Ríkisstjórnin niðurlægir Kristján Möller

Fyrr í dag var greint frá því, að síðasta verk Kristjáns Möller í Samgönguráðuneytinu hafi verið að skrifa undir heimild til Flugmálastjórnar til að skrá herþotur hér á landi, með það í huga að þær yrðu gerðar út frá Keflavíkurflugvelli í leiguverkefni sem snúa að heræfingum.

Á ÞESSU bloggi í dag var velt upp þeirri spurningu, hvort fyrsta verk Ögmundar Jónassonar í ráðuneytinu yrði að afturkalla þetta síðasta verk Kristjáns og ekki leið á löngu, þar til í ljós kom að þær vangaveltur voru á rökum reistar.  Um leið og út spurðist um þessa leyfisveitingu, varð allt vitlaust innan VG, sem endaði með því að Jóhanna Sigurðardóttir neyddist til að gefa út yfirlýsingu með Steingrími J. um að ekkert samkomulag væri milli flokkanna um þetta mál og Ögmundur myndi "skoða málið" á næstunni.

Þar með má segja að búið sé að afturkalla leyfið og Kristján Möller verið niðurlægður af þessum fyrrum samráðherrum sínum og þar af var annar þeirra formaður þess flokks, sem Kristján hefur starfað fyrir frá því að hann var ungur "eðalkrati".

Í sjónvarpsfréttum kom fram í viðtali við Kristján, að hann hefði skrifað undir leyfið í fullu samráði við forsætis- og fjármálaráðherra og hefði ekki verið um neinn misskilning eða oftúlkun af hans hálfu á samkomulagi ráðherranna.

Ekki byrjar "nýja ríkisstjórnin" gæfulega.


mbl.is Segja ekkert samkomulag um herþotur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Er VG tilbúið að greiða Icesave fyrir ESBinnlimunina?

Eins og oftast áður koma fréttir af Icesavesvikum ríkisstjórnarinnar frá erlendum fréttastofum, því þrátt fyrir fögur fyrirheit um opnað og gagnsæja stjórnsýslu, þar sem öll mál væru uppi á borðum, þá bæði leynir stjórnin öllu sem máli skiptir fyrir þjóðinni eða fer með hreinan ósannindavaðal um þau mál, sem verið er að fjalla hverju sinni.

Nú koma þau tíðindi frá AP fréttastofunni, að krafa Breta og Hollendinga vegna Icesave sé óbreytt, þ.e. að íslenskir skattgreiðendur skuli settir í skattaþrældóm fyrir þessa kúgara, til áratuga, bæði vegna skuldar tryggingasjóðsins og vaxta á hana.  Í viðhangandi frétt segir m.a:  "Talsmaður hollenska fjármálaráðuneytisins, Niels Redeker, segir að gert sé ráð fyrir því að Íslandi muni endurgreiða lánið auk sanngjarna vaxta. „Íslandi ber lagaleg skylda til þess," segir hann í samtali við AFP fréttastofuna í dag."

Þarna fer Niels Redeker með algerlega staðlausa stafi, því meira að segja framkvæmdstjórn ESB hefur viðurkennt, að engin ríkisábyrgð skuli vera á tryggingasjóðum innan ESB og þar með ætti ekki að þurfa frekari vitna við í því efni, en raunar eru flestir lögfræðingar, innlendir og erlendir, sammála framkvæmdastjórninni að þessu leyti.

Einnig kemur fram í frétt AFP er Icesave eitt aðal ágreiningsefnið, sem standi í veginum fyrir viðræðum um innlimun Íslands í stórríki ESB.  Álfheiður Ingadóttir sagði í fréttum, eftir ráðherrahrókeringuna, að með henni væri allur ágreiningur innan VG lagður til hliðar og þar með yrði góður vinnufriður í ríkisstjórninni.

Á að skilja þessi orð hennar svo, að VG sé nú búið að samþykkja að greiða hundruð milljarða aðgöngumiða að ESB?  Aðgangseyri sem íslenskum skattgreiðendum ber ekki að borga og kemur ekkert við?


mbl.is Íslendingar greiði vexti
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Síðasta verk Kristjáns - fyrsta verk Ögmundar?

Eitt síðasta verk Kristjáns L. Möller, fyrrverandi samgönguráðherra, var að skrifa undir heimild til Flugmálastjórnar til að hefja skráningu flugvéla hér á landi fyrir hollenska fyrirtækið ECA Program Limited, en það hyggst flytja herþotur til Keflavíkurflugvallar og leigja þaðan út til heræfinga.

Mikið atvinnuleysi er á Suðurnesjum, enda skýrir ráðuneytið afstöðu sína til málsins á eftirfarandi hátt:  "Á Suðurnesjum er eitt mesta atvinnuleysi á landinu og afar brýnt að ný verkefni sem skapað geta atvinnu á svæðinu verði að veruleika sem fyrst. Þessi starfsemi á að geta skapað allt að 150 störf til lengri tíma en um 200 störf á uppbyggingartímanum sem gæti hafist strax á þessu ári þó að ekki verði búið að ljúka við reglugerðarbreytingu áður."

Mbl.is vitnar til orða Steingríms J. um þetta mál, sem hann lét falla þann 20 júlí s.l:  "Það hefur nú lítið gerst í því máli. Samgönguráðherra kom með minnisblað inn í ríkisstjórn sem var ekki tekið fyrir, það er á biðmálaskrá . Það hefur ekki nein afstaða verið tekin til þess hvort þetta er einhver starfsemi sem við ætlum að leggja nafn okkar við. Það er engin sérstök stemmning fyrir því í mínum herbúðum.“

Kristjáni vannst ekki tími til að ljúka við reglugerðarbreytingu tengda þessari starfsemi, enda skrifað undir skráningarheimildina í miklum flýti, svo ólíklegt verður að teljast að fyrsta verk Ögmundar Jónassonar, samgönguráðherra, verði að ganga frá henni, þannig að þessi starfsemi geti hafist á Suðurnesjum.

VG er nákvæmlega sama um atvinnuleysistölur og nota hvert tækifæri til að tefja og spilla öllum tilraunum til atvinnuuppbyggingar og sérstaklega er þeim uppsigað við Suðurnesin og hefur hingað til tekist að koma í veg fyrir allar tilraunir til uppbyggingu nýrra atvinnutækifæra þar.

Nú þegar komin er til valda hrein Alþýðubandalagsríkisstjórn, þarf enginn að láta sér detta í hug, að áherslur hennar muni liggja á atvinnusviðinu.  Skattahækkanir munu verða hennar ær og kýr. 


mbl.is Heimilt að skrá vélar ECA hér á landi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Alþýðuflokkurinn endanlega þurkaður út

Ef þær fréttir reynast réttar að Guðbjartur Hannesson verði ráðherra í stað Kristjáns Möller, þá eru áhrif gamla Alþýðuflokksins endanlega afmáð í íslenskri stjórnmálasögu, því Kristján er síðasti Móhíkaninn úr röðum Alþýðuflokksins, sem setið hefur í áhrifastöðu í þjóðfélaginu.

Eftir þessar breytingar eru allir ráðherrar Samfylkingarinnar upprunnir úr Alþýðubandalaginu, nema Jóhanna Sigurðardóttir, sem á sínum tíma klauf sig út úr Alþýðuflokknum, stofnaði Þjóðvaka og gekk svo reyndar aftur í Alþýðuflokkinn, en var þar aldrei velkomin til baka af þeim sem vildu kalla sig "eðalkrata" og voru og eru undir forystu Jóns Baldvins Hannibalssonar.

Við þessar ráðherrahrókeringar er með ólíkindum að Árni Páll Árnason skuli halda ráðherrasæti eftir öll þau hneykslismál sem honum tengjast og eins hefur hann margoft verið staðinn að hreinum ósannindum og valdníðslu.  Kristján Möller hefur hins vegar gegnt sínu starfi tiltölulega hljóðlega og þurft að vinna með þær fjárveitinagar sem honum hafa verið skammtaðar, þó vissulega hafi hann hyglað sínu kjördæmi á kostnað annarra, t.d. Vestfjarða.

Verði þessar breytingar, sem fréttir herma, á ráðherraliðinu, munu "eðalkratar" verða æfareiðir og margir þeirra munu hætta stuðningi við Samfylkinguna.


mbl.is Guðbjartur verði ráðherra
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Útlendingar ráða orkufyrirtækjunum

Svo er nú komið, að erlendir lánadrottnar ráða í raun yfir öllum helstu orkufyrirtækjum landsins, þó formlega séu þau ennþá skráð í eigu Íslendinga, t.d. Landsvirkjun skráð í eigu ríkisins og OR í eigu Reykvíkinga.  Fyrirtækin hafa skuldsett sig með gríðarháum skammtímalánum til að fjármagna framkvæmdir, sem ekki skila skjótfengnum tekjum, heldur er verið að fjárfesta til að selja orku til næstu áratuga.

Því verður að telja það með ólíkindum einkennilega fjármálastjórnun þessara fyrirtækja, að ekki skuli vera búið að tryggja lán til langs tíma, áður en ráðist er í framkvæmdirnar í stað þess að fjármagna allt með skammtímaskuldum með það í huga að "endurfjármagna" þær síðar.  Hér áður fyrr var þetta einfaldlega kallað "að framlengja víxilinn", en nú er búið að finna upp miklu fínni orð í fjármálaheiminum en áður voru notuð, svo nú heitir framlenging á víxli "endurfjármögnun".

Það sem er furðulegast við rekstur þessara fyrirtækja er, að því meiri menntun sem safnast upp í þjóðfélaginu og þar með, að ætla mætti, þekking og reynsla, því ver hefur gengið að reka fyrirtæki hér á landi, að ekki sé minnst á fjármálastofnanirnar og fyrirtæki tengd þeim og eigendum þeirra, en sá rekstur endaði með því að setja allt þjóðfélagið á hliðina og skildi eftir sig a.m.k. tíuþúsund milljarða króna skuldir við erlenda lánadrottna.

Nú er þjóðfélagið komið undir stjórn AGS vegna skulda þess og nánast öll fyrirtæki landsins eru undir hæl lánastofnana og einna verst er ástandið með orkufyrirtækin, sem hingað til hefur verið litið á sem hænurnar sem verptu gulleggjunum.

Með þeirri einkennilegu fjármálastjórn sem ríkt hefur í þessum fyrirtækjum undanfarin ár, t.d. með lántökum í erlendri mynt, þrátt fyrir að tekjur séu að meirihluta í íslenskum krónum, verður þess sjálfsagt ekki langt að bíða, að orkufyrirtækin verði öll komin í formlega eign erlendra aðila.

Vonandi mun þeim ganga betur að stýra fjármálunum, en Íslendingum hefur tekist. 


mbl.is Auðlindir lánardrottna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Allt á suðupunkti vegna ráðherraskipta

Hvorki Samfylkingin eða VG gátu náð samkomulagi innan sinna raða um ráðherraskipti í ríkisstjórninni, sem þó er Jóhönnu og Steingrími alger nauðsyn til að lægja öldur og óánægju innan flokkanna með getuleysi ríkisstjórnarinnar til að taka á brýnum hagsmunamálum.

Órólega deildin innan VG með Ögmund Jónasson í broddi fylkingar krefst ráðherrastóls fyrir hann að nýju og Ögmundur sjálfur mun ekki taka annað í mál, þó ekki verði séð að nokkur breyting hafi orðið á afstöðu ríkisstjórnarinnar til Icesave, frá því að Ögmundur rauk úr ríkisstjórn í fyrra í miklu fússi.  Nú segir hann að hvorki Icesave né ESB standi í veginum, enda séu þau mál í "eðlilegum farvegi", en formlegar samningaviðræður um Icesave hófust einmitt á ný í dag.

Í Samfylkingunni vill Kristján Möller alls ekki láta af ráðherraembætti fyrr en hann verður búinn að vígja Héðinsfjarðargöngin og helst koma Vaðlaheiðargöngum af stað, þó engir peningar séu fyrir hendi til að hefja þær framkvæmdir.

Þá heimtar Ólína Þorvarðardóttir ráðherrastól og telur engan hæfari í flokknum en sig til að gegna slíkum embættum og þó hún sé í öðru sæti listans á Vesturlandi, á eftir þeim sem aðrir telja hæfastan innan flokksins til að taka að sér slíkt embætti, þ.e. Guðbjarti Hannessyni, þá kemur Ólínu slíkt ekki við í framapoti sínu.

Vegna þessara deilna innan þingflokksins, neyðist Jóhanna til að kalla saman flokksstjórnína í fyrramálið til að tryggja sínum tillögum um málið framgang, en Þórunn Sveinbjarnardóttir, þingflokksformaður, sagði fyrr í dag, að ekki þyrfti á því að halda, þar sem Jóhanna hefði fengið umboð flokksstjórnarinnar í fyrra til að gera þær breytingar á ráðherraliðinu á kjörtímabilinu, sem hún teldi vera þörf á.  Það var um svipað leyti og hún bað vegfaranda nokkurn um ákveðin skilaboð til frænda hans um hvert hún vildi að hann stykki, en það var nú aldeilis ekki á sólríkan stað.

