Bloggfærslur mánaðarins, apríl 2010
30.4.2010 | 23:34
Ribbarldarnir komnir aftur á kreik
Ekki var hægt að rétta í máli óaldarlýðsins, sem réðst inn í Alþingishúsið og slasaði þar starfsfólk, í Héraðsdómi í dag, vegna skrílsláta félaga hinna ákærðu og varð að kalla til lögreglu til að hafa stjórn á ólátabelgjunum.
Þessi lýsing er höfð eftir Ragnari Aðalsteinssyni, lögmanni ribbaldanna: Þetta er algjörlega nýtt. Samfélagið breytist ótrúlega ört úr þessu litla friðsama samfélagi í þetta óhugnanlega hörkulega samfélag, þar sem ofbeldið á að ráða öllu.
Þó ótrúlegt sé, er verjandi innrásarmanna í þinghúsið, sem eins og áður sagði slösuðu þar starfsfólk, að tala um að lögreglan skyldi kölluð í dómshúsið en ekki framkomu og yfirgang "stuðningsmanna" skjólstæðinga sinna.
Óþjóðalýðurinn hlýtur að vera ánægður með svona verjanda.
Þinghald undir lögreglustjórn | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (9)
30.4.2010 | 19:37
Mótmæli og grín
Framboð Besta flokksins er tómt grín, eins og Jón Gnarr og aðrir frambjóðendur "flokksins" taka alltaf skýrt fram í öllum viðtölum við þá og til að byrja með var grínið gott, en er nú orðið ansi þreytt og verður hreinlega orðið leiðinlegt þegar kemur að kosningum.
Fylgi flokksins í skoðanakönnunum sýnir óánægju kjósenda með hrunið og framgöngu stjórnmálamanna í aðdraganda þess, sem ekki fær háa einkunn í rannsóknarskýrslunni. Þessari óánægu veitir fólk útrás í skoðanakönnunum, en þegar í kjörklefann verður komið, mun fólk ekki grínast neitt með kjörseðilinn, enda kosningarétturinn helgari en svo, að heilu kosningarnar verði eyðilagðar vegna einhvers stundargamans.
Kjörtímabilið er fjögur ár og þegar horft er til baka, til fyrstu tveggja ára yfirstandandi tímabils og þess nánast upplausnarástands sem þá ríkti í borgarstjórn, mun enginn láta sér detta í hug að kjósa slíkt ástand yfir sig aftur. Þess vegna verður því ekki trúað, að Besti flokkurinn fái mörg atkvæði talin upp úr kjörkössunum að kvöldi kjördags.
Svona grín getur verið dauðans alvara.
Besti flokkurinn fengi fjóra kjörna | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
30.4.2010 | 14:46
Gengistryggð lán ekki sama og erlend lán?
Héraðsdómur Reykjavíkur hefur dæmt skuldara í vil, í máli sem Landsbankinn höfðaði á hendur honum til innheimtu á "gengistryggðu" láni, þar sem upphaflegur höfuðstóll var tilgreindur í íslenskum krónum, sem síðan átti að "gengistryggja" miðað við jen og svissneska franka.
Dómarinn vísar í áður genginn dóm frá 12. febrúar s.l. og segir í sinni niðurstöðu, eftir að hafa rakið röksemdir fyrri dómsins: "Dómari þessa máls er í einu og öllu sammála þeirri niðurstöðu sem er svo skýrlega orðuð í þessum dómi. Telur hann m.ö.o. að ekki sé heimilt að reikna fjárhæð skuldar varnaraðila með þeirri hækkun sem sóknaraðili reiknar vegna breytinga á gengi jens og svissnesks franka gagnvart íslenskri krónu. Telur hann að miða verði við upphaflegan höfuðstól auk áfallinna vaxta, en að ekki sé heimilt að reikna annars konar verðtryggingu í stað gengisviðmiðunar."
Það atriði, að ekki mætti reikna annars konar verðtryggingu í stað gengistryggingarinnar, kom ekki fram í fyrri dómnum, en hefur valdið nokkrum heilabrotum síðan, þ.e. hvort lánveitanda myndi verða heimilt að setja verðtryggingu miðaða við neysluverðsvísitölu á lánin í staðinn fyrir "gengistrygginguna", enda hefðu bæði lánveitandi og skuldari ætlað að hafa lánsupphæðina verðtryggða með einhverjum hætti. Þessi dómur kveður upp úr með það, að það sé alls ekki heimilt og upphaflegi höfuðstóllinn sé þar með algerlega óverðbættur og umsamdir vextir gildi einnig, þó gera megi ráð fyrir að þeir hafi verið mjög lágir, eins og var í flestum tilfellum "gengistryggðu" lánanna.
