Færsluflokkur: Bloggar
6.5.2011 | 08:38
Hreyfingin vill enga hreyfingu í efnahagslífið
Um leið og kjarasamningar hafa verið frágengnir með það að markmiði, fyrir utan að bæta kjör launþega, að koma fjárfestingum af stað í þjóðfélaginu, auka atvinnu og minnka atvinnuleysi á sem skemmstum tíma, var alveg viðbúið að ýmsir nöldurseggir hæfu upp raust sína með áskorunum um að samningarnir verði felldir í félögunum, þegar þeir kæmu þar til atkvæðagreiðslu.
Hreyfingin reið á vaðið í þessum efnum á opnum fundi í gærkvöldi og sendi frá sér áskorun til launþega um að fella samningana, þar sem "þeir séu stórvarasamir", án þess að frekari skýring fylgi önnur en sú að þeir bæti ekki að fullu það tjón sem almenningur hafi orðið fyrir á undanförnum árum.
Þessi óábyrga ályktun er vafalaust aðeins fyrirboði þess áróðurs sem senn mun hefjast gegn samþykkt þessara kjarasamninga og ekki gerði forysta ASÍ sér það léttara að tala fyrir samningunum með óábyrgri framkomu sinni í aðdraganda 1. Maí og gaspursins þá um baráttuanda og verkföll, sem sýna skyldu illmennunum í SA hvað það þýddi að leika sér í jó-jó í miðjum kjaraviðræðum.
Gaspur og ruglandaháttur ASÍ-forystunnar mun þyngja róðurinn fyrir hana sjálfa í framhaldinu, þegar kemur að kynningu samninganna og meðmælum með samþykkt þeirra.
Launþegar eru hins vegar upp til hópa ábyrgt fólk, sem mun út frá sínum eigin hagsmunum samþykkja kjarasamningana og ekki hlusta á niðurrifsáróðurinn.
![]() |
Vilja að launþegar felli samningana |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
5.5.2011 | 21:43
Til hamingju Cal Worthington
Cal Worhington, ellilífeyrisþega, er hér með óskað til hamingju með sína ungu og fallegu eiginkonu, Önnu Mjöll, söngkonu, sem honum tókst að heilla svo hraustlega upp úr skónum að ástin, sem blossaði upp í kjölfarið, endaði með hjónabandi í síðasta mánuði.
Karlinn verður að teljast heppinn með kvonfangið, því eldriborgarar eiga oft erfitt með svefn og nú getur hann sofnað sæll og glaður við undurfagran söng eiginkonunnar.
Ekki er að efa að nú sofnar hann fyrr á kvöldin en áður, þar sem nú þreytist hann fyrr en ella, enda áreiðanlega spilað á spil á heimilinu fram undir kvöldmat og þá er aldeilis notalegt að hafa einkasöngvara til að syngja sig inn í draumalandið.
Sem betur fer þarf Anna samt ekki að sjá alfarið fyrir eiginmanni sínum, þar sem honum mun hafa tekist að leggja sæmilega fjárhæð fyrir til elliáranna og á a.m.k. nóg fyrir jarðarförinni, sem illu heilli gæti verið skammt undan.
Vonandi endist þetta fallega hjónaband sem allra lengst, en það byggist þó alfarið á heilsu ellismellsins.
![]() |
Anna Mjöll giftist forríkum bílasala 9. apríl |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
5.5.2011 | 18:46
Ástarpungar og faðmlög
Leikritinu dramatíska um kjarasamninga er að ljúka í Karphúsinu og í leikslok fallast aðalleikararnir í faðma, kyssa hver annan á allar kinnar og setjast að lokum að veisluborði, þar sem boðið er upp á rjómavöfflur og ástarpunga.
Leikararnir frá ASÍ léku á afar ósannfærandi hátt síðustu dagana fyrir 1. Maí og þann merka dag, leikþáttinn um hörku sína og aumingjahátt SA og hvernig illmennin í þeim samtökum ætluðu sér að svindla áfram á almúganum, eins og jafnan áður, en ASÍ skyldi sko sýna þeim i tvo heimana með harkalegustu verkföllum sem nokkurn tíma hefðu yfir þessa þjóð dunið.
Strax eftir 1. Maí og án þess að nokkurt hlé yrði gert, eins og þó er venja í leikhúsum, breyttist söguþráður verksins og varð að sannkölluðum gleði- og ástarleik, þar sem leikarar lágu í svo þéttum faðmlögum að siðprúðir áhorfendur gátu ekki annað en gripið fyrir augun, vegna ótta um að siðferði þeirra yrði ofboðið með fleðulátunum.
Nú er tjaldið fallið og það eina sem eftir er að gera, a.m.k. af hálfu ASÍ, er að funda með launþegum og sannfæra þá um að allt sem sagt hafi verið í fyrri hluta leikritsins hafi verið eintómt grín, en lokakaflinn hafi hins vegar falið í sér stórkostlega lýsingu á hetjudáðum og hugrekki fulltrúa lýðsins, sem brotið hafi mótstöðu illvirkjanna algerlega á bak aftur.
Fyrir áhorfendur var þetta leikrit leiðileg, fyrirsjáanleg og margendurtekin tugga og algerlega ótrúverðug, þar að auki.
![]() |
Vöfflur og ástarpungar á borð |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
4.5.2011 | 20:15
Velkomin Harpa
Dagurinn í dag er risastór í lista- og menningarsögu þjóðarinnar, en í kvöld eru opnunartónleikar í Tónlistar- og ráðstefnuhúsinu Hörpu og mun Sinfóníuhljómsveit Íslands ríða á vaðið með tónleikum undir stjórn Vladimirs Azkenasys og fyrsta tónvekið sem leikið verður er nýtt verk, Velkomin Harpa, eftir Þorkel Sigurbjörnsson.
Húsið er glæsilegt útlits og í raun heilmikið hönnunar- og byggingarafrek, enda hefur það verið dýrt í byggingu, en á móti kemur að húsið mun bera hróður landsins, borgarinnar, hönnuða og byggingaraðila á lofti um langan aldur og laða til sín innlenda og erlenda listamenn með alls kyns listviðburði og án vafa mun ráðstefnuhald erlendra aðila stóraukast hér á landi.
Harpa er öllum sem að byggingu hennar hafa komið til mikils sóma og á eftir að efla og styrkja listir og menningu þjóðarinnar og bera hróður sinn og landsins um heiminn allan.
Húsinu og þeim rekstri sem þar mun fara fram er óskað heilla og góðs gengis um alla framtíð.
Til hamingju Íslendingar með Hörpuna. Í dag er gleðidagur í sögu lands og þjóðar.
![]() |
Harpa þá og nú |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 20:18 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
4.5.2011 | 17:53
ESBaðild kemur ráðherra ekkert við
Margt furðulegt vellur upp úr sumum þingmönnum á Alþingi og hefur t.d. margt skrítið, skondið og fáránlegt oltið upp úr Þráni Bertelssyni, heiðurslaunaþingmanni, og nægir þar að benda á fullyrðingu hans um það, að a.m.k. 5% þjóðarinnar séu fábjánar.
Nú hefur Þráinn gefið það út, bæði á þingflokksfundi VG og opinberlega, að hann styðji ekki Jón Bjarnason lengur sem Landbúnaðar- og sjávarútvegsráðherra, vegna þess að Jón mun hafa sagt að það væri sitt helsta verk í ráðuneytinu að fylgjast með og gæta hagsmuna íslensks landbúnaðar og sjávarútvegs í aðlögunarferlinu að ESB.
Í viðtali við DV segir Þráinn um þessa afstöðu Jóns: Mér finnst það heldur einkennilegur skilningur á starfi sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra og teldi heppilegra að hann fengist við eitthvað annað." Ráðherra ber ekki bara að gæta hagsmuna þeirrar atvinnugreinar, sem undir hans ráðuneyti heyrir, heldur ber honum skylda til að gera sitt til að vernda og efla starfsumhverfi greinarinnar í þágu þjóðarinnar allrar og þjóðarbúsins. Slík vöktun hefur aldrei verið nauðsynlegri en einmitt núna, þegar Samfylkingin beitir öllum brögðum til að véla þjóðina inn í stórríkið, væntanlega.
Þingmenn eru reyndar enn ábyrgari í þessum efnum en ráðherrarnir, þar sem þingið setur lögin og reglurnar sem ráðherrunum ber að starfa eftir. Þingmaður sem ekki skilur þessar einföldu staðreyndir um starf sitt, Alþingis og ráðuneytanna ætti skilyrðislaust að fást við eitthvað annað en þingmennsku.
Eftir þessa yfirlýsingu Þráins getur ríkisstjórnin varla átt annan kost en að segja af sér þegar í stað, enda nýtur hún ekki lengur meirihlutastuðnings á Alþingi, sé eitthvert mark takandi á Þráni, sem raunar er ekki líklegt að neinn geri.
![]() |
Styður ekki Jón sem ráðherra |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
3.5.2011 | 19:59
Gasprið kokgleypt
Forkólfar ASÍ og ýmissa launþegafélaga fóru mikinn í 1. Maí-ræðum sínum og ýmsum ummælum síðustu vikuna þar á undan og töluðu digurbarklega um að nú væri þeir búnir að fá nóg af þvermóðsku SA og vegna hennar kæmi ekki til greina lengur að ganga frá kjarasamningum til þriggja ára, jafnvel þó þeir hefðu sjálfir verið búnir að samþykkja slík samningsdrög þann 15. apríl s.l.
Nokkrum sinnum var skrifað um þennan fýlulega leikþátt ASÍ-forystunnar og því bæði spáð og krafist, að strax eftir hátíðarræðurnar yrðu þær kokgleyptar og strax að helginni lokinni yrði gengið frá samningum, enda væri allt annað hreint rugl og ábyrgðarleysi.
Nú er að koma í ljós að gasprararnir eru byrjaðir að éta ofan í sig stóryrðin og munu væntanlega ljúka þeirri ólystugu máltíð í nótt.
Vonandi mun hún ekki standa í þeim, þannig að veruleg andnauð hljótist af.
![]() |
Stefnt að samningi í nótt |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
3.5.2011 | 15:42
Hvar skyldi vera kvartað mest?
Samkvæmt nýbirtum lista yfir stöðu mæðra í heiminum er Ísland í þriðja efsta sæti næst á eftir Norgegi og Ástralíu. Í fréttinni segir þetta um röð ríkjanna, þar sem mæður hafa það best og verst:
"Samkvæmt lista Save the Children eru staða mæðra best í eftirtöldum ríkjum: Noregi, Ástralíu, Íslandi, Svíþjóð, Danmörku, Nýja-Sjálandi, Finnlandi; Belgíu, Hollandi og Frakklandi. Vert er hún í Miðafríkulýðveldinu, Súdan, Malí, Eritreku, Lýðveldinu Kongó, Tsjad, Jemen, Gíneu-Bissau, Níger og Afganistan."
Fróðlegt hefði verið að samantektinni hefði fylgt listi yfir þau lönd þar sem mest er kvartað undan aðbúnaði og kjörum mæðra í heiminum.
Ætli Íslendingar eigi ekki heimsmet í því, eins og svo mörgu öðru?
![]() |
Gott að vera móðir á Íslandi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
3.5.2011 | 05:31
Osama bin Laden er sprelllifandi
Þaæ fréttir berast nú um heiminn að Osama bin Laden hafi verið drepinn á heimili sínu í Pakistan eftir skyndiárás bandarískrar sérsveitar, sem hafi skotið hann eins og hvern annan hund, þar sem hann hékk og leitaði sér skjóls í pilsfaldi eiginkonu sinnar.
Þetta er auðvitað helber lygi, enda strax farnar að berast fréttir af því að myndir af líki hans séu falsaðar, árásin hafi verið sviðsett í samvinnu við pakistönsk yfirvöld, sem skulduðu kananum greiða og það, að segjast hafa kastað líkinu í hafið, sýni og sanni að sagan sé uppspuni frá rótum.
Á næstunni munu frekari sannanir verða færðar fyrir áframhaldandi tilvist bin Ladens hér á jarðríki, t.d. með myndbirtingum af honum á harðahlaupum um fjöll og firnindi í Pakistan og Afganistan, ávörp munu birtast frá honum bæði á mynd- og hljóðböndum og væntanlega munu þau sýna mörg andlit karlsins og enn fjölbreyttari raddnotkun.
Allt er þetta eitt allsherjar samræri heimsvaldasinna í þeim tilgangi að ljúga því að heiminum að enginn sé óhultur fyrir löngum armi réttvísinnar og ekki sé hægt að forðst maklegu málagjöldin, jafnvel þó menn búi til skiptis í hellum, eins og hverjir aðrir útilegumenn, eða í víggirtum lúxusvillum í auðmannahverfum stórborga.
Sannarlega er Osama bin Laden jafn lifandi og Elvis Presley, Kennedy og fleiri stórmenni, sem reynt hefur verið að telja auðtrúa almenningi trú um að séu farnir yfir móðuna miklu.
Auðvitað trúir ekki nokkur maður svona lygasögum.
![]() |
Bin Laden, Saddam og Hitler |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 05:32 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
2.5.2011 | 07:43
Lítið afrek eftir langan tíma
Osama Bin Laden, eftirlýstasti glæpahundur sögunnar er loksins allur eftir að bandarískri sérsveit tókst að komast að greni hans og skjóta hann og þrjá félaga hans eftir, að því er virðist nokkuð langan bardaga við fámennt lið á staðnum.
Það er varla hægt að kalla þetta mikið afrek, þar sem allar leyniþjónustur veraldar hafa leitað að Osama í nærri tíu ár í þeim tilgangi að koma honum fyrir kattarnef, en ekki tekist ætlunarverkið fyrr en nú.
Frekar hlýtur að mega ætla að þetta sýni hversu lélegar þessar leyniþjónustustofnanir eru, því tíminn, fyrirhöfnin og fjármunirnir sem farið hafa í leitina að þessum manni er stjarnfræðilegur. Að svona glæpamaður skuli geta gegnið laus í svo langan tíma er eiginlega ótrúlegt, miðað við það kapp sem lagt hefur verið á að ná honum, lifandi eða dauðum.
Mossad, leyniþjónusta Ísraels, er sú stofnun sem liðtækust virðist vera í svona eltingaleik við óvini, en henni var algerlega haldið utan við þetta mál, enda hefði það skapað mikinn glundroða meðal araba ef Ísraelar hefðu orðið til þess að drepa þennan Saudi-arabíska glæpahund.
Þó fagna megi að Osama Bin Laden sé allur, er engin ástæða til að fagna "afrekinu" og hvað þá að ætla að hryðjuverkastríðinu sé lokið.
Vesturlönd eiga sjálfsagt eftir að finna fyrir grimmilegum hefndaraðgerðum.
![]() |
Osama bin Laden allur |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
1.5.2011 | 21:58
Lýðskrum í hæstu hæðum
Í dag fengu margir helstu lýðskrumarar landsins kjörið tækifæri til að koma boðskap sínum á framfæri við þjóðina, sumir á 1. maí fundum vítt og breitt um landið og Ögmundur Jónasson, fékk að koma sínu skrumi til skila við messu í Neskirkju.
Boðskapur Ögmundar var sá, að enginn í landinu ætti að fá greitt meira í launaumslagið en þreföld lágmarkslaun og með því mætti koma á endanlegu réttlæti í okkar ágæta, en fátæka þjóðfélagi.
Svipuð launastefna var rekinn í kommúnistaríkjunum og hvergi hafa spilling og mútugreiðslur af öllum toga verið meira vandamál, en einmitt í þeim ríkjum. Ekki var hægt að fá tíma hjá lækni, nema greiða aukalega fyrir það undir borðið og nánast sama á hvaða sviði það var, ekkert fékkst gert nema gegn aukagreiðslum, sem viðkomandi móttakandi leit einungis á sem launauppbót, vegna ósanngjarnra kjara sem hann naut frá vinnuveitanda sínum, ekki síst ef um opinbera aðila var að ræða.
Ögmundur var sjálfur formaður launþegasamtaka í langan tíma og aldrei heyrðist af þessari "réttlætiskröfu" úr þeim herbúðum undir hans stjórn, en hins vegar vita allir að hjá hinu opinbera eru launataxtarnir aðeins til málamynda í mörgum tilfellum og alls kyns aukagreiðslur tíðkaðar, svo sem fyrir óunna yfirvinnu, bifreiðastyrkir, að ekki sé talað um titlatogið sem notað er til að hækka fólk í töxtum, t.d. með skrifstofustjóra-, deildarstjóra- og fulltrúatitlum.
Lýðskrumið er í sjálfu sér ekkert skemmtilegt áheyrnar, en þó er ekki hægt annað en hlæja að því.
![]() |
Hæstu laun verði þreföld lægstu laun |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)