Bloggfærslur mánaðarins, nóvember 2009
17.11.2009 | 14:06
Samþykkja þrælavist, sem þjóðin mun ekki lifa af
Lilja Mósesdóttir og Ögmundur Jónasson virðast ætla að styðja það, að þjóðin verði hneppt í þrælaánauð fyrir Breta og Hollendinga til næstu áratuga, vegna Icesave skulda Landsbankans, þvert á sína fyrri afstöðu til málsins.
Það merkilega er, að þau gera sér ennþá grein fyrir því, að íslenskir skattgreiðendur bera enga ábyrgð á þessu fjármálarugli bankamannanna og þar að auki viðurkenna þau, að skattgreiðendur muni tæpast standa undir þessum þrælaskuldbindingum, nema með því að lepja dauðann úr skel um áratuga skeið.
Þetta sést vel á áliti þeirra, sem fylgir meirihlutasamþykki Fjárlaganefndar Alþingis, þar sem fjallað er um skuldaklafa ríkissjóðs, en þar segir m.a: Ósjálfbærni skulda mun óhjákvæmilega leiða til greiðslufalls, en þá þurfa íslensk stjórnvöld að biðja kröfuhafa um hagstæðari endurfjármögnun á skuldum hins opinbera, þ.e. með lægri vöxtum og lengingu lánstímans. Í þessu felst mikil áhætta því að erfitt er geta sér til um viðbrögð kröfuhafa við slíkri beiðni," segir í álitinu. Þar segir einnig, að draga þurfi verulega úr einkaneyslu og samneyslu á næstu árum til að þjóðin geti staðið undir greiðslubyrðinni.
Þessi afstaða minnir á atkvæðagreiðsluna um aðildarumsókn Íslands að ESB, en þá greiddu nokkrir þingmenn VG með umsókninni, en lýstu jafnframt yfir að þeir væru samt alfarið á móti aðild að ESB.
Nú virðast þeir ætla að samþykkja að hneppa þjóðina í þá þrælavist, sem þeir vita fyrirfram að hún muni ekki lifa af.
![]() |
Ekki hætta á greiðsluþroti |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
17.11.2009 | 13:12
Tilraunastarfsemi
Enn er ríkisstjórnarnefnan við sama heygarðshornið varðandi þreifingar sínar um aðgerðir í þeim málum, sem hún er að kljást við. Fyrst er alltaf lekið upplýsingum um, hvað stjórnin sé með á prjónunum og svo er dregið í land, eftir að almenningur hefur kveðið hugmyndirnar í kútinn og nýjar og svolítið mildari tillögur kynntar.
Þessi leikur hefur verið leikinn frá upphafi stjórnarsamstarfsins, nú síðast í skattamálunum. Fyrst voru látnar leka út tillögur um gífurlegar skattahækkanir á millitekjufólkið og svo eftir mikil mótmæli í þjóðfélaginu eru kynntar nýjar tillögur, sem eiga að koma sér betur fyrir þann hóp og þá er reiknað með, að fólk taki endanlegu breytingunni betur, fyrst hún er ekki jafn skelfileg og þær sem voru látnar leka.
Félagsmálaráðherranefnan er nú að kynna arfavitlausar tillögur um að svipta ungt fólk, á aldrinum 18-24 ára helming atvinnuleysisbóta sinna, til þess að hægt verði að styrkja það til að sækja námskeið á atvinnuleysistímanum. Hvers vegna manninum dettur ekki bara í hug að setja námskeiðin af stað og bjóða svo unga fólkinu að kaupa aðgang að þeim, er ráðgáta sem er eins skrýtin og margt annað í kýrhaus ríkisstjórnarinnar.
Þetta eru reyndar hefðbundin vinnubrögð, sem auðvitað verða dregin til baka, þegar einhver verður búinn að útskýra fyrir Árna Páli, hversu vitlausar hugmyndir hans eru.
![]() |
Skattatillögur kynntar á morgun |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
17.11.2009 | 10:08
Krónan eða Evrutenging
Aðalhagfræðingur Nordea bankans hefur látið hafa þetta eftir sér: "Erfiðleikarnir á Íslandi eru barnaleikur í samanburði við ástandið í Lettlandi," og skýringin er ekki flókin, að hans mati, eða eins og bankinn segir: "Nordea segir að á Íslandi hafi gengisfall íslensku krónunnar örvað útflutning og ferðaþjónustu og þannig dregið úr áhrifum bankahrunsins. Lettnesk stjórnvöld hafa hins vegar haldið gengi gjaldmiðilsins stöðugu en brugðist við fjármálakreppunni með niðurskurði hjá hinu opinbera. Margir telja þó að ekki verði hægt að frysta gengið til lengdar og hrynji það munu erlendir bankar, sem eiga talsverðar eignir í Lettlandi, tapa miklu."
Hvað skyldi oft þurfa að benda á muninn á afleiðingum hrunsins á efnahag Íslands og ýmissa landa ESB, sem eru svo óheppin að hafa Evruna, eða fasttengingu við hana, til þess að ESB sinnar hætti stuðningi sínum við inngöngu landsins sem smáhrepps í stórríki ESB?
Útflutningur Lettlands hefur nánast hrunið vegna fastgengisins þar í landi á meðan útflutnings- og ferðaiðnaður blómstrar, sem aldrei fyrr á Íslandi og munu verða þær atvinnugreinar, sem munu koma Íslandi út úr kreppunni áður en langt um líður. Hefðu þessar greinar búið við fast Evrugengi hefðu Íslendingar nú verið jafn illa, eða ver settir en Lettar og þykir þó flestum nóg um ástandið hér á landi.
Enn og aftur mega Íslendingar þakka sínum sæla fyrir að hafa sjálfstæðan gjaldmiðil og að ekki skuli enn hafa tekist að flytja þjóðina hreppaflutningi inn í sambandsríkið ESB.
Viðbót: Fróðlega frétt um Evruna og áhrif hennar á atvinnulíf Evrópu má lesa hérna
![]() |
Dökkt útlit í Lettlandi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 13:24 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
17.11.2009 | 08:48
Svona fór um sjóferð þá
Upphaf Íslenskrar erfðagreiningar var mikið ævintýri á fleiri en einn veg, misgóðan. Gífurlegar vonir voru bundnar við að fyrirtækið myndi verða stórveldi á sviði erfðatækni og lyfjaþróunar og ÍE varð fyrsta fyrirtækið, sem Hannes Smárason, þá fjármálastjóri ÍE, tókst að selja fyrir stjarnfræðilegar upphæðir á "gráa" hlutabréfamarkaðinum. Hann hefur síðan átt skrautlega sögu í öllum fyrirtækjum, sem hann hefur komið nálægt.
Öll árin, frá stofnun, hafa komið reglulegar tilkynningar frá félaginu, um að alveg á næstunni muni "afurðir félagsins" fara að skila gríðarlegum tekjum, en jafnoft hefur lítið, sem ekkert gerst á því sviði. Kári Stefánsson, stofnandi og forstjóri félagsins, hefur verið talsmaður félagsins öll þessi ár og tekist furðu vel að halda því gangandi, þrátt fyrir takmarkaðan sýnilegan árangur af starfseminni.
Nú lýtur út fyrir, að félagið verði keypt, eða yfirtekið, af bandarískum fjárfestum, sem: "Samkvæmt upplýsingum frá Íslenskri erfðagreiningu hyggjst tilboðsgjafar í reksturinn halda starfsemi félagsins í sama horfi og verið hefur," eins og segir í fréttinni.
Auðvitað verður rekstrinum ekki haldið "í sama horfi og verið hefur", enda væri félagið ekki í núverandi stöðu, ef reksturinn hefði staðið undir sér, en það hefur hann aldrei gert, heldur þvert á móti verið geysi mikið tap á honum alla tíð.
Líklegast er, að reksturinn hérlendis leggist niður og verði sameinaður öðrum, líklegast í Bandaríkjunum.
Þrátt fyrir allt, verður mikil eftirsjá af þessum vonarneista íslensks hugvits.
![]() |
Íslensk erfðagreining seld |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
16.11.2009 | 21:41
Reynt að spila á samúðina
Til skamms tíma sáust ekki hrokafyllri menn í fréttaviðtölum, en þeir Jóhannes og Jón Ásgeir í Bónus, eins og þeir vilja gjarnan láta kalla sig. Á þeim tíma höguðu þeir sér eins og mennirnir sem valdið hefðu og gerðu jafnvel tilraun til að fella ríkisstjórn Íslands, með áróðri og auglýsingum í fjölmiðlum sínum.
Í þá daga töldu þeir sig hafa svo mikil völd og áhrif, að þeir töluðu niður til allra og reyndi að niðurlægja alla, sem þeir töldu ekki vera fullkomlega á sínu valdi, þar með talinn forsætisráðherra þjóðarinnar, að ekki sé minnst á minni spámenn. Enga samkeppni þoldu þeir við rekstur sinn og vildu yfir öllu gína og enduðu sem einhverjir mestu skuldakóngar Íslandssögunnar, sem þó greiddu aldrei krónu til baka af lánum sínum og hafa skilið eftir sig sviðna jörð, bæði innanlands og utan.
Í kvöld kom Jóhannes fram í Kastljósi og reyndi að hverfa til þess tíma, er hann hafði sæmilegt álit meðal almennings og reyndi nú að spila á samúð þess fólks, sem þarf að líða fyrir gerðir þeirra feðga og fleiri um mörg ókomin ár. Nú talaði hann nánast eins og beiningamaður sem betlar sér fyrr mat, þóttist vera lítilátt og heiðarlegt góðmenni, en var einungis aumkunnarverður.
Þrátt fyrir langa skólagöngu hjá almannatengslafyrirtækjum við að læra að endurheimta velvild þjóðarinnar, er ýmyndin orðin svo ónýt, að upp á hana verður varla lappað héðan af.
"Jóhannes og Jón Ásgeir í Bónus" er nánast orðið skammaryrði.
![]() |
Munu ekki þurfa að afskrifa neitt |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
16.11.2009 | 16:10
Árni Páll sár á bakinu, en sáttur við svipuna
Árni Páll, félagsmálaráðherralíki, deilir ekki þeirri skoðun með fyrrverandi formanni sínum, að Íslendingar hafi látið Breta og Hollendinga tukta sig eins og sakamenn vegna Icesave skulda Landsbankans.
Ekki er ljóst hvort Árni byggir skoðun sína eingöngu á því, að hann og félagar hans í Samfylkingunni vilji öllu til fórna til þess að koma landinu að, sem hreppi í stórríki ESB, eða hvort hann er orðinn svo sár á afturendanum vegna högga þrælapískaranna í London og Haag.
Hvort heldur sem er, sagði Árni á Alþingi í dag: ,,Við höfum náð viðurkenningu á því að greiðslur á þessum skuldbindingum verði ekki þannig að þær verði okkur sem þjóð um megn að standa undir og við höfum tryggt að nágrannaríkin viðurkenna tilvist vafa um þá skuldbindingu sem að baki liggur."
Hálfkveðnar vísur í þessu máli duga ekki lengur. Árni Páll verður að útskýra hvar mörkin liggja milli þess að Icesaveþrældómur Íslendinga verði þeim viðráðanlegur, eða verði þeim sem þjóð um megn að standa undir.
Er ásættanlegt, að þjóðin sem heild búi við fátækt í tuttugu ár, til þess að greiða þennan þrælatoll og nánast allar útflutningstekjur þjóðarinnar fari til þrælapískaranna á sama tíma?
Hvaða hlutfalli útflutningsteknanna árlega, telur Samfylkingin að sé fórnandi fyrir aðild að ESB?
![]() |
Sáttur við lyktir Icesave |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
16.11.2009 | 13:31
Harkan vex í undirheimunum
Harkan í undirheimunum vex stöðugt og nú virðist aðeins vera tímaspursmál, hvenær til skotbardaga kemur á götum borgarinnar á milli glæpahópa, eða glæpamanna og lögreglu. Nú eru grímuklæddir og vopnaðir menn farnir að banka uppá hjá fólki á nóttunni og skjóta á það sem fyrir verður og í dæmi árásarinnar í Seljahverfi virðist tilviljun ein hafa ráðið því, að húsráðandinn yrði ekki fyrir skotum.
Einnig berast þær fregnir frá Selfossi, að þar hafi verið gengið í skrokk á manni, sem glæpagengi taldi að sagt hefði til sín vegna fjölda afbrota á Suðurlandi. Tengt sama máli er handtaka manns í Þorlákshöfn, sem var að leita að manni til að misþyrma, en sá hafði borið vitni gegn sunnlensku glæpaklíkunni, sem reyndar er af erlendu bergi brotin og nýkomin til landsins.
Þessi aukna harka í undirheimunum kemur einnig fram í framgöngu íslenskrar mótorhjólaklíku, sem á sér þann draum æðstan, að verða fullgildur meðlimur Hells Angels, sem eru skipulögð glæpasamtök, með mikil ítök og yfirráð í fíkniefnamarkaði, t.d. á norðurlöndunum.
Skotbardagar á götum úti eru orðnir nánast daglegt brauð í Kaupmannahöfn, sérstaklega á Norðurbrú, þó þeir teygji anga sína í fleiri hverfi borgarinnar og raunar landsbyggðarinnar.
Verði ekki gripið til ennþá harkalegri aðgerða gegn þessum vágesti, gæti ástandið fljótlega orðið svipað í Reykjavík og það er í Kaupmannahöfn.
![]() |
Barði að dyrum og hóf skothríð |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
16.11.2009 | 11:28
Útrásar- og Nígeríusvindlarar
Guðmundur Baldursson, lögreglufulltrúi á Suðurnesjum, lýsir ákveðinni tegund peningasvika á eftirfarandi hátt: Þeir setja þá í umslag úr álpappír og sprauta töfravökva í það, setja það í frysti og taka svo eftir einhvern tíma út. Þá eru þeir orðnir að peningaseðlum, segir Guðmundur. Er þessari sýningu ætlað að sannfæra mögulega kaupendur. Þarna mun þó ekki vera á ferðinni svarti galdur eða efnafræðiundur heldur er einfaldlega annað umslag í frystinum, fullt af peningum."
Við fyrstu sýn, virðist Guðmundur vera að lýsa vinnubrögðum íslenskra banka- og útrásarsvindlara, en mun vera að lýsa einu afbrigði af svokölluðu Nígeríusvindli.
Nígeríusvindlararnir munu stundum hafa haft milljónir króna út úr fórnarlömbum sínum.
Banka- og útrásarsvindlararnir höfðu þúsundir milljarða út úr sínum fórnarlömbum.
Ekki er vitað hvernig Nígeríusvindlurunum helst á sínum feng, en hinum hefur haldist afar illa á sínum.
Margir þeirra njóta ennþá vinsælda og virðingar meðal landsmanna og spila á það traust við áframhaldand þeirrar iðju, sem svo vel hefur gengið undanfarin ár.
![]() |
Með Nígeríusvindl á prjónunum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
16.11.2009 | 09:03
Skattlagningarástríða
Ef eitthvað einkennir vinstri menn öðru fremur, er það stjórnsemi og óstjórnleg ástríða í að fá að ráðskast með annarra fé í formi skatta, auðvitað í nafni jöfnuðar og réttlætis. Þetta ótrúlega skattpíningarbrjálæði, sem nú er að birtast frá ríkisstjórninni, í sinni verstu mynd, virðist koma mörgum í opna skjöldu, en ætti auðvitað ekki að gera það, því þetta er nánast eina hugsjón og stefa vinstri manna, sem alls staðar birtist þar sem þeir komast til áhrifa.
Fyrir kosningar í vor, var því spáð á þessu bloggi, að kæmust vinstri flokkarnir til valda eftir kosningarnar, myndu allir skattar, sem nöfnum tjáir að nefna, veða hækkaðir og fundnir yrðu upp nýjir skattar af öllum gerðum, þar sem vinstri menn hafa endalaust hugmyndaflug, þegar að skattheimtu kemur. Engar umræður sköpuðust um þessi mál í vor og er það að hitta menn í bakið núna.
Spáin frá því í apríl s.l. er nú að rætast og reyndar kemur hún fram með miklu meira skattahækkanabrjálæði, en jafnvel þar var séð fyrir.
Það liggur í frjórra hugmyndaflugi vinstri mannanna í skattlagningarmálum, en þess sem bloggið skrifaði.
![]() |
Nýir skattar inni í myndinni |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
15.11.2009 | 23:39
Samstaða innan ríkisstjórnarinnar
Engin samstaða hefur fram að þessu verið milli ríkisstjórnarflokkanna og innan þeirra um nokkurt efni, sem máli hefur skipt og má þar nefna umsóknina um ESB, Icesavemálið, orku- og stóriðjumál, niðurskurð ríkisútgjalda eða stöðugleikasáttmálann, svo eitthvað sé nefnt.
En nú tilkynnir fjármálajarðfræðingurinn, að "ágæt" samtaða sé innan ríkisstjórnarinnar um skattahækkanir, aðeins sé eftir að útfæra skattahækkanabrjálæðið nánar, svo allir stjórnarliðar verði glaðir.
Þetta þar ekki að koma á óvart, því ef eitthvað getur sameinað vinstri menn, þá eru það skattahækkanir. Það eru þeirra ær og kýr og helsta lífsmottó, að skattleggja allt sem hugsanlega er hægt að skattleggja og skattleggja það mikið.
Engu máli skiptir hvort góðæri eða kreppa ríkir í þjóðfélaginu, þá eru skattahækkanir alltaf helsta baráttumál vinstri manna og þegar þeir komast í aðstöðu til að framkvæma þessa drauma sína, er það fyrir þeim eins og þegar barni er sleppt lausu í leikfangabúð.
Nú verður þessi vinstridraumur að martröð þjóðarinnar.
![]() |
Steingrímur: Ágæt samstaða um skattamál |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)