Lilju Mós. langar að verða "maður ársins"

Lilja Mósesdóttir hefur gefið í skyn, bæði í opinberum fjölmiðlum og á Facebooksíðu sinni, að hún liggi undir einelti illgjarnra þingmanna Samfylkingarinnar og VG vegna þess að hún sé eini þingmaðurinn í Íslandssögunni sem hafi eigin skoðanir og standi fast á þeim, hvað sem á bjátar og hvað sem samstarfsmenn segi um það.

Lilja er einhver mesti lýðskrumari sem á þingi hefur setið og þykist geta gert "allt fyrir alla" með því að hækka alla skatta ennþá meira en þegar hefur verið gert og henni finnst alveg hræðilegt að ekki skuli vera búið að finna upp miklu fleiri "skattstofna" til að "nýta að fullu" eins og hún og aðrir kommúnistar kalla skattahækkanabrjálæðið sem hjáir þá. 

Hjarðeðli Íslendinga beinist nú allt að því að vorkenna Lilju vegna þessara ofsókna ímyndaðra óvina hennar og þessa dagana er verið að kjósa "mann ársins" á flestum fjölmiðlum og má nánast örugglega reikna með að Lilja nái því kjöri víða og verði sjaldan neðar en í öðru sæti.

Lilju hefur tekist snilldarlega upp við að afla sér vorkunnar og mun vafalaust uppskera eins og hún sáir:  LILJA MÓS. verður kjörinn maður ársins á Íslandi 2010.

Það er oft hægt að hlæja dátt að því hvernig hægt er að spila á hjarðeðli landans.


mbl.is Ekki níð um nokkurn mann segir Ólína
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Loftur Altice Þorsteinsson

 

Ólína Þorvarðardóttir dregur dám af hinni njólunni í Samfylkingunni. Jóhann Sigurðardóttir segist einn vita hvert Icesave-stjórnin eiga að stefna og þá þurfi ekki að fara eftir rituðum stjórnarsáttmála. Ólína veit auðvitað betur en Lilja Mósesdóttir, hvað í stjórnarsáttmálanum stendur. Ólína segir:

 

»…þingmaður sem ekki er sammála meginmarkmiðum og stefnu þess stjórnarmeirihluta sem hann starfar fyrir hlýtur að þurfa að gera það upp við sig með hverjum hann ætlar að starfa.«

 

Vonandi kemst Lilja fljótlega að sömu niðurstöðu og flestir aðrir landsmenn, að Icesave-stjórnin er mesta ógæfa sem yfir eina þjóð getur dunið. Þetta er ríkisstjórn sem í öllum málum vinnur gegn almenningi. Burt með þessar fúnu og daunillu njólur.

 

 

Loftur Altice Þorsteinsson, 21.12.2010 kl. 16:48

2 Smámynd: Axel Jóhann Axelsson

Algerlega sammála þér Loftur.

Axel Jóhann Axelsson, 21.12.2010 kl. 17:14

3 identicon

Mikið til í þessu.  Held samt að Lilja myndi aldrei viðurkenna að hún væri að spila með hjarðeðli þjóðarinnar. 

Merkilegast í þessu öllu þessa dagana er að fjölmiðlamenn hafa ekki áttað sig á því að manneskjan hefur logið að þeim og þjóðinni undanfarnar vikur. 

Jón Óskarsson (IP-tala skráð) 21.12.2010 kl. 17:42

4 Smámynd: Bergljót Gunnarsdóttir

Loftur, heitirðu Alice?

 Það er margt bitastætt í færslunni þinni, en mér leiðist alveg með afbrigðum að lesa svona subbuhátt frá samkynhneigðar fasistum. Kemurðu úr fortíðinni, eða ertu bara svona forstokkuð?

Bergljót Gunnarsdóttir, 21.12.2010 kl. 20:25

5 Smámynd: Axel Jóhann Axelsson

Bergljót, það munar mikið um téið sem þú sleppir í miðnanfninu hans Lofts.

Ekki næ ég nú hvað þú kallar subbuhátt samkynhneigðarfasista í athugasemd hans og er þó búinn að lesa hana nokkrum sinnum.

Axel Jóhann Axelsson, 21.12.2010 kl. 21:11

6 Smámynd: Bergljót Gunnarsdóttir

"Jóhann Sigurðardóttir segist einn vita..", finnst þér það ekki nóg. Maðurinn er að tala um forsætisráðherra landsins, konu sem heitir Jóhanna Sigurðardóttir. Þetta finnst mér meira en nóg!

t-inu sleppti ég vísvitandi. Mér finnst nefnilega forvitnilegt hvernig svona manni finnst að vera kvenkenndur.

Bergljót Gunnarsdóttir, 21.12.2010 kl. 21:26

7 Smámynd: Bergljót Gunnarsdóttir

Verði Lilja kjörin maður ársins finnst mér aftur á móti kominn tími til að flytja úr landi.

Bergljót Gunnarsdóttir, 21.12.2010 kl. 21:27

8 Smámynd: Axel Jóhann Axelsson

Bergljót, ég var marg búinn að lesa þetta og tók þessu eins og hverjum öðrum prentvillum, enda eru þær algengar á blogginu, hjá manni sjálfum og öðrum.

Nú sé ég a.m.k. hvernig þú skildir þetta og vafalaust er það rétt hjá þér.

Axel Jóhann Axelsson, 21.12.2010 kl. 21:44

9 identicon

Bergljót,það er sama hvort Lilja verður kosin maður eða kona ársins eða ekki,það er kominn tími til að flytja úr landi,,,,fyrir löngu síðan

Casado (IP-tala skráð) 22.12.2010 kl. 00:34

10 Smámynd: Ágúst H Bjarnason

Ég má kannski skjóta því inn að Loftur Altice er verkfræðingur. Nafnið Altice er einfaldlega ættarnafn. Þekktast í Bandaríkjunum, en komið þangað frá Evrópu um miðja átjándu öld, eftir því sem ég veit.

Mikið væri nú annars gott ef á þingi sætu fleiri sem væru eins vel menntaðir í hagfræði og Lilja og þyrðu að hugsa sjálfstætt, og segja það sem þeir hugsa.

Ágúst H Bjarnason, 22.12.2010 kl. 12:53

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband