Flöt skuldalækkun verður ekki samþykkt

Ríkisstjórnin, með Jóhönnu Sig. og Steingrím J. í broddi fylkingar, hefur margsagt að flöt skuldalækkun komi ekki til greina, enda eigi þeir að borga skuldir sínar, sem það geti, en hjálpa skuli hinum, sem komnir eru í þrot og geta ekki staðið undir skuldabyrði sinni.

Eftir stærsta mótmælafund sögunnar, sem haldinn var á Austurvelli á meðan á þingsetningarræðu Jóhönnu stóð á mánudagskvöldið var, var ráðherrunum svo brugðið að þeir byrjuðu umsvifalaust að lofa öllum skuldurum öllu fögru og gengu svo langt að gefa í skyn, að farið yrði út í almenna skuldalækkun, sem ná myndi til allra, hvort sem þeir þyrftu á því að halda eða ekki.

Í gær, þegar Jóhanna var aðeins farin að ná sér eftir mótmælasjokkið, byrjaði hún að draga í land aftur og sagði að almenn skuldalækkun yrði "skoðuð" eins og annað, en skuldamál heimilanna myndu hafa algjöran forgang á næstunni, en útskýrði ekki hvers vegna ríkisstjórninni hefði ekki dottið í hug að gera allt sem mögulegt var í þeim efnum fyrr.  Hún tók jafnframt fram, að til þess að hægt væri að fara í almenna lækkun skulda, þyrfti að ná samningum við bankana, Íbúðalánasjóð og lífeyrissjóðina, ásamt heildarsátt við aðila vinnumarkaðarins.

Vitað er að Íbúðalánasjóður hefur ekkert svigrúm til að fella niður skuldir, bankarnir hafa engan vilja til að fara í almennar skuldaniðurfellingar, hvort sem þeir geta það eða ekki, án aðkomu skattgreiðenda og lífeyrissjóðirnir vilja alls ekki fara í slíkar aðgerðir, enda þyrfti að láta elli- og örorkulifeyrisþega sjóðanna greiða fyrir það.  Um hvað á að ræða við aðila vinnumarkaðarins í þessu sambandi er óútskýrt og ekki auðséð.

Ríkisstjórnin hrökklast úr einu víginu í annað og nú er varla nema dagaspursmál, þangað til hún lýsir yfir algerum ósigri og játar að hafa aldrei meint neitt með loforðinu um almennu skuldalækkunina.


mbl.is Þingmenn vilja leysa skuldavandann
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Bergljót Gunnarsdóttir

Hvað leggur þú til?

Bergljót Gunnarsdóttir, 10.10.2010 kl. 05:34

2 Smámynd: Axel Jóhann Axelsson

Ég hefði viljað að farið yrði að tillögum Sjálfstæðisflokksins, sem gengu út á að skattleggja séreignarsparnaðinn við inngreiðslu og gefa öllum skuldurum kost á að greiða helming afborgana af lánum sínum í a.m.k. þrjú ár, á meðan unnið væri að endanlegum lausnum fyrir hvern og einn og þannig hefði a.m.k. verið hægt að bjarga flestum frá því að missa íbúðir sínar á uppboð.

Þær ráðstafanir, sem gerðar hafa verið í skuldamálunum eru svo flóknar og seinvirkar að þær hafa hjálpað afar fáum og vegna tímans sem þetta tekur versnar skuldastaðan í stað þess að lagast og vandamálið verðu sífellt torleystara.

Tillögur verða hins vegar að koma frá "réttum" aðilum til þess að vera nýttar fólkinu í hag.

Axel Jóhann Axelsson, 10.10.2010 kl. 12:54

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband