28.12.2010 | 07:29
VG klofnar - aðeins tímaspursmál hvenær
Lilja Mósesdóttir gerir nú lokatilraun til að beygja meirihluta þingflokks VG undir sjónarmið sín og "villikattanna" í flokknum og skapa sér stöðu fyrir það uppgjör í VG sem óhjákvæmilega hlýtur að verða þann 8. janúar n.k., þegar flokksráðsfundur verður haldinn.
Ágreiningurinn innan VG er orðinn svo djúpstæður og persónulegur að útilokað er orðið að jafna hann og því mun flokkurinn klofna, nú er aðeins orðið spurning um hvenær það verður, ekki hvort það verður.
"Villikettirnir" munu annaðhvort stofna nýjan flokk og halda áfram þátttöku í ríkisstjórn og þá mun stjórnin sitja og standa eftir þeirra kröfum, enda munu þeir þá hafa líf stjórnarinnar í hendi sér. Ef Jóhönnu og Steingrími J. þykir það ekki fýsilegur kostur og stjórnin segir þar með af sér og boðar til kosninga, er eins víst að "villikettirnir" gangi í eina sæng með Hreyfingunni, enda mikill samhljómur þar á milli.
Það eina sem er alveg orðið víst í þessu efni er að VG mun ekki hanga saman sem einn flokkur mikið lengur.
![]() |
Lilja íhugar úrsögn úr þingflokki VG |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
27.12.2010 | 13:39
Nýjir glæpaflokkar í framboð?
Nýjir stjórnmálaflokkar eru nú farnir að líta dagsins ljós og gera má ráð fyrir að eftir því sem líður á veturinn og næsta ár muni fleiri og fleiri flokkar fæðast, enda segir hjarðmenning dagsins að stjórnmálaflokkur ætti helst ekki að vera skipaður nema einum manni og þannig væri hægt að kjósa alla stjórnmálaflokka landsins í beinni persónukosningu.
Fram til þessa hafa kjósendur stutt þá stjórnmálaflokka sem unnið hafa að þeim skoðunum sem best hafa fallið viðkomandi kjósanda í geð og þeir sem heitar lífshugsjónir hafa haft, hafa gerst félagar í þeim stjórnmálasamtökum sem boða þær lífsskoðanir sem viðkomandi er tilbúinn að berjast fyrir og leggja sitt af mörkum til að afla fleiri fylgjenda meðal þjóðarinnar.
Nú boðar hjarðhugsunin að allir stjórnmálaflokkar séu glæpaflokkar og allir sem þá styðji séu samsekir um glæpaverkin og þeir allra forstokkuðustu séu sendir á þing til að valda þjóðinni öllu því tjóni, sem þeir mögulega geti unnið með dyggri aðstoð þeirra illgjörnu hálfvita, sem studdu þá í þingkosningum.
Það stórmerkilega við kerfið, eins og það hefur verið fram að þessu, er að það er þjóðin sjálf sem velur allt þetta fólk á Alþingi, með a.m.k. tveim kosningaumferðum. Fyrst eru frambjóðendur valdir á lista í prófkjörum eða forvölum og síðan eru listarnir boðnir fram í kosningum, þar sem yfirleitt mæta tæp 90% kjósenda og velja á milli þeirra lista, sem þessir frambjóðendur skipa.
Miðað við umræðurnar núna um stjórnmálaflokkana, þingmennina og stuðningsmenn þeirra, er alveg með ólíkindum hvernig svona skynsöm þjóð eins og Íslendingar segjast vera, skuli ná svo mikilli samstöðu um að kjósa sinn alversta glæpalýð til að stjórna sér og landinu, kosningar eftir kosningar.
![]() |
Segir viðbrögð góð við nýjum flokki |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 13:45 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (16)
26.12.2010 | 19:25
Þyngri refsingar fyrir rof á heimilisfriði
Glæpalýður borgarinnar lætur sig engu skipta hvort almenningur heldur upp á jólin eða aðarar hátíðar, en notar hátíðarnar ekkert síður en aðra daga til að brjótast inn á heimili fólks og stela þar öllu steini léttara og valda bæði miklum eigna- og tilfinningaspjöllum.
Út yfir allan þjófabálk tekur þó, þegar þessir glæpahundar þykjast vera að refsa fólki og leggja á það "sektir", sem síðan eru innheimtar með innrásum á heimili og vopnavaldi beitt og nú á aðfangadag skotvopnum. Með þessari vopnuðu ásás á eitt heimili voru jólin í raun eyðilögð fyrir fjölda fólks, sem býr í nágrenni heimilisins sem fyrir skotárásinni varð, enda olli þetta glæpaverk ótta í huga fólks í stórum hluta hverfisins.
Glæpagengin vakta heimilin og fylgjsast með því hvort þau verði mannlaus vegna fjölskylduboða um hátíðarnar og nota þá tækifærið til að brjótast inn og róta í öllum persónulegum munum fólks, ásamt því að stela öllu verðmætu og oft verðlitlum hlutum, sem þó eru fólkinu afar kærir vegna persónulegra minninga sem þeim tengjast.
Fólk, sem fyrir þessum innrásum á heimili sín verður, lýsir því oft að hlutirnir sem hverfa séu ekki það versta við innbrotin, þó verðmætir séu, heldur sé það sú vanhelgun á helgi heimilisins og gramsið í persónulegum minnigum þess, sem sé óbærilegast, fyrir utan óöryggið af því að búa áfram á heimilinu.
Þungar refsingar ættu að vera við innbrotum á heimili og árásum á friðhelgi þeirra og miklu harðari en við innbrotum í fyrirtæki, því þó slík innbrot séu nógu slæm, þá er ofbeldið gegn sálarlífi fólks með innbrotum á helgasta vé fjölskyldunnar ekkert annað en andleg nauðgun heimilismanna, fyrir utan eignatjónið.
Það þarf að setja mikla hörku í baráttuna gegn þessum glæpalýð, sem stöðugt færist í átt til grófari afbrota gegn saklausum borgurum.
![]() |
Árásarmennirnir yfirheyrðir |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 19:35 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
24.12.2010 | 14:03
JÓLAKVEÐJA
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
23.12.2010 | 18:08
Rúllandi Stein-grímur J.
Steingrímur J. segir á heimasíðu VG að það sem drífi hann helst áfram í starfi sínu sé hatrið á Sjálfstæðisflokknum og það réttlæti skattahækkanabrjálæðið, því allt sé í sölurnar leggjandi til að greiða skuldir þjóðarinnar eins hratt niður og þanþol skattgreiðenda leyfi.
Hinsvegar eru líkur á því að þegar allar skattahækkarnir næsta árs verði komnar til framkvæmda í viðbót við þær sem áður voru komnar, þá muni margur maðurinn gefast upp og svarta hagkerfið fari að blómstra, sem aldrei fyrr, því kerfi Steingríms J. býður öllum því hærri skuldaniðurfellingar og bætur, sem þeir geti sýnt fram á meiri tekjulækkun.
Lýsingin á því hvaða drauma Steingrímur dreymir, hljóðar svo hjá honum: "Það skyldi nú ekki vera að martröð íhalds- og afturhaldsaflanna sé einmitt sú að fyrstu hreinu vinstri stjórn lýðveldissögunnar kunni að takast það risavaxna verkefni að koma þjóðarskútinni af strandstað, þangað sem þau öfl sigldu henni, á kjöl og siglingu á nýjan leik. Stórpólitísk og langvinn áhrif þess að okkur takist ætlunarverkið skyldi enginn vanmeta. Steinum sem velt er í götuna fylgir mikil ábyrgð."
Þessi klausa lýsir hugarástandi Steingríms J. afar vel, en er hins vegar eins og allir vita helber pólitísk lýgi, því alþjóðleg bankakreppa og glæparekstur íslenskra banka og annarra fyrirtækja eigenda þeirra var frumorsök kreppunnar hér á landi, en kreppan hér varð verri en annarsstaðar vegna glæpaverka en ekki stjórnmála.
Lokasetningin í tilvitnuninni hér að ofan um steinana rúllandi, er augljóslega beint til eigin flokksmanna, þ.e. þess hluta þingflokksins sem kallaður hefur verið "villikettirnir" og hótun um að þeim verði kennt um allt saman, þegar stjórnin springur á limminni fyrri hluta næsta árs, eins og allt útlit er fyrir núna.
"Fyrsta hreina vinstri stjórn lýðveldissögunnar" eins og Steingrímur J. kallar hana með barnslegri hrifningu á orðunum einum saman, ætti að fara að snúa sér að atvinnumálunum og hætti hún að flækjast fyrir uppbyggingu á því sviði, má Steingrímur J. hæla sjálfum sér eins mikið og hann hefur lyst til.
Íhaldið mun svo vonandi komast nógu fljótt til valda til að bjarga þjóðinni undan skattageðveikinni sem nú ruglar Steingrím og ríkisstjórnina algerlega í ríminu.
![]() |
Mikil ábyrgð að velta steinum í götuna |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 18:11 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
23.12.2010 | 13:15
Gleðifréttir fyrir Þingeyinga
Viljayfirlýsing hefur verið undirrituð af Landsvirkjun og Carbon Recycling International um að meta hagkvæmni þess að reisa metanólverksmiðju á norðurlandi og þá sem næst Kröfluvirkjun. Líklegasti staðurinn fyrir slíka verksmiðju hlýtur því að teljast að verði í Skútustaðahreppi, en þar varð mikill afturkippur í atvinnumálunum þegar kísisverksmiðjan lokaði.
Í fréttinni kemur þetta m.a. fram um það sem gerast þarf, áður en af verksmiðjunni getur orðið: "Undirbúningur við hugsanlega verksmiðju gæti hafist á fyrri hluta árs 2011 ef fýsileiki metanólframleiðslu á svæðinu verður staðfestur og Landsvirkjun og CRI ná samkomulagi um skilmála orkusölusamnings. Í undirbúningi felst meðal annars öflun nauðsynlegra leyfa og samningaviðræður við hagsmunaaðila."
Eins og nú er ástatt um landsstjórnina, er líklegasta hindrunin í vegi þessarar verksmiðju, eins og allra annarra möguleika til atvinnuuppbyggingar í landinu, ríkisstjórnin sjálf og þá alveg sérstaklega ráðherrar VG, sem ekkert tækifæri láta ónotað til að stunda nánast skemmdaverkastarfsemi gegn atvinnulífi landsmanna.
Ríkisstjórnin er auðvitað eingöngu ein af þeim hindrunum sem þarf að yfirstíga, áður en þetta þarfaþing getur orðið að veruleika og vonandi mun það ganga upp með samstilltu átaki heimamanna og annarra þjóðhollra landsmanna.
Ástæða er til að óska Þingeyingum innilegra hamingjuóska með þessa viljayfirlýsingu og vonina um að hún verði að veruleika sem allra fyrst.
![]() |
Viljayfirlýsing um metanólverksmiðju |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
23.12.2010 | 10:41
Skiptir mestu máli hvernig tillögur eru lagðar fram
Lilja Mósesdóttir, sem er ein af "villiköttunum" í þingflokki VG, segir að ekki sé tekið mark á tillögum sínum innan meirihlutans á bak við ríkisstjórnina vegna þess að ekki sé sama hvaðan gott komi. Lilja segir m.a: "En vandamálið er að það er ekki hlustað á okkur og stundum hef ég á tilfinningunni að það skipti máli frá hverjum gagnrýnin og ábendingarnar koma. Ef ég tala fyrir sjálfa mig þá hef ég talað fyrir almennri skuldaleiðréttingu, lagt fram frumvarp sem kallað er lyklafrumvarpið og frumvarp um fyrningu krafna en þessi frumvörp hafa ekki fengið framgang, meðal annars held ég vegna þess að það var ég sem lagði þau fram en ekki einhver annar."
Ekki virðist hvarfla að Lilju að tillögur hennar séu ekki þess virði að þær fái sérstakan framgang og má þar nefna tillöguna um flata niðurfellingu skulda, sem bæði er dýr og gagnast alls ekki þeim, sem virkilega eru í mestu skuldakröggunum og þurfa helst aðstoðar við, til að komast aftur í möguleika á að standa undir skuldum sínum. Lyklafrumvarpið er algerlega galið, þar sem fólk sem alls ekki er í neinum erfiðleikum vegna skulda sinna, en á hinsvegar erfitt með að selja viðkomandi fasteign, gæti einfaldlega hent lyklunum í lánadrottnana og gengið frá fasteigninni án þess að taka nokkra einustu ábyrgð á ákvörðun sinni á kaupum hennar.
Fyrning krafna gjaldþrota fólks hefur verið stytt í tvö ár, þó ennþá sé möguleiki fyrir lánadrottna að viðhalda kröfum sínum, enda algerlega andstætt eignarréttarákvæðum stjórnarskrárinnar að ganga algerlega á rétt lánveitenda, því þeirra eignaréttur er varinn ekki síður en annarra sem eignir eiga í þjóðfélaginu.
Þessi upptalning ætti að sýna að tillögur Lilju eru ekki góðar tillögur og væntanlega hefur þeim verið hafnað á þeim forsendum. Lilja hefur hins vegar kosið að reyna að gera sjálfa sig að píslarvotti og virðist reyndar vera að takast ágætlega upp við það.
Henni hefur tekist að snúa hjarðhegðun stórs hluta almennings í átt til vorkunnar með sér og stærstur hluti hjarðarinnar fylgir án sérstakrar umhugsunar, enda er það aðaleinkenni hjarðhegðunar.
![]() |
Skiptir mál hver lagði tillögurnar fram |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 10:42 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
22.12.2010 | 23:17
Mannskepnan er varnarlítil gegn örverum
Í fyrravetur þegar svínaflensan gekk um heiminn var gripið til mikillar bólusetningarherferðar um allan heim til að verjast henni og þegar upp var staðið höfðu miklu færri sýkst en búið var að spá og ennþá færri dauðsföll urðu, en þeir svartsýnustu reiknuðu með.
Líklegasta skýringin á því að faraldurinn varð aldrei eins skæður og búist hafði verið við, er einmitt hve hratt var brugðist við og hve marga tókst að bólusetja á tiltölulega skömmum tíma, en talsverðan aðdraganda þarf að slíkum allsherjar bólusetningum vegna þess tíma sem tekur að framleiða bóluefni gegn nýjum flensuafbrigðum.
Heilbrigðisyfirvöld voru gagnrýnd eftirá fyrir allt of mikil viðbrögð gegn útbreiðslu þessarar nýju flensu, sem virtist eiga upptök sín í Mexíkó, öfugt við flestar aðrar flensutegundir, sem yfirleitt eiga upptök sín í austurlöndum og þaðan er t.d. fuglaflensan ættuð, sem mun valda gífurlegu manntjóni þegar hún byrjar að smitast beint á milli manna.
Þrátt fyrir að fólk héldi að svínaflensan heyrði sögunni til, er hún byrjuð að taka sig upp aftur og t.d. hafa sautján manns látist af hennar völdum í Bretlandi undanfarið og þaðan er hún byrjuð að smitast hingað til lands, þó fyrsta tilfellið hafi verið í vægari kantinum.
Þessar fréttir minna óþyrmilega á, að mannskepnan í öllu sínu veldi er í raun ákaflega varnarlaus gagnvart smæstu lífverum sem á jörðinni þrífast.
