina á erfiðleikatímum, hefur nú sent frá sér tilkynningu í þveröfugum tilgangi, þ.e. að reyna að koma þjóðinni í skilning um, að mótþrói hennar við Icesave rugli ríkisstjórnarinnar, verði nánast hennar banabiti.
Lýsingin er svohljóðandi: "Töf á afnámi gjaldeyrishafta, lækkun á lánshæfismati ríkins niður í flokk ótryggra fjárfestinga, líkur á vaxtahækkun, þrýstingur á gengislækkun og þar með aukning verðbólgu ásamt töfum á endurreisn atvinnulífs með vaxandi atvinnuleysi, eru meðal líklegra afleiðinga þess að frekari tafir verði á endurskoðun efnahagsáætlunar stjórnvalda og Alþjóða gjaldeyrissjóðsins."
Í fljótu bragði virðist þetta vera lýsing á því ástandi, sem verið hefur hérlendis, frá því að ríkisstjórnin tók við völdum, en verstu lýsingarnar þarna, eru einmitt á því ástandi sem hér hefur ríkt undanfarna mánuði. Áróðurinn er reyndar til að hræða fólk, með því sem gæti gerst í framtíðinni.
Síðan er enn hnykkt á áróðrinum um að þjóðin sé í ábyrgð fyrir Icesave skuldum Landsbankans og sagt m.a: Útilokað er að sjóðurinn geti staðið við lagalegar skuldbindingar sínar verði enn ósamið um Icesave þegar fresturinn rennur út. Sjóðurinn getur því átt von á málssókn á hendur sér og sömuleiðis ríkið fyrir að mismuna innistæðueigendum eftir staðsetningu."
Úr því sem komið er, eru málaferli besti kosturinn í stöðunni, því tilskipun ESB og íslensk lög kveða á um að ríkisábyrgð skuli ekki vera á innistæðutryggingasjóðum. Því máli myndu Bretar og Hollendingar vafalaust tapa fyrir íslenskum dómstólum og það vita þeir sjálfir fullvel.
Varðandi það, að óheimilt sé að mismuna fólki eftir staðsetningu, má benda á að íslenska ríkinu er algerlega heimilt að bæta sínum þegnum tjón, sem þeir verða fyrir, hvers eðlis sem það er, án þess að allur heimurinn geti gert kröfur um sambærilegar bætur frá íslenskum skattgreiðendum.
Hræðsluáróðurinn er að verða nokkuð magnaður og eingöngu til að undirbúa endanlega uppgjöf ríkisstjórnarinnar fyrir gaddasvipum Breta og Hollendinga.
![]() |
Alvarlegar afleiðingar af frekari töfum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
9.10.2009 | 13:19
Mannréttindabrot að fá ekki að vera borgarfulltrúi
Þingmenn Hreyfingarinnar og einn Framsóknarmaður, sem líklega hefur óskað nafnleyndar, hafa lagt fram frumvarp á Alþingi, þar sem lagt er til gífurleg fjölgun fulltrúa í sveitarstjórnum og þar á meðal að fulltrúum í borgarstjórn Reykjavíkur verði fjölgað í 61.
Telja þingmennirnir að það sé mannréttindaskerðing, að nánast annar hver maður í borginni geti ekki orðið borgarfulltrúi, eða eins og segir í rökstuðningi: "Hér er um að ræða lýðræðisskerðingu sem stríðir gegn anda Evrópusáttmálans, mannréttindasáttmála Sameinuðu þjóðanna sem og Ríó-sáttmálans um Staðardagskrá 21 sem er heildaráætlun ríkja Sameinuðu þjóðanna um sjálfbæra þróun samfélaga," segir í frumvarpinu."
Þó varla sé hægt að trúa því, þá virðist þetta frumvarp vera flutt í alvöru og það á Alþingi, sem hægt væri að reikna með, að þyrfti að fjalla um alvarleg og aðkallandi mál, á þessum síðustu og verstu tímum.
Auðvitað er ekki hægt að mótmæla því, að sjálfbær þróun Reykjavíkur er háð því að mannréttindi allra séu virt til setu í borgarstjórn, ekki síst í anda Staðardagskrár 21.
![]() |
Vilja að borgarfulltrúar verði 61 |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
9.10.2009 | 10:59
Þurfum erlend lán - fáum þau ekki - getum ekki endurgreitt
Allir helstu hagfræðingar þjóðarinnar telja að það sem nauðsynlegast sé fyrir þjóðina nú um stundir sé að komast í þá stöðu, að fá óheftan aðgang að erlendu lánsfé. Án þess verði engin uppbygging á landinu á komandi árum.
Heimilin, fyrirtækin og þjóðarbúið í heild sinni er að drukkna núna vegna erlendra lána, sem tekin hafa verið á undanförnum árum og getan til að endurgreiða þau er nánast engin. Á næsta ári er áætlað að ríkissjóður einn þurfi að greiða 100 milljarða í vexti af lánum sínum, en það jafngildir öllum útflutningstekjum af fiskveiðum Íslendinga árlega.
Allur vöruskiptajöfnuður út- og innflutnings næstu áratuga mun ekki duga til að greiða afborganir og vexti af erlendum skuldum þjóðarbúsins, þannig að ekki þarf að reikna með að íslendingar geti sótt í mikil erlend lán á næstunni. Reikningsdæmið er ekki flóknara en heimilisbókhaldið hjá hverri fjölskyldu, fjölskyldan getur ekki steypt sér í meiri skuldir, en ævitekjurnar duga til að greiða.
Það má þakka fyrir, ef hægt verður að fá ný erlend lán á næstu árum, til þess að framlengja eldri lánum og því er nánast tómt mál að tala um, að uppbgging næstu ára verði að byggjast á erlendri lántöku.
Þjóðin verður að sætta sig við, að í nánustu framtíð verður ekkert fjárfest, nema fyrir eigið aflafé, a.m.k. ekki með miklum erlendum lántökum.
![]() |
Þurfum aðgang að lánsfé |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
9.10.2009 | 08:32
Gagnlegir fundir um gagnsemi funda
Nú er komið í ljós, að allir fundirnir tuttugu, sem Steingrímur J., fjármálajarðfræðingur, átti með hinum og þessum í Istanbul, voru afar gagnlegir og varð niðurstaða þeirra allra, að áfram skyldi halda gagnlega fundi um hin ýmsu gagnlegu mál, sem að gagni mættu koma og vörðuðu gagnlega vináttu íslensku þjóðarinnar við þrælahöfðingja ESB landanna og handrukkara þeirra, AGS.
Um þetta hefur verið bloggað áður hérna og nú hefur Indriði H., þrælasölumaður, staðfest að niðurstaða funda þeirra Steingríms J., hafi enginn verið, annar en að gagnlegar umræður þyrftu að halda áfram um Icesave og fleiri gagnlega mál.
Þeir félagar, Steingrímur J. og Indriði H. hafa mánuðum saman reynt að sannfæra íslensku þjóðina um að Icesave samningurinn væri afar hagstæður fyrir Íslendinga og besti samningur, sem hægt væri að hugsa sér, því þrældómurinn samkvæmt samningnum ætti ekki að vara nema í fimmtán ár. Hvernig akkúrat þessir sömu menn áttu síðan að sannfæra fundarmenn hinna tuttugu funda, um að Icesave samningurinn væri alveg ómögulegur og að Íslendingar vildu ekki undirgangast þrældóminn, er hulin ráðgáta, en sjálfsagt telur ríkisstjórnin þessa menn vera gagnlega sendiboða.
Samkvæmt viðtali við Indriða H., varð niðurstaðan enda ekki mikil, eða eins og þar segir: "Helst er á Indriða að skilja að árangur ferðarinnar liggi í því að viðmælendur ráðherrans þar úti hafi öðlast betri skilning á afstöðu Íslendinga og þróun efnahagsmálanna hér á landi og mikilvægi þess að áætlun AGS haldi áfram."
Hefði ekki verið gagnlegt, að koma þessum sjónarmiðum að við sjálfa samningagerðina?
![]() |
Icesave-mál hafa ekki haggast neitt |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
8.10.2009 | 23:04
Í greipum vinstrimanna
"Við erum í höndum visnstrimanna og við vitum öll hvað þeir vilja gera við landið. Við vitum að 72% fjölmiðlanna eru til vinstri. Þjóðmálaþættir og aðrir þættir í ríkissjónvarpi sem almenningur borgar fyrir eru til vinstri."
Þegar þessi orð eru lesin, er fyrsta hugsunin sú, að einhver Íslendingur sé að lýsa ástandinu hérlendis, en svo er ekki, heldur er það forsætisráðherra Ítalíu sem talar. Fjölmiðlalandslagið er greinilega líkt með löndunum tveim, þó annað sé í suðuhluta Evrópu, en hitt lengst í norðri.
Íslendingurinn hefði reyndar bætt því við, að allt atvinnulífið væri að komast í hendur vinstri manna og þeir gerðu allt sem í þeirra valdi stæði, til að drepa niður það litla sem eftir er af lífsneista þeirra fyrirtækja, sem ekki eru nú þegar komin í þeirra umsjá.
Eina ríkisstjórnin á vesturhveli jarðar sem virðist viljandi vera að lengja kreppuna og dýpka hana, situr á Íslandi, enda athlægi um víða veröld.
![]() |
Í greipum vinstrimanna |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
8.10.2009 | 15:59
Ráðherrar tala út og suður í sama viðtalinu
Jóhanna Sigurðardóttir, meintur forsætisráðherra, og Steingrímur J., fjármálajarðfræðingur, voru í viðtali við BBC í tilefni af ársafmæli hrunsins og töluðu út og suður, eins og þeirra var von og vísa.
Jóhanna sagði, eins og venjulega, að eina bjargráðið væri ESB og þar með Evran, en Steingrímur J. reynir að klóra í bakkann, með því að vitna í "suma" um að aðalbjargvætturinn í þessu ástandi væri krónan, eða eins og segir í fréttinni: "Jóhanna, sem talar íslensku í fréttinni, segir m.a. að það sé mjög mikilvægt fyrir íslensku þjóðina að fá sem fyrst aðild að Evrópusambandinu. Steingrímur svarar m.a. spurningu um evruna og segir að sumir telji, að sveigjanleiki íslensku krónunnar kunni að hjálpa til þegar Íslendingar vinna sig út úr kreppunni."
Vonandi hefur ruglið í Jóhönnu ekki verið þýtt á ensku fyrir Bretana, enda ekki víst að þeir hefðu skilið það, hvort sem var.
Stefna Samfylkingarinnar er óskiljanleg á hvaða tungumáli sem er.
![]() |
Ísland í brennidepli á BBC |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
8.10.2009 | 15:05
Alþjóðavæðing Samfylkingarinnar
Árni Páll Árnason, ESB- og félagsmálaráðherra hélt hátíðlega ræðu á þingi Starfsgreinasambandsins og beindi máli sínu fyrst og fremst til Samfylkingarfélaga sinna, sem þar sátu, enda ekki margir aðrir, sem taka Árna mjög alvarlega. Helsta hvatning Árna til félaganna hljóðaði svo: Barátta fyrir alþjóðavæddu atvinnulífi og samvinnu við nágrannaríki er hin nýja stéttabarátta vorra tíma barátta okkar fyrir öruggri lífsafkomu, áhrifum og jafnrétti.
Þó þingfulltrúar hafi sjálfsagt ekki hlegið upphátt undir ræðu Árna, af kurteisisástæðum, hefur áreiðanlega mörgum verið hlátur í hug, ekki síst við þennan kafla ræðunnar: Við stöndum á tímamótum. Í efnahagslífi okkar í dag erum við að fást við efnahagslegt ójafnvægi sem stafar fyrst og fremst af því að innviðir samfélagsins og þá sérstaklega gjaldmiðillinn eru ekki nógu sterkir til að bera alþjóðavæðingu hluta efnahagslífsins. Bankakerfið og viðskiptalífið reyndist of opið og of stórt fyrir þennan litla gjaldmiðil."
Ekki verður annað skilið af þessum orðum Árna, en að bankarnir og útrásin stæðu enn í miklum blóma, eingöngu ef Ísland hefði verið komið í ESB og búið að taka upp Evruna. Þá hefðu krosseignatengsl, að ekki sé talað um krossskuldatengsl, ekki skipt neinu máli og banka- og útrásargarkar væru enn að leggja undir sig lönd og álfur, eins og ekkert hefði í skorist.
Bankar og efnahagslíf í Evrulöndum hafa gengið í gegnum miklar hremmingar undanfarin misseri og eingöngu geysisterkir ríkissjóðir í sumum landanna hafa bjargað mörgum bönkum frá sömu örlögum og þeir íslensku lutu. Árni Páll hefur ekkert um þetta frétt og vill endilega endurreisa banka- og útrásarruglið með nýjum gjaldmiðli. Jafnvel með inngöngu í ESB, fengist sá gjaldmiðill ekki fyrr en eftir áratugi, en það stoppar ekki Árna Pál í fagurgalanum.
Alltaf léttur og fyndinn, hann Árni Páll. Það má hann eiga.
![]() |
Nú þarf að velja rétt |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 15:10 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
8.10.2009 | 13:18
Útskýring Kristjáns mistókst
Kristján Gunnarsson, formaður Starfsgreinasambandsins, var að flytja pólitíska barátturæðu fyrir endukjöri sínu í embætti og eins og vinstri manni sæmir, falsar hann allar staðreyndir um orsök fjármálahrunsins á síðasta ári og kennir "frjálshyggjutilraun síðustu tveggja áratuga" um hvernig fór.
Ekki útskýrir hann það nánar, eða sýnir fram á hvaða hugmyndafræði brást, því efnahagshrunið einskorðast ekki við Ísland, heldur varð það um nánast allan heim og hvergi annarsstaðar í veröldinni, en á Íslandi, dettur nokkrum manni í hug að kenna stjórnmálamönnum, hvað þá einstökum stjórnmálaflokkum um ástandið, enda ríkisstjórnir samsettar úr öllu litrófi stjórnmálanna við völd í hinum ýmsu löndum.
Það sem var verra hér á landi, en vísast annarsstaðar, var að stærstum hluta banka- og braskfyrirtækja var stjórnað af sið- og lögblindum glæframönnum, og starfsemi þeirra má helst líkja við skipulagða glæpastarfsemi erlendis, eins og Mafíuna og önnur slík glæpafélög, sem fæst eru þó skráð sem hlutafélög, eða einkahlutafélög, eins og þau Íslensku.
Að bendla slíka starfsemi við pólitík er gjörsamlega út í hött og þeim til skammar, sem það stunda.
Formaður Starfsgreinasambandsins er maður að minni eftir þessa framboðsræðu.
![]() |
Tilraunin mistókst með herfilegum afleiðingum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
8.10.2009 | 08:20
Gagnlegur þingflokksfundur
Ráðherrar draugaríkisstjórnarinnar hafa átt "gagnlega fundi" út um allar jarðir undanfarið, eins og bloggað var um hérna fyrir stuttu, en árangur "ganglegu fundanna" hefur enginn orðið, annar en sá að það þurfi að halda fleiri "ganglega fundi".
Í gærkvöldi hélt þingflokkur VG afar "ganglegan" fund um þá "gagnlegu" fundi sem Steingrímur J., fjármálajarðfræðingur, átti við hina ýmsu fulltrúa herraþjóðanna, Breta og Hollendinga, og virðist niðurstaða þeirra allra hafa verið sú, að funda þyrfti fljótlega aftur, til að reyna að þoka málum áfram.
Svipuð niðurstaða varð á þingflokksfundi VG, eða eins og Ögmundur, brottrekinn heilbrigðisráðherra, sagði eftir fundinn: "Aðspurður sagði hann þó að ekkert nýtt hefði komið fram á fundinum sem gerði honum auðveldara að styðja málstað ríkisstjórnarinnar í Icesave-málinu. Nei, það var ekki. En það var heldur ekkert sem kom fram sem gerði málið verra í mínum augum.
Ekki er hægt að lýsa niðurstöðu "gagnlegs" fundar betur en þetta.
![]() |
Búið að lægja ólguna |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 08:32 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)