Tveir dómar hafa nú fallið á sama veg, um að óheimilt sé að gengistryggja lán, þar sem upphaflegur höfuðstóll er tilgreindur í íslenskum krónum, en ekki hafa ennþá fallið dómar, ef rétt er munað, vegna lána, þar sem höfuðstóllinn er tilgreindur í erlendum myntum. Því verður ekki hægt að líta á þessa dóma, sem fordæmisgefandi vegna slíkra lána, þannig að nú verða allir að skoða vel afrit af skuldabréfum sínum og bílalánasamningum til að sjá hvernig þeir eru upp settir, til að sjá undir hvora skilgreininguna þeir falla.
Spennan eftir úrskurði Hæstaréttar vex með hverjum deginum sem líður.
Ekki heimilt að gengistryggja | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
29.4.2010 | 20:51
Jón Ásgeir er "traustur" lántakandi
Bandaríska tímaritið Time hæðist að einhverjum mestu og bestu banka- og viðskiptajöfrum þjóðarinnar (að eigin mati) á lýðveldistímanum. Björgólfur Guðmundsson, Jón Ásgeir og Heiðar Már fá umsögn um sig, sem óvíst er að þeim sjálfum þyki réttlátar, eftir þær fórnir sem þeim finnst þeir hafa fært fyrir þjóð sína.
Svona var umsögnin um Jón Ásgeir: Þegar þú ert myndarlegur gaur sem selur fatnað, þá þarftu virkilega að klúðra málum til að fólk safnist saman á úti á götu til að mótmæla þér. Og fyrir fyrrum ástkonu þína að ræða um kynlíf þitt við réttarhöld í bókhaldsbrotamáli. Hvað sem því líður, þá mun enginn lána þér pening. Ekki einu sinni krónu."
Íslenskir bankamenn þekkja Jón Ásgeir miklu betur en þessir óláns skriffinnar hjá Times, því varla var búið að birta þessa dellu, þegar Jón Ásgeir var búinn að fá nýtt 440 milljóna króna kúlulán til tíu ára, óverðtryggt og með lágum vöxtum.
Bankamennirnir vita af langri reynslu hverjum er treystandi fyrir peningum og hverjum ekki.
Fólk getur sofið svo miklu rólegar, þegar það veit að íslenskum fjármálastofnunum er stjórnað af eintómum snillingum.
VIÐBÓT:
Að betur hugsuðu máli þá kemur maður því ekki heim og saman, að nokkur einasti aðili myndi lána Jóni Ásgeiri á þessum kjörum. Þetta hljóta að vera heimatilbúin skuldabréf sem verið er að þinglýsa á fasteignir þeirra hjóna til að verjast kyrrsetningu fasteignanna og jafnvel að þegar og ef þær verða gerðar upptækar vegna t.d. skattaskulda eða sekta, að þá nýtist þessar 440 milljónir upp i greiðslu skattanna/sektanna.
Þetta er eina haldbæra skýringin á þessum veðsetningum. Annað væri svo geggjað, að það er ekki ætlandi nokkrum fjármagnseiganda eða lánastofnun.
Áhrifalitlir útrásarvíkingar | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 21:22 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
29.4.2010 | 15:06
Er þjóðkirkjan að klofna vegna samkynhneigðar?
Prestastefna gat ekki komist að niðurstöðu um, hvort kirkjan skyldi styðja frumvarp dómsmálaráðherra um að ein hjúskaparlög skuli gilda fyrir alla, hvort sem um væri að ræða gagnkynhneigð eða samkynhneigð pör.
Óeiningin hefur greinilega verið mikil á prestastefnunni, þar sem 56 greiddu því atkvæði að vísa fyrirliggjandi tillögum til biskups og kenningarnefndar kirkjunnar, en 53 voru á móti því að þessir aðilar innan kirkjunnar fjölluðu nánar um málið, svo hægt væri að leggja það fyrir kirkjuþing í haust.
Fyrst ágreiningur er svona mikill innan prestastéttarinnar um málið, hlýtur að vera stórhætta á því að þjóðkirkjan klofni í tvær fylkingar, sem væntanlega mætti kalla hvítliða og svartstakka. Séra Geir Waage er einn harðasti forystumaður svartstakka, en hann flutti tillögu á þinginu, sem við fyrstu sýn gæti bjargað þjóðkirkjunni frá því að klofna í herðar niður, en fréttin segir svo frá henni: "
"Geir Waage, sókarprestur í Reykholti, lagði á móti fram tillögu á Prestastefnu um að beina því til Alþingis að létta af prestum Þjóðkirkjunnar umboði til þess að vera vígslumenn í skilningi hjúskaparlaga. Sagði Geir við mbl.is, að það myndi þýða, að prestar færu ekki lengur með hið lögformlega vígsluhlutverk. Fólk þyrfti þá formlega að gifta sig, t.d. hjá fógeta, en gæti eftir sem áður notið blessunar í kirkju óskaði það þess."
Getur nokkuð bjargað þjóðkirkjunni frá klofningi vegna ágreinings um samkynhreigð, annað en að taka vígslukaleikinn af henni?
Tóku ekki afstöðu | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 15:07 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (57)
29.4.2010 | 10:12
Hafa ESBsinnar ekkert um þetta að segja heldur
Vanalega þegar bloggað er um ESBskrímslið og efnahags- og skuldavanda þjóðanna sem mynda það, að ekki sé minnst á þegar evrunni er spáð skammlífi, hrúgast inn athugasemdir frá nytsömum ESBsinnum Samfylkingarinnar og mótmæla öllum slíkum ummælum hástöfum og reyna að skjóta allar spár um erfiðleika ESB ríkja í kaf, sem tóman þvætting.
Undanfarið hafa birst hver ummælina af öðrum, frá virtum hagspekingum austan hafs og vestan, um vanda ESB ríkjanna og galla evrunnar, en þá bregður svo við að ESBsinnar hafa algerlega horfið af bloggsíðum og engin rök virðast legnur tiltæk, til þess að mótmæla þessum "einangrunarsinnum", eins og ESBaðdáendur kalla alla, sem ekki eru á sama máli og þeir.
Noeriel Roubini, bandarískur háskólaprófessor, sem áður hefur spáð fyrir um fjármálakreppur, hefur nú bæst í hóp þeirra sérfræðinga, sem áhyggjur hafa af skuldavanda ýmissa ríkja og þá ekki síst stærstu hagkerfanna. Hann segir m.a: Þótt markaðirnir hafi nú áhyggjur af Grikklandi þá er það land aðeins toppurinn á ísjakanum eða kanarífuglinn í kolanáminni en undirliggjandi eru mun víðtækari vandamál," sagði Roubini.
Hann sagði í samtali við Bloomberg, að Grikkir kynnu á endanum að neyðast til að yfirgefa evrusamstarfið. Það myndi leiða til gengisfalls evrunnar. Þá muni vandamál bandaríska ríkissjóðsins á endanum komast í sviðsljósið."
Íslendingar eru látnir halda, að erfiðlega gangi að fá erlend lán um þessar mundir vegna þess að fjármálagúrúar veraldarinnar hafi svo miklar áhyggjur af Icesave. Líklegra er að þeir hafi litla sem enga vitneskju um það mál og lánatregðan stafi af miklu stærri og djúpstæðari vandamálum, sem heimurinn á við að kljást og almennt verði ekki mikið um laust lánsfé á næstu árum.
Hafa ESBelskendur ekkert um þetta að segja, eða eru engir eftir lengur?
Roubini segir Grikkland aðeins toppinn á ísjakanum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (9)
29.4.2010 | 08:45
Engin lýðræðisást - baráttuþrekið þrotið
Þóra Kristín Ásgeirsdóttir, formaður BÍ, dró framboð sitt til áframhaldandi setu, sem formaður félagisins, til baka í gær, einungis sólarhring fyrir aðalfund félagsins, sem haldinn verður í kvöld. Samkvæmt fréttum undanfarna daga hafði ýmsum brögðum verið beitt gegn meðframbjóðandanum, m.a. með því að gefa í skyn að fjármál félagsins væru ekki í lagi og mótframbjóðandinn hefði óhreint mjöl í pokahorninu í þeim efnum.
Blaðamannafélagið er ekki stórt félag og ekki hefur farið miklum sögum af starfsemi þess á undanförnum árum, fyrir utan stóryrtar samþykktir og yfirlýsingar stjórnarinnar við ritstjóraráðningu á Mogganum, þó ekki hafi frést af slíkum samþykktum fyrr eða síðar, við yfirmannaskipti á nokkrum fjölmiðli öðrum.
Hvað sem líður innanfélagserjum í BÍ, þá er athyglisvert að formaðurinn skuli heykjast á framboði sínu daginn fyrir kosningarnar og bendir það til þess að frambjóðandinn hafi talið endurkjör sitt ólíklegt og því ákveðið að draga framboðið til baka, til þess að þurfa ekki að upplifa niðurlægingu, að eigin mati, eftir talningu atkvæða.
Það er enginn sérstakur mannsbragur að því, að gefast upp á síðustu metrunum í svona kosningum.
Þóra Kristín hættir | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
29.4.2010 | 01:21
Frábær borgarstjóri
Hanna Birna Kristjánsdóttir hefur staðið sig frábærlega í embætti borgarstjóra og ber höfuð og herðar yfir kollega sína, sem gegnt hafa embættinu á undanförnum árum. Mikill órói og ósamstaða einkenndi störf borgarstjórnar árin áður en hún tók við, en eftir að hún settist í stólinn gjörbreyttust vinnubrögðin þar innandyra og mikil samvinna verið milli meiri- og minnihluta í borgarstjórninni.
Hanna Birna var í viðtali hjá Sölva á Skjá einum í kvöld og sýndi þar og sannaði með framkomu sinni og svörum, að þar er mikill leiðtogi á ferðinni og hugmynd hennar um "þjóðstjórn" í borginni afar athyglisverð, eða eins og hún sagði, þá er miklu skynsamlegra að fullnýta krafta allra fimmtán borgarfulltrúanna, heldur en að einhverjir átta myndi ávallt meirihluta og hinir sjö hafi nánast ekkert hlutverk, annað en að sitja og hlusta á meirihlutann.
Borgarbúar eru vel sæmdir af Hönnu Birnu í borgarstjórastólnum og vonandi bera þeir gæfu til þess að styðja hana til áframhaldandi góðra verka í borgarstjórnarkosningunum í vor.
Hún á það sklið og Reykvíkingar eiga það skilið.
Þjóðstjórn í borgarstjórn? | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
28.4.2010 | 21:25
Hvað segja ESBsinnar við þessu?
ESB og AGS eru að fara á límingunum vegna efnahagsástandsins innan ESB og óttast ekkert meira um þessar mundir en að Evrópusambandið klofni í frumeindir sínar og/eða að myntbandalagið sé búið að renna sitt skeið.
Lánshæfismat Grikklands er komið í ruslflokk og Spánn, Portúgal og Írland virðast á sömu leið og hætta er á að Ítalía fylgi jafnvel á eftir. Skuldaklafi þessara þjóða er að sliga þær og þar sem efnahagskerfi landanna eru svo ólík innbyrðis, að evran er farin að verða þeim til trafala, en ekki sú björgun sem menn ætluðu henni að verða.
Núna þarf að draga umsókn Íslands um að fá að verða áhrifalaus útnárahreppur í þessu hryllingsbandalagi til baka, enda algerlega glórulaust að bindast þeim glundroða í efnahagsmálum, sem nú eru að skella á ESB.
Fréttin endar á þessari tilvitnun í framkvæmdastjóra AGS: "Strauss-Kahn telur hins vegar að ástandið á Grikklandi geti breiðst út til fleiri landa. Við þurfum að endurvekja traust ... Ég er sannfærður um að við náum að leysa vandann. En ef við komum Grikkjum ekki til hjálpar, mun það hafa mjög miklar afleiðingar fyrir Evrópusambandið.
Hvað segir Samfylkingin og aðrir nytsamir ESB sakleysingjar við þessu?
Ástandið gæti breiðst um Evrópu | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
28.4.2010 | 17:17
Farsæl lausn vegna gagnaversins
Iðnaðarnefnd Alþignis hefur lagt fram breytingartillögu við frumvarp um fjárfestingarsamning við Verne Holding vegna gagnavers félagsins á Suðurnesjum og er þar lagt til að stytta samningstímann um helming, úr tuttugu árum í tíu ár, auk þess að með ákvæði í samningum fellur Novator, félag Björgólfs Thor, frá fjárhagslegum ábata sem tengist beinlínis fjárfestingasamningnum.
Það er ekki alveg augljóst, hvernig á að reikna þennan ábatahlut Novators út, en einhver reikniregla hlýtur að liggja að baki fyrst félagið ætlar að láta hann renna í ríkissjóð. Það út af fyrir sig er virðingarvert og með þessu verður vonandi síðustu hindruninni rutt úr vegi í þessu mikilvæga atvinnusköpunarmáli.
Hérna á blogginu var lagt til, að skilyrða samninginn við að Novator yrði gert að selja sig út úr verkefninu, en nefndin telur slíkt ekki standast jafnræðisreglu og þá vaknar spurning um hvort það skilyrði sem félaginu er sett í breytingartillögunni standist nokkuð frekar jafnræðisregluna.
Vonandi fer þingið ekki að eyða allt of löngum tíma í þras um þetta mál, en afgreiði það sem allra fyrst, því vinnufúsar hendur bíða með óþreyju eftir því að verkið hefjist.
Þingið kveður upp siðferðisdóm | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)