16.6.2015 | 19:36
Lýðræðið og lýðveldisafmælið fótum troðið
Einhver hópur hefur rottað sig saman á Facebook og sammælst um að fjölmenna á Austurvöll í fyrramálið, 17. júní, og eyðileggja þá virðulegu hefð að leggja blómsveig að styttu Jóns Sigurðssonar, í tilefni af lýðveldisstofnuninni þann dag árið 1944.
Annað markmið hópsins er að öskra og veifa spjöldum með kröfum um að ríkisstjórnin segi af sér, eða verði sett af ella. Ekki er vitað hverja þessir æsingaseggir ætla að setja í ríkisstjórnarstólana ef áætlanir þeirra ganga eftir.
Einkennilegt er að fólk sem aðhyllist skoðanir sem taldar eru til vinstri í stjórnmálum skilja ekki eðli lýðræðisins, en í öllum siðmenntuðum þjóðfélögum ræður vilji meirihluta þjóðarinnar sem fram kemur í kosningum hverju sinni. Núverandi stjórnarflokkar fengu góðan meirihluta í Alþingiskosningum fyrir rúmum tveim árum og hafa fullt umboð kjósenda til að stjórna í tvö ár til viðbótar.
Það er nánast ótrúlegt að óeirðaseggir skuli ætla að fótum troða bæði lýðræðið sjálft og hefðbundin hátíðahöld í minningu þeirra sem börðust fyrir lýðveldinu á Íslandi, sem endaði síðan með stofnun þess á Þingvöllum árið 1944.
Allir siðaðir Íslendingar hljóta að fordæma svona óhæfu á þessum degi.
Samfélagsmiðlar hafa breytt mótmælum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
« Síðasta færsla | Næsta færsla »
Höfundur
Áhugamaður um lífið og tilveruna.
Athugasemdir og umræður eru öllum opnar á síðunni, en þess vænst að þær séu hófstilltar og án mikilla stóryrða.
Ruddalegar athugasemdir, sem innihalda lítið sem ekkert annað en skítkast og/eða persónulegar svívirðingar um menn og málefni verða fjarlægðar af þessari síðu, jafnóðum og þær uppgötvast.
Eldri færslur
2021
2020
2019
2018
2017
2016
2015
2014
2013
2012
2011
2010
2009
Færsluflokkar
Tenglar
Mínir tenglar
Bloggvinir
- malacai
- andres
- annabjorghjartardottir
- attilla
- skagstrendingur
- baldvinj
- benediktae
- beggo3
- h2o
- bbg
- bjarnimax
- bookiceland
- siggibragi
- brandarar
- deiglan
- gagnrynandi
- doggpals
- ekg
- elfur
- eeelle
- ellamagg
- elismar
- evaice
- ea
- fannarh
- lillo
- vidhorf
- gerdurpalma112
- gunnargunn
- tilveran-i-esb
- gthg
- gun
- gudbjorng
- zumann
- gudjul
- gp
- hreinn23
- brekkukotsannall
- gustaf
- hallarut
- morgunblogg
- hannesgi
- miniar
- maeglika
- heimssyn
- aanana
- hildurhelgas
- himmalingur
- minos
- atvinnulaus
- daliaa
- ingvarvalgeirs
- jakobk
- fun
- jennystefania
- jonsullenberger
- dondi
- jonsnae
- jonvalurjensson
- jonarni
- jonoskarss
- jorunnfrimannsdottir
- kaffistofuumraedan
- krist
- kristinn-karl
- krissiblo
- kristjan9
- altice
- sleggjudomarinn
- elvira
- mathieu
- morgunbladid
- ninasaem
- pallru
- pallvil
- palmij
- iceland
- ragnar73
- rannsoknarskyrslan
- redlion
- seinars
- fullvalda
- logos
- sigrunzanz
- sigurduringi
- sigurdurkari
- siggisig
- sisi
- siggifrikk
- stebbifr
- stjornuskodun
- stormsker
- saevargudbjornsson
- athena
- susannasvava
- tibsen
- ubk
- vala
- val
- vestarr
- postdoc
- gummih
- asdisran
- thjodarsalin
- mullis
- sumri
- t24
- omarragnarsson
- umbiroy
- thjodarheidur
- thorhallurheimisson
- flinston
- diva73
- thjodarskutan
- lifsrettur
- samstada-thjodar
- fullveldi
Jan. 2025 | ||||||
S | M | Þ | M | F | F | L |
---|---|---|---|---|---|---|
1 | 2 | 3 | 4 | |||
5 | 6 | 7 | 8 | 9 | 10 | 11 |
12 | 13 | 14 | 15 | 16 | 17 | 18 |
19 | 20 | 21 | 22 | 23 | 24 | 25 |
26 | 27 | 28 | 29 | 30 | 31 |
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (30.1.): 1
- Sl. sólarhring: 2
- Sl. viku: 21
- Frá upphafi: 1146725
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 21
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Ég er algjörlega sammála. Það er í lagi að mótmæla ALLA AÐRA DAGA EN ÞENNAN. Þetta setur "vinstri hjörðina" SKÖR NEÐAR en svei mér þá ég hélt að þetta lið kæmist ekki neðar í lágkúrunni, en "lengi getur vont versnað".
Jóhann Elíasson, 16.6.2015 kl. 20:36
Er sammála ykkur báðum, Axel og Jóhann, þetta á ekki við á þessum degi, en hitt gæti þó orðið eðlilegt að nota einmitt þennan dag til mótmæla, ef stjórnvöld landsins ætluðu sér að vinna gegn lýðveldinu með því að leggja það eins og sláturkepp inn í allsherjarkaupfélag stórveldabandalags.
17. júní á að vera sameiningardagur fullvalda, frjálsrar þjóðar.
Til hamingju með daginn, Íslendingar!
Jón Valur Jensson, 17.6.2015 kl. 02:26
Góðann meirihluta atkvæða?
Þú meinar minna en helming greiddra atkvæða, og hafa sterkann þingmeirihluta í skjóli misvægis atkvæða og uppbótarþingmanna?
Þú hlýtur að hafa verið að meina það.
Siggi (IP-tala skráð) 17.6.2015 kl. 13:31
Nei Siggi, ég meina meirihluta greiddra atkvæða og 38 þingmenn af 63. Þú breytir ekki niðurstöðu kosninga eftir eigin höfði og belgir þig svo út með þá sögufölsun eina að vopni.
Axel Jóhann Axelsson, 17.6.2015 kl. 14:18
Sögufölsun?
Greidd atkvæði - 193792
Ríkisstjórnin - 96627
Hlutfall af greiddum atkvæðum = 49,86%
Þú talaðir um góðann meirihluta, þetta er nú allur meirihlutinn. Með því að benda á staðreyndir þá er ég að "belgja mig út með þá sögufölsun eina að vopni", það var þá sannleiksástin :)
Siggi (IP-tala skráð) 17.6.2015 kl. 14:59
Sjálfstæðisflokkurinn fékk 26,7% atkvæða og Framsóknarflokkurinn 24,4%. Þetta gerið 51,1% og þar með góður meirihluti, þar sem önnur atkvæði skiptust á marga flokka. Þetta getur þú séð hvar sem er þar sem úrslitin eru birt, t.d. hérna: https://is.wikipedia.org/wiki/Al%C3%BEingiskosningar_2013#.C3.9Arslit
Axel Jóhann Axelsson, 17.6.2015 kl. 15:28
Gamli Símahrellirinn JVJ veður hérna fram til að tjá sig. Grey karldruslan er orðin svo gamall að hann man ekki sjálfur til hvers hann hvatti : "
"Vér mótmælum allir" – man það einhver? Mótmælum á þessum 17. júnímorgni, mótmælum Icesave-svikasamningi, mótmælum Esb-skósveinum á Alþingi! "
(Tekið frá http://maggib.blog.is/blog/maggib/entry/1802521/)
Ég má mótmæla en ekki þu segir gamli hrellirinn. Ekki sama Jón eða Jón hValur
thin (IP-tala skráð) 17.6.2015 kl. 15:51
Jón Valur útskýrir sjálfur hverju hann var að mótmæla á sínum tíma og af hverju þennan dag. Ég réttlæti það hreint ekki.
Axel Jóhann Axelsson, 17.6.2015 kl. 17:10
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.