Rándýr glæpasaga

Saksóknari í málinu vegna sölu Baldurs Guðlaugssonar á hlutabréfum í Landsbankanum staðhæfir að Baldur segi ósatt um vitneskju sína um stöðu bankans við hlutabréfasöluna, enda segist vitni hafa setið fund með Baldri og bankastjórum Landsbankans, þann 13. ágúst 2008, þar sem erfið staða bankans hafi verið rædd.

M.a. ber vitnið að:  "Baldur hefði setið fund með sér ásamt bankastjórum Landsbankans, Sigurjóni Árnasyni og Halldóri J. Kristjánssyni, 13. ágúst í fyrra.  Á fundinum lýstu þeir, „í algjörum trúnaði", eins og Björn komst að orði, því yfir að Landsbankinn gæti lent í vandræðum þar sem bankinn gæti ekki orðið við kröfum breska fjármálaeftirlitsins um færslu á Icesave-reikningum Landsbankans yfir í breskt dótturfélag."

Landsbankinn var skráður í Kauphöll og bar skylda til að tilkynna til hennar um allt, sem gæti haft áhrif á verð hlutabréfa bankans, en ekki er vitað til þess að svo hafi verið gert, hvorki fyrir 13. ágúst 2008, eða síðar.

Þetta hlýtur að benda til þess, að nánast allar aðgerðir og aðgerðaleysi stjórnenda Landsbankans marga mánuði fyrir hrun, hafi verið ólöglegar og verði Baldur fundinn sekur, sem líkur benda til, þá hljóti fleiri að fylgja honum í tugthúsið fyrir sömu sakir og margir fyrir miklu meiri sakir.

Banka- og útrásarrugl undanfarinna ára er að verða að dýrustu glæpasögu sem um getur.


mbl.is „Baldur staðinn að ósannindum"
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Bjarni Kjartansson

Ekki voru heldur upplýsingar Kaupþings heldur milkar vöxtu eða sannar.

Þeir mættu á hvern fund af öðrum með falsaða pappíra, í hverjum eignfjár hlutfallið var mjög gott og allt leit út fyrir, að bankinn væri verulega vel stæður.  Annað kom í ljós.

Bjarni Kjartansson, 17.12.2009 kl. 11:38

2 Smámynd: Axel Jóhann Axelsson

Bjarni, rétt er það og sama á við um Glitni og sparisjóðina. 

Allir lugu og sviku eins og þeim væri borgað fyrir það. 

Reyndar var þeim borgað fyrir það.

Axel Jóhann Axelsson, 17.12.2009 kl. 11:46

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband