Níðingslegar árásir á útrásarvíkinga

Það er óhætt að taka undir með Pálma í Iceland Express, að endalausar árásir óvandaðra manna á fyrrverandi útrásarvíkinga eru algerlega óþolandi og ósanngjarnar, enda útrásarvíkingar eins og aðrir víkingar vanir að að sölsa undir sig eignir, gersemar og jafnvel lönd, án þess að mikil mótspyrna sé veitt.

Eftir að Pálma, í félagi við vin sinn Jón Ásgeir og fleiri, mistókst að eyðileggja Icelandair í eitt skipti fyrir öll, tókst Pálma að "bjarga" Iceland Express undan þrotabúi Fons og reynir nú sem best hann má, að knésetja Icelandair með því að setja upp áætlunarflug á alla viðkomustaði félagsins og ekki annað að sjá, en íslenskir ferðalangar styðji hann dyggilega í þeirri herferð.

Útrásarvíkingarnir hafa líklega þurft að þola nóg, með því að missa bankana sína, þó ekki sé verið að eltast við þá vítt og breitt um heiminn til þess að reyna að reita af þeim þá aura, sem þeim tókst að hafa út úr þjóðinni á útrásarvíkingatímanum.

Þjóðin hefur lengi þakkað Bónusgenginu allt það góða sem fyrir þjóðina hefur komið í gegn um tíðina og nú væri sanngjarnt að bæta Pálma í Iceland Express í þann hóp.  Jafnvel fleiri útrásarvíkingum, þó þeir hafi ekki verið hálfdrættingar í góðverkum sínum á við Bónusgengið.


mbl.is Slitastjórn í veiðiferð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Guðmundur Júlíusson

Ertu ekki að grínast Axel, ef ég vissi ekki betur héldi ég að í dag væri 1 apríll!!! en ég kíkti á dagatalið og það er í raun 9 október, þú ert gersamlega út úr kú finnst mér núna með þessari bloggfærslu þinni og innileg sannfæring þín og meðaumkun um útrásarvíkinga smýgur í  gegn um merg og bein hjá mér!

Guðmundur Júlíusson, 9.10.2010 kl. 21:24

2 Smámynd: Benedikta E

Axxxeel........................ HVAÐA - HVAÐA ?

Benedikta E, 9.10.2010 kl. 21:31

3 Smámynd: Gunnar Heiðarsson

Gott grín hjá þér Axel.

Gunnar Heiðarsson, 9.10.2010 kl. 21:58

4 identicon

Háð og grín. Ok.

Hrafn Arnarson (IP-tala skráð) 9.10.2010 kl. 22:17

5 Smámynd: Hrólfur Þ Hraundal

Tek undir það með þér Gunnar.

Hrólfur Þ Hraundal, 9.10.2010 kl. 22:19

6 identicon

Komið þið sæl; Axel Jóhann - og aðrir gestir þínir !

Axel Jóhann !

Á þetta; að vera háðs ádeila - eða setti sjálfur frjálshyggju predikarinn, uppi við Rauðavatn (þar syðra); Davíð Oddsson, þér þennan texta, undir dagsetur ?

Trúi því vart; fremur en margir, hér að ofan, að þér sé alvara, með þessarri grein þinn, Axel minn.

En; með beztu kveðjum samt, sem áður, úr Árnesþingi /

Óskar Helgi 

Óskar Helgi Helgason (IP-tala skráð) 9.10.2010 kl. 23:46

7 Smámynd: Bergljót Gunnarsdóttir

 Þú getur þá grínast, flott!

 Eigum við ekki bara að falast eftir smá hjálp frá feðgunum í fínu fötunum, nöfnin þeirra byrja jú bæði á Björg, og það með stórum staf - og þakka síðan pent með tárvot augu. 

Bergljót Gunnarsdóttir, 10.10.2010 kl. 05:29

8 Smámynd: Axel Jóhann Axelsson

Ekki datt manni í hug að nokkur maður myndi taka þessi skrif öðruvísi en þau voru meint, þ.e. sem háð og grín.  Í raun átti þetta svo sem við öll banka- og útrásargengin, þó aðeins fáir væru nafngreindir, en svipað má segja um þá alla, enda segjast þeir allir vera misskildir snillingar, sem hafi unnið þjóð sinni mikið gagn í gegn um tíðina.

Sú siðblinda veldur mörgu tárvotu auganu.

Axel Jóhann Axelsson, 10.10.2010 kl. 12:48

9 Smámynd: Sigurður Haraldsson

Mikið grín mikið gaman en grátur í lokinn svo er fyrir okkur komið!

Sigurður Haraldsson, 10.10.2010 kl. 21:06

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband