27.9.2010 | 08:52
Skíðaskálasnobb
Ágúst Guðmundsson, Bakkabróðir, hefur átt í erfiðleikum með að fjármagna skíðakofann sinn í frönsku Ölpunum, en bankinn var búinn að gjaldfella ellefuhundruðogfimmtán milljóna króna lán, sem hann hafði tekið til kaupa á kofanum. Áður hafa birst fréttir af basli Jóns Ásgeirs í Bónus með fjármögnun á sínum skíðakofa á svipuðum slóðum, en að lokum hljóp eiginkona hans undir bagga með honum og snaraði út tæplega tveim milljörðum króna til að forða skíðaathvarfinu frá uppboði.
Keppni útrásargarkanna um hver gat sýnst stærstur og ríkastur er sprenghlægileg fyrir þá sem með fylgjast af hliðarlínunni, en sýndarmennskukeppnin snýst um að "eiga" flottustu einkaþotuna, skíðahallir, lúxusíbúðir, lúxusbíla, snekkjur og sumarhallir. Allt væri þetta í stakasta lagi, ef þessi gengi ættu eitthvað í þessum lúxus öllum, en ekki er það svo gott, því allt er þetta skuldsett upp fyrir rjáfur og mest af fjármálavitleysum þessara auraapa hefur lent í fanginu á lánadrottnum þeirra viða um heim og almenningi á Íslandi.
Greinilegt er að snobbið og mikilmennskubrjálæðið hefur verið alveg gengdarlaust hjá þessum "köppum" og t.d. algerlega óskiljanlegt hvað þeir hafa haft að gera með eins til tveggja milljarða króna skíðahallir til að dvelja í nokkrar helgar á vetri og álíka sumarhallir til að eyða í nokkrum sumarhelgum.
Þessir íslensku auðrónar eru skólabókardæmi um hvernig menn verða af aurum apar.
![]() |
Ágúst nær sátt í skuldamáli |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 09:47 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
26.9.2010 | 12:35
Talaði Rannsóknarnefnd Alþingis ekki skýrt?
Atlanefndin virðist gera ráð fyrir því að niðurstaða Rannsóknarnefndar Alþingis sé eitthvað óskýr í hugum fólks, en Atlanefndin sér ástæðu til þess að gera tillögu um að Alþingi skýri niðurstöðurnar nánar, t.d. með því að benda sérstaklega á eftirfarandi í ályktun sinni: "Auk þess leggur þingmannanefndin til að Alþingi álykti að skýrsla rannsóknarnefndar Alþingis sé áfellisdómur yfir stjórnvöldum, stjórnmálamönnum og stjórnsýslu, verklagi og skorti á formfestu."
Svona ályktun frá Alþingi er hálfhláleg, því þingið þarf ekki og á ekki að túlka niðurstöður Rannsóknarnefndarinnar, þær standa algerlega fyrir sínu, einar og sér og þurfa engar ályktanir frá Alþingi, þær eru alveg skýrar og öllum skiljanlegar.
Í sama anda er víðáttuvitlaus hugmynd Ólínu Þorvarðardótturog Skúla Helgsonar, í þá veru að Alþingi samþykki vítur á alla ráðherra, þingmenn og aðra, sem við störf voru á árunum 2001-2008 vegna þeirrar ábyrgðar sem þeir báru á þróun þjóðfélagsins á þessum árum. Þessir þingmenn hljóta þá að vilja setja það fordæmi, að við hver einustu ríkisstjórnarskipti álykti nýr meirihluti um störf og ábyrgð stjórnarinnar á undan og fordæmi hana fyrir að hafa haft einhverja aðra stefnu, en nýjasti meirihlutinn.
Alþingi er ekki dómstóll, heldur lagasetningarsamkoma. Þingmenn þurfa sjálfir að fara að skilja hlutverk sitt og halda sig við það. Annað hlýtur að teljast vítavert.
![]() |
Áfellisdómur yfir stjórnvöldum og stjórnmálamönnum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 12:36 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
24.9.2010 | 19:22
Ingibjörg sýnir fram á fáránleikann
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, fyrrverandi utanríkisráðherra, hefur sent öllum þingmönnum greinargerð vegna fyrirhugaðrar stefnu á hendur henni fyrir Landsdóm og verst hún fimlega öllum ásökunum, sem á hana eru bornar og gagnrýnir fulltrúa Samfylkingarinnar í Atlanefndinni harðlega.
Í ákæru Atlanefndarinnar er Ingibjörg ásökuð um að hafa leynt því sem rætt var á fundi þann 7. febrúar 2008 með seðlabankastjórum fyrir Björgvini G., fyrrv. viðskiptaráðherra, en Ingibjörg upplýsir í bréfi sínu, að hún hafi ekki eingöngu upplýst Björgvin um fundinn, heldur allan þingflokkinn og síðar hafi hún, Björgvin, Geir H. og Árni Matt. fundað um það sem þar hefði komið fram, ekki einu sinni, heldur tvisvar, þannig að Björgvini var fullkunnugt um allt sem var verið að ræða um þessi mál, á þessum tíma.
Ekki er nóg með að Björgvin hafi vitað um efni fundarins, heldur vissu Jóhanna Sigurðardóttir og Össur Skarphéðinsson allt um málið og raunar þingflokkurinn allur, eins og áður sagði. Hafi eitthvað verið saknæmt við viðbrögð, eða viðbragðsleysi í kjölfar fundarins, þá eru Jóhanna og Össur algerlega samsek Ingibjörgu og jafnvel þingmennirnir allir, því hafi þurft að koma til einhverra lagabreytinga, hefur það verið á ábyrgð þingsins.
Allt sýnir þetta í hnotskurn á hve veikum grunni ákærurnar á ráðherrana eru byggðar og líkur á sýknu fyrir Landsdómi miklu meiri en að sekt yrði sönnuð og dómur felldur yfir ráðherrunum.
Þingmenn, sem hugsanlega ættu að teljast samsekir, ef einhver sekt er fyrir hendi, geta varla verið í aðstöðu til að ákæra aðra fyrir hluti, sem þeir hefðu sjálfir átt að bregðast við, ekki síður en ráðherrarnir.
![]() |
Hefði farið gróflega út fyrir valdsviðið |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
24.9.2010 | 14:09
Skattahækkanabrjálæðinu linnir ekki
Starfshópur Steingríms J., undir forsæti Indriða, skattaóða, hefur skilað tillögum sínum til frekara skattahækkunarbrjálæðis, sem greinilega ágerist með hverju árinu sem núverandi ólánsríkisstjórn situr. Í þeim úrdrætti úr tillögum nefndarinnar, sem birtist á mbl.is rekur maður strax augun í nokkrar fullyrðingar, sem ekki standast og nægir að benda á t.d. þetta:
"Þá verði fjármagnstekjuskattur og skattur á hagnað lögaðila enn lægri en í flestum öðrum löndum. Skattur á arð á Norðurlöndunum sé frá 28% (Finnland, Noregur) upp í 43% (Danmörk) og meðaltalið í OECD‐ ríkjunum tæp 30% en yrði miðað við þessar hugmyndir 20%." Viða þetta er það að athuga, að hér á landi er fjármagnstekjuskattur lagður á verðbætur, sem er engin raunveruleg ávöxtun fjármuna, til viðbótar við vaxtatekjur, en erlends er eingöngu lagður skattur á raunverulegar vaxtatekjur og sums staðar eru vaxtagjöld frádráttarbær, sem ekki er hérlendis.
Einnig má benda á þessa klausu: "Auðlegðarskattur, 1,25% skattur á eignir einstaklinga yfir 90 milljónir og hjóna yfir 120 milljónir, var tekinn upp á síðasta ári. Starfshópurinn telur mögulegt að hækka núverandi skatthlutfall auðlegðarskattsins eitthvað eða lækka fríeignamarkið. Hækki auðlegðarskattur í 1,5% myndi það skila ríkinu um 800 milljónum króna í tekur.
Segir hópurinn, að bent hafi verið á að hækkun auðlegðarskatts kynni að leiða til þessa að efnafólk kæmi fé sínu fyrir erlendis eða flytti jafnvel úr landi. Þá þurfi að hafa í huga að vistun eigna í öðrum löndum sé engin trygging fyrir lægri skattgreiðslum, enda skattar á fjármagnstekjur víðast hvar hærri en á Íslandi." Hér er nánast um hreinar blekkingar að ræða, þar sem auðlegðarskattur leggst á hreina eign, en ekki tekjur af eigninni. Því getur fólk búið í dýru, en skuldlitlu húsi, án þess að hafa af því neinar tekjur, en greiðir auðlegðarskatt engu að síður. Ef eignin er í formi eigna sem gefa af sér tekjur, eru þær skattlagðar eins og fjármagnstekjur og þá bæði greiddur auðlegðarskattur og fjármagnstekjuskattur af slíkum tekjuskapandi eignum. Eignaskattar tíðkast ekki víða í nágrannalöndunum, ef þá nokkursstaðar.
Til viðbótar á svo að hækka fyrirtækjaskatta, áfengis- tóbaks- og kolefnisskatta, en allir skattar á fyrirtæki fara beint út í verðlagið, þannig að allar slíkar hækkanir eru óbeinar skattahækkanir á einstaklinga, en dulbúnar til þess að reyna að blekkja almenning til að sætta sig betur við þessar brjálæðislegu skattpíningarhugsun.
Ofan á allt saman fara allar þessar skattahækkanir beint út í neysluverðsvísitöluna, magna verðbólguna og hækka öll verðtryggð lán í landinu. Finnst einhversstaðar einhver, sem styður þessa stefnu?
![]() |
Tillögur um hærri skatta |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)
24.9.2010 | 13:20
Leysa uppboðin fólkið úr snörunni?
Undanfarna mánuði hefur fjöldi íbúða verið boðnar upp af sýslumönnum vegna skulda sem íbúðareigendurnir hafa ekki ráðið við að standa í skilum með, bæði vegna mikilla hækkana á lánunum vegna verðtryggingar eða gengisbreytinga.
Á suðurnesjum einum saman er útlit fyrir að fimm hundruð fjölskyldur missi íbúir sínar af þessum sökum og til viðbótar öðrum erfiðleikum er mesta atvinnuleysi á landinu einmitt í þeim landshluta og sama hvað hefur verið reynt til að efla atvinnulífið á þeim slóðum, þá hefur það lítið þokast vegna einarðar afstöðu ríkisstjórnarinnar gegn allri atvinnuuppbyggingu á svæðinu. Minnkun atvinnuleysisins væri hins vegar líklegasta ráðið til að draga úr þessum skelfilegu nauðungarsölum, sem jafnvel verða til að tvístra fjölskyldum og bæta a.m.k. ekki möguleika þeirra til eðlilegs lífs.
Þegar fjölskyldur eru komnar með húsnæðislánin sín í slík vanskil, að leiði til uppboðs, er líklegt að ýmsar aðrar skuldir hafi einning hlaðist upp og ekki hverfa þær við uppboðin. Elti aðrir lánadrottnar fólkið eftir þessi uppboð með skuldir, sem engin leið er að borga, endar sá eltingaleikur væntanlega með persónulegu gjaldþroti viðkomandi einstaklinga, sem aftur verður til þess að sá hinn sami verður nánast efnahagslegur útlagi í eigin landi í a.m.k. tíu ár og jafnvel geta lánadrottnarnir haldið honum í heljargreipum til æviloka, hafi þeir smekk og geð til slíks.
Uppboðin leysa því fólk ekki úr skuldasnörunni, en herðir hana einungis ennþá fastar um háls þeirra , sem lenda í þessu skuldavíti. Norræna velferðarstjórnin hefur að eigin sögn slegið skjaldborg um heimilin í landinu, en almenningur veltir fyrir sér hvaða heimili falli undir þá borg, því flestum finnst þeir hafa algerlega lokast utan hennar.
![]() |
Fjöldi heimila á uppboð |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
24.9.2010 | 09:44
Matarúthlutunaraðferðum verður að breyta
Matar- og fataúthlutanir til fátæks fólks eru ekki nýjar af nálinni á Íslandi, því Mæðrastyrksnefnd Reykjavíkur var upphaflega stofnuð 20. apríl 1928 og síðan var félagið endurskipulagt og gert að sjálfstæðri stofnun 1939, þannig að aðstoð félagsins við þá sem aðstoð þurfa teygir sig aftur fyrir lýðveldisstofnun. Síðan hafa fleiri félagasamtök bætst við, t.d. Hjálpræðisherinn, Hjálparstofnun kirkjunnar, Samhjálp, Fjölskylduhjálp Íslands o.fl.
Það er því alrangt, sem fram kemur frá "fræðimanninum" Hörpu Njáls, eða eins og segir í fréttinni: "Harpa Njáls félagsfræðingur segir að yfirvöld hafi búið vandamálið til á 10. áratugnum." Ekki verður séð til hvers verið er að blanda pólitískum lygaáróðri inn í þetta vandamál, sem því miður hefur verið viðvarandi í þjóðfélaginu lengi og aukist mikið eftir efnahags- og bankahrunið.
Aðferðin við úthlutanir er hins vegar gölluð og niðurlægjandi fyrir þá sem þurfa að nýta sér hana, en nokkurra tíma biðraðir í kulda og trekki eru ekki sæmandi og nýja aðferð við þessa aðstoð og aðstöðuna til hennar þarf að stórbæta. Reykjavíkurborg hlýtur að geta lagt til rúmgott húsnæði undir þessa starfsemi með rúmgóðum biðsal fyrir skjólstæðingana og góðri aðstöðu til úthlutunar þeirrar vöru, sem til afhendingar er hverju sinni.
Einnig er umhugsunarvert hvort ekki sé hægt að úthluta skjólstæðingunum ákveðnum tímum til að mæta á, þannig að hægt væri að dreifa álaginu meira og hlyti slíkt að vera bæði þeim sem að þessum málum vinna og þeim sem aðstoðar njóta til hagræðis.
Eina varanlega lausnin er hinsvegar að eyða vandamálinu og fátæktinni algerlega, en þar sem slíkt er líklega fjarlægur draumur, verður að vinna að úrbótum á núverandi aðferðum við þessa aðstoð.
![]() |
Matargjafirnar einsdæmi á Norðurlöndum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (9)
23.9.2010 | 15:13
Loksins góð frétt
Loksins birtist jákvæð frétt úr atvinnulífinu, en nú mun vera búið að ganga frá samningum milli þeirra aðila, sem að því koma, svo Rio Tinto Alcan geti hafist handa við að uppfæra búnað og auka framleiðsluna í Straumsvík og mun fyrirtækið verja til þess fjörutíuogeinum milljarði króna.
Á framkvæmdatímanum mun þetta verk skapa nokkur hundruð störf og blása nokkru lífi í efnahagsmál þjóðarinnar á meðan unnið verður að þessu, en afkastaaukningin verður að fullu komin til framkvæmda á árinu 2014. Vonandi hefur ríkisstjórnin engin ráð til að stöðva, eða tefja, þessa framkvæmd, en eins og allir vita, hefur hún barist eins og grenjandi ljón gegn hvers konar atvinnuuppbyggingu í landinu frá því að hún komst til valda og ekki allta beitt til þess löglegum meðulum og nægir að benda á umhverfisráðherrann því til sönnunar.
Nú þarf að leggja alla áherslu á, að koma af stað framkvæmdum við álverið í Helguvík og stóriðju við Húsavík. Ennfremur verður að greiða fyrir uppbyggingu skurðsjúkrahúsa í Mosfellsbæ og í Reykjanesbæ, sem fyrirhuguð eru til þjónustu við útlendinga, en ríkisstjórnin hefur, samkvæm sjálfri sér, einnig tafið og þvælst fyrir þeim áformum.
Það munar um hvert einasta starf, sem tekst að skapa og því ber að fagna þessum framkvæmdum í Straumsvík og vona að þær séu aðeins upphafið að miklu meiri atvinnusköpun.
![]() |
41 milljarður í framkvæmdir |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
23.9.2010 | 13:35
Gnarr-áhrifin
Á hundraðasta degi sínum í embætti borgarstjóra gortar Jón Gnarr sig af því að hann sé búinn að hafa slík áhrif á veröldina, að hann sé orðinn nýtt hugtak í stjórnmálafræði, eða "The Gnarr-effect", sem væntanlega á að þýða yfir á íslensku sem "Gnarr-áhrifin".
Hvaða áhrif Jón Gnarr telur sig hafa haft á heimsstjórnmálin liggur ekki alveg fyrir, en væntanlega er það þá að hann sé búinn að sýna og sanna, að uppistandari sem ekkert hefur fram að færa í stjórnmálum og er algerlega ófær um að gegna stjórnunarstarfi, getur tekist að láta kjósa sig í æðstu embætti, ef aðstæður og andrúmsloft í þjóðfélaginu er hentugt fyrir slíkan fíflagang.
Að sýna fram á að hægt sé að ná svo ótrúlegum tökum á hluta kjósenda er auðvitað rannsóknarefni út af fyrir sig og að því leyti gæti þetta fordæmi úr borgarstjórnarkosningunum síðustu haft áhrif á stjórnmálafræðin, en öfugt við það sem Jón Gnarr virðist halda, þá er ekkert jákvætt við þessi áhrif, heldur eru þau dæmi um skammarlega áhrifagirni kjósenda og öllum hlutaðeigandi til vansa.
Borgarstjórinn virðist ekki hafa skilning á Gnarr-áhrifunum, frekar en borgarmálunum.
![]() |
The Gnarr-effect" |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (20)
23.9.2010 | 07:43
Alþingi kjósi líka um Jóhönnu og Össur
Mogginn veltir því upp í morgun, að líklegt sé að þegar tillagan um Landsdóm komi til afgreiðslu á Alþingi, verði greidd atkvæði um hvern ráðherra sérstaklega, sem fyrirhugað er að stefna fyrir dóminn, þ.e. þau Geir H. Haarde, Ingibjörgu Sólrúnu, Árna Matt. og Björgvin G. Sigurðsson.
Dálítið virkar það þó einkennilega, að aðskilja ráðherrana þannig í atkvæðagreiðslunni, en þó má réttlæta það með því, að þingmönnum þyki líklegra að sumir þeirra þeirra, en ekki allir, verði sakfelldir fyrir Landsdómi. Slíkt er þó vandséð, þar sem ásakanir Atlanefndarinnar á þá alla snúast að mestu um sömu ákæruatriði um vanrækslu og aðgerðarleysi.
Ekki verður öðru trúað, en að breytingartillaga komi fram í nefndinni, eða á Alþingi, um að bæta nöfnum Jóhönnu Sigurðardóttur og Össurar Skarphéðinssonar á lístann yfir þá ráðherra, sem atkvæði verða greidd um að stefna fyrir Landsdóminn, enda voru þau bæði miklir þátttakendur í öllum fundum og ákvörðunum (ákvarðanaleysi) síðustu ríkisstjórnar.
Verði einhverjum af þessum ráðherrum stefnt fyrir dóminn en öðrum ekki, yrði slík afgreiðsla Alþingis bæði óréttlát og ósanngjörn og myndi eingöngu ráðast af pólitískum ofsóknum á hendur einstaka mönnum, en ekki heiðarlegri tilraun til að gera upp við "hrunstjórnina".
Uppgjör við fortíðina verður að byggjast á heiðarlegum rannsóknum, en ekki pólitískum duttlungum þeirra þingmanna, sem svo vill til að sitja á Alþingi núna.
![]() |
Kosið um hvern og einn |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 07:44 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (17)
22.9.2010 | 14:02
Pálmi og Jón Ásgeir pumpuðu loftinu í Icelandair
Það hlýtur að vera nokkuð óvenjulegt að forstjóri eins fyrirtækis skuli halda fyrirlestur á fundum Samtaka um verslun og þjónustu um rekstur helsta keppinautinn á markaðinum og kryfja þar bæði eignir, skuldir, rekstur og eigið fé. Þetta átti sér þó stað nýlega, þegar Matthías Imsland, forstjóri Iceland Express fjallaði á fundi samtakanna um Icelandair, þó eðlilegra hefði mátt telja að hann fjallaði um sitt eigið félag, tilurð þess og viðskiptafléttur með það fyrir nokkrum árum, misfallegar og -heiðarlegar.
Í fréttinni er þetta sagt m.a: "Slík bókfærsla rifji að mati Matthíasar upp minningar frá árinu 2007 þegar það hafi tíðkast að setja loft í efnahagsreikninga félaga. Viðskiptavild upp á 16 til 18 milljarða króna og réttur á flugvallarstæðum séu bókfærðar sem óefnislegar eignir í bókum Icelandair. Viðskiptavildin sé metin á himinháa fjárhæð og sé til að mynda mun meiri en hjá British Airways þar sem hún sé 40 milljónir punda eða á áttunda milljarð króna."
Matthías hefði mátt minnast á það, að á þessum tíma átti Pálmi í Iceland Express stóran hlut í Icelandair, ásamt "viðskiptafélaga" sínum Jóni Ásgeiri í Bónus og fleirum og þeir afrekuðu m.a. að kaupa og selja flugfélagið Sterling á milli sín og blása upp efnahagsreikninga félaganna á víxl, með hækkun á mati flugfélagsins úr 5 milljörðum króna í tuttugu milljarða á örfáum mánuðum, þrátt fyrir að Sterling væri rekið með gríðarlegu tapi allan tímann og færi svo á hausinn nokkru síðar.
Einnig afrekuðu þeir félagar að skipta upp félaginu FL Group (síðar Stoðir) og selja frá því eignir, t.d. Icelandair á rugluðu verðmati og létu fylgja því svo miklar skuldir, að vonlaust var að félagið gæti nokkurn tíma ráðið við þær. Það var einmitt á þessum tíma sem "loftið" kom inn í efnahagsreikning félagsins vegna ævintýramennsku Pálma og félaga.
Pálmi kom síðan Iceland Express og Asterus undan þrotabúi Fons á spottprís og allt bendir til þess að fléttan með Icelandair hafi verið til þess gerð að koma því félagi á hausinn, svo Pálmi sæti einn að markaðinum með sitt félag, þ.e. Iceland Express.
Svona gerðust nú kaupin á eyrinni á "velmekatarárum" Jóns Ásgeirs, en velmektarár Pálma í Iceland Express virðast alls ekki liðin.
![]() |
Icelandair fullt af lofti |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)