![]() |
Greindist með svínainflúensu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 23:22 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
22.12.2010 | 12:22
Björn Valur væri gleymdur ef.........
Björn Valur Gíslason, þingmaður VG, er óspar á svívirðingar og illt umtal um aðra þingmenn, jafnt innan eigin þingflokks sem annarra og sést ekki alltaf fyrir í ásökunum sínum og rætnum ummælum.
Stundum sér hann að sér og biðst afsökunar á framgöngu sinni en í öðrum tilfellum stefdur hann fastur fyrir og espast eingöngu og bætir jafnvel í óhróðurinn, þegar honum er mótmælt. Allt virðist þetta fara eftir því hvort hann sé vel sofinn, því þegar hann hefur ekkert misjafnt um samþingmenn sína að segja, þá segir hann yfirleitt ekki neitt og hefur ekkert til málanna að leggja frá sjálfum sér, en bergmálar aðallega Steingrím J. og stundum verður það bergmál talsvert hvellt, eins og verða vill um bergmál.
Væri ekki fyrir þessi reglulegu níðskrif Björns Vals um samþingmenn sína, væri hann sjálfur öllum gleymdur, enda ekki staðið fyrir neitt annað á þinginu en þær og að bergmála Steingrím J.
![]() |
Biður Kristján Þór afsökunar |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
21.12.2010 | 20:53
Illindin milli stjórnarliða og fyrirmyndirnar frá íhaldinu
Mikil illindi ríkja innan og milli stjórnarflokkanna, sem ekki eru nýjar fréttir en stöðugt magnast óánægjan og ósamkomulagið og er nú svo komið að VG er að klofna a.m.k. í tvennt og ríkisstjórnin er við það að verða algerlega líflaus, enda búin að vera lengi í öndunarvél.
Ósamkomulagið innan VG varðandi fjárlagafrumvarpið fólst ekki síst í því, að nokkrir þingmenn flokksins gátu alls ekki sætt sig við að skera niður það mennta-, heilbrigðis- og velferðarkerfi, sem Sjálfstæðisflokkurinn hafði forystu um að byggja upp áratugina tvo fyrir hrun og þessi ríkisstjórn er gjörsamlega ófær um að viðhalda.
Ásmundur Einar Daðasaon, þingmaður VG og fulltrúi í Fjárlaganefnd, sem formaður nefndarinnar vill ekki vinna með lengur, fjallar um fjárlögin í viðtali við mbl.is og segir þar m.a: "Á niðurskurðar- og krepputímum væri ekkert mikilvægara en að verja en velferðar- og menntakerfið. Sem dæmi um það væri niðurskurðurinn sem breski íhaldsflokkurinn stendur að í Bretlandi en hann sker ekki niður í heilbrigðismálum. Þetta hafði ég rætt bæði einslega við formann fjárlaganefndar, á meirihlutafundum í fjárlagnefnd og í mínum þingflokki."
Það er auðskilið, að þegar Ásmundur Einar bregst til varnar þeirri velferð sem Sjálfstæðisflokkurinn var í forystu um að byggja upp og treysta, að þá bendi Ásmundur á Íhaldsflokkinn í Bretlandi sem fyrirmynd, enda er íhaldsmönnum ekki síst annt um velferðar- og menntamálin, enda stefna þeirra að byggja upp mannúðlegt þjóðfélag, byggt á samvinnu stéttanna, frelsi borgaranna og aðstoð við þá sem minna mega sín, svo fáein dæmi um stefnu þeirra séu nefnd.
Vonandi tekst fyrstu hreinræktuðu vinstri stjórninni á Íslandi ekki að rústa því velferðarkerfi sem hér hafði byggst upp, áður en nýtt fólk sem hæft er til stjórnunarstarfa kemst aftur í ríkisstjórn hérlendis.
![]() |
Hissa á ummælunum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 20:56 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)