Þetta sannar enn og aftur hve veik forysta stjórnarflokkanna er, enda hefur hún ekki einu sinni stuðning lengur innan þingflokka sinna.


mbl.is Ráðherraskipti á morgun
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Gjaldþrota fjármálastjóri hæfir fyrirtækinu vel

Stefán Hilmar Hilmarsson, fjármálastjóri 365miðla mun að öllum líkindum verða úrskurðaður gjaldþrota á næstunni, en hann var áður fjármálastjóri Baugs, sem varð gjaldþrota vegna hudruð milljarða skulda.  Áður hafði Bónusgenginu þó tekist að koma Högum undan þrotabúinu með aðstoð Arion banka, sem lánaði genginu um 50 milljarða í þessu skyni, sem auðvitað voru svo aldrei greiddir, frekar en aðrar skuldir Bónusgengisins.  Til að verðlauna Bónusforingjann fyrir vanskilin greiðir Arion banki honum á annað hundrað milljónir í "starfslokagreiðslu" fyrir að hafa verið svo vingjarnlegur að gegna formennskunni í tíu mánuði.

Öll skuldasaga Bónusgengisins er sama merki brennd, þ.e. að lánadrottnar og íslenskir skattgreiðendur munu borga fyrir hörmulegt viðskiptaklúður þess á síðustu tuttugu árum og ef ætlun Arion banka um að koma Högum aftur í hendur gengisins, eru allar líkur á að þeirri hörmungarsögu sé langt í frá lokið.

Ari Edwald, forstjóri 365 miðla, segir að "formleg staða" Stefáns Hilmars innan fyrirtækisins verði skoðuð næstu daga, en það ætti að vera hreinn óþarfi, því vel hlýtur að vera við hæfi í þessu undanskotna fyrirtæki Bónusgengisins (úr þrotabúi Ísl. afþreyingagar), að fjármálastjórinn hafi verið úrskurðaður gjaldþrota.

Öll brasksaga Bónusgengisins er stráð risastórum gjaldþrotum og því eðlilegasti hlutur í heimi að allir helstu starfsmenn væru það líka.


mbl.is Staða Stefáns hjá 365 breytist líklega
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ráðherra fyrir Landsdóm.

Þingmannanefndin undir forystu Atla Gíslasonar, sem hefur verið að fara yfir lög og reglur um ráðherraábyrgð og Landsdóm, stefnir að því að ljúka störfum og skila niðurstöðum sínum til Alþingis í næstu viku.

Ekkert hefur verið gefið upp um hver niðurstaða nefndarinnar verði, en Atli boðar að hún verði jafnvel gefin út sem bók, þannig að greinilega hefur mikið verið rætt og ritað um efnið innan nefndarinnar og fjöldi alls kyns lagaspekinga hefur verið kallaður fyrir nefndina til skrafs og ráðagerða.

Komist nefndin að þeirri niðurstöðu, að ekki sé grundvöllur til að stefna neinum ráðherrum fyrir Landsdóm, vegna gerða þeirra eða aðgerðarleysis í aðdraganda hrunsins, mun hún verða ásökuð um yfirhylmingu með ráðherrunum og eins verður hún sökuð um pólitíska spillingu og að vera varðhundar samtryggingar stjórnmálamannanna og um málið yrði rifist og þrasað í þjóðfélaginu árum saman.

Þó ólíklegt sé, að nokkur ráðherra yrði sakfelldur fyrir Landsdómi er í raun bráðnauðsynlegt að niðurstaða nefndarinnar yrði á þá leið að nokkrum ráðherrum yrði stefnt fyrir Landsdóm og með því móti kæmi fram alveg skýr niðurstaða um ráðherraábyrgðina almennt.

Fyrir Landsdóminn yrði þá væntanlega sendir ráðherrarnir Geir Haarde, Ingibjörg Sólrún Gísladóttir og nokkrir aðrir, sem embættum gegndu síðustu mánuðina fyrir hrun.  Með Landsdómi yrði sett fordæmi fyrir framtíðina og auðveldaði mat á gerðum ráðherra núverandi ríkisstjórnar og þeirra, sem á eftir munu koma.


mbl.is Atli gekk á fund þingforseta
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Árni Páll hlýtur að hætta

Nú virðast einhverjar hrókeringar vera væntanlegar í ríkisstjórninni framundan, fyrst og fremst til að koma Ögmundi Jónassyni inn í ríkisstjórnina áður en þigstörf hefjast að nýju, til þess að reyna að þagga niður í órólegu deildinni innan VG, sem reynst hefur Jóhönnu og Steingrími J. erfiður ljár í þúfu undanfarið.

Þær ótrúlegu fréttir hafa borist af þessum tilfæringum, að Ragna Árnadóttir, mannréttinda- og dómsmálaráðherra, verði látin hætta, en hún hefur sýnt og sannað með störfum sínum að hún er bæði hæfasti ráðherra ríkisstjórnarinnar og sá vinsælasti.  Væntanlega þolir Jóhanna ekki að Ragna skuli bera svona rækilega af í samanburði við hina ráðherrana, ekki síst hana sjálfa, að henni verði fórnað til að vanhæfni hinna ráðherranna verði minna áberandi.

Ekki síður ótrúlegt er, að svo virðist sem Árni Páll Árnason, félagsmálaráðherra, muni halda sæti sínu, en hann hefur ítrekað sýnt valdnýðslu í starfi sínu og ásamt almennri vanhæfni hefur hann margoft verið staðinn að ósannindum vegna starfa sinna og afskipta af ýmsum málum sem honum hafa jafnvel ekkert komið við. 

Kristján Möller, samgönguráðherra, verður líklega látinn fjúka, þó hann sé tiltölulega lítið umdeildur og hafi unnið sín störf aðallega utan sviðsljóssins og hefur ekki svo vitað sé verið staðinn að hreinum lygum, eins og sumir hinna ráðherranna.

Álfheiður Ingadóttir, heilbrigðisráðherra, mun góðu heilli víkja úr sínu embætti, samkvæmt fréttunum og eru það góð tíðindi, enda átti aldrei að hleypa henni í nokkurt einasta ábyrgðarhlutverk innan stjórnsýslunnar eftir framkomu hennar og stjórnun á skemmdarverkarhópum í "búsáhaldabyltingunni".  Jafnvel þó hún hefði ekki tekið að sér að stjórna árásum á Alþingishúsið, hefur hún marg sýnt í gegn um tíðina, að hún er öfgamanneskja, sem ekkert erindi á í áhrifastöður í þjóðfélaginu.

Jón Bjarnason, landbúnaðar- og sjávarútvegsráðherra, virðist vera of stór biti fyrir Jóhönnu og Samfylkinguna, þannig að allar ráðagerðir til að losna við hann úr ríkisstjórninni  virðast ætla að mistakast, þrátt fyrir heiftarlegar árásir Össurar Skarphéðinssonar á Jón undanfarna daga.

Ráðherrarnir sem fyrstir ættu að fjúka, Jóhanna, Steingrímur J. og Össur, munu því miður sitja eitthvað áfram.


mbl.is Þingflokkar funda í allan dag
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Er Arion banki að taka þátt í peningaþvætti?

Höskuldur H. Ólafsson, bankastjóri Arion banka, staðfestir að Bónusgengið verði að greiða með peningum fyrir þær verslanir sem það kaupir nú út úr Högum, eða eins og hann orðar það í samtali við Moggann:  "Ef hann greiðir ekki með peningum þá fær hann ekki hlutabréfin. Þetta eru engin lán frá bankanum. Hann kemur með peningana einhverstaðar annars staðar frá, ég veit ekki hvaðan."

Er Höskuldur að reyna að telja fólki trú um að hann selji eignir frá bankanum á 1.237,5 milljónir króna án þess að vita hvort kaupandinn sé borgunarmaður fyrir upphæðinni, hvað þá að kannað sé hvort og hvernig eigi að fjármagna kaupin.  Nú hefur komið fram í fréttum að Bónusgengisforinginn hafi á síðasta ári talið fram til skatts rúmar þrjúhundruð milljónir króna í hreina eign, þannig að augljóst er, að hann getur ekki átt fyrir kaupverðinu, nema þá í leynisjóðum í bankaleyniríkjum.

Hinn möguleikinn er sá, að aðrir bankar láni honum fyrir kaupverðinu og væri þá fróðlegt að vita hvaða banki treystir Bónusgenginu fyrir svo mikið sem einni krónu, eftir að það hefur skilið eftir rjúkandi rúst fyrirtækja með yfir eittþúsund milljarða króna skuldir, sem gengið ætlast til að lánadrottnar og íslenskir skattgreiðendur borgi fyrir sig.

Arion banki virðist einnig ætla að afskrifa 50 milljarða króna af 1988, eignarhaldsfélagi Haga, sem var að fullu í eigu Bónusgengisins, að því er virðist til þess að gengið geti keypt Haga aftur, þegar bankinn setur félagið í sölu. 

Það gæti skotist upp í hugann að Arion banki sé að taka þátt í einhverskonar peningaþvætti með þessu braski í samvinnu við Bónusgengið.  Að minnsta kosti er þetta einhver mesti sóðaskapur, sem átt hefur sér stað í íslensku viðskiptalífi frá upphafi og er þó af nógu að taka, jafnvel þó ekki væri miðað við fleiri gengi en Bónusgengið eitt og sér.


mbl.is Þarf að greiða með peningum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband