29.11.2009 | 09:49
Skelfileg tilhugsun
Búast má við því, að á næstunni selli á holskefla málsókna á hendur íslenska ríkinu, vegna neyðarlaganna og mun þýski bankinn DekaBank væntanlega verða fyrsti jakinn í því jökulflóði.
Í frétt mbl.is kemur m.a. þetta fram: "Lögfræðingur, sem er að undirbúa málssókn fyrir hönd bankans, sagði í samtali við Reuters að það væri skelfileg tilhugsun að fara í mál við ríki þar sem það gæti opnað flóð nýrra krafna á Ísland sem væru miklu hærri en þeir 5 milljarðar punda sem landið skuldaði Bretum og Hollendingum."
Það er skelfileg tilhugsun að íslenska ríkisstjórnarnefnan skuli ætla að veita ríkisábyrgð á skuldum einkabanka og velta þeim yfir á íslenska skattgreiðendur framtíðarinnar.
Jafn skelfileg tilhugsun er, að ríkisstjórnarnefnan skuli ekki a.m.k. fresta afgreiðslu málsins, þar til dómstólar hafa komist að niðurstöðu um, hvort ríkisábyrgðin standist stjórnarskrána.
Þó ólíklegt sé, að íslenskir dómstólar felli neyðarlögin úr gildi, er það skelfileg tilhugsun að íslenska ríkisstjórnin skuli ganga erinda Breta og Hollendina í Icesavemálinu, en ekki sinnar eigin þjóðar.
Íslenska ríkisstjórnarnefnan er "skelfileg tilhugsun".
![]() |
Undirbýr mál gegn Íslandi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
« Síðasta færsla | Næsta færsla »
Höfundur

Áhugamaður um lífið og tilveruna.
Athugasemdir og umræður eru öllum opnar á síðunni, en þess vænst að þær séu hófstilltar og án mikilla stóryrða.
Ruddalegar athugasemdir, sem innihalda lítið sem ekkert annað en skítkast og/eða persónulegar svívirðingar um menn og málefni verða fjarlægðar af þessari síðu, jafnóðum og þær uppgötvast.
Eldri færslur
2021
2020
2019
2018
2017
2016
2015
2014
2013
2012
2011
2010
2009
Færsluflokkar
Tenglar
Mínir tenglar
Bloggvinir
-
malacai
-
andres
-
annabjorghjartardottir
-
attilla
-
skagstrendingur
-
baldvinj
-
benediktae
-
beggo3
-
h2o
-
bbg
-
bjarnimax
-
bookiceland
-
siggibragi
-
brandarar
-
deiglan
-
gagnrynandi
-
doggpals
-
ekg
-
elfur
-
eeelle
-
ellamagg
-
elismar
-
evaice
-
ea
-
fannarh
-
lillo
-
vidhorf
-
gerdurpalma112
-
gunnargunn
-
tilveran-i-esb
-
gthg
-
gun
-
gudbjorng
-
zumann
-
gudjul
-
gp
-
hreinn23
-
brekkukotsannall
-
gustaf
-
hallarut
-
morgunblogg
-
hannesgi
-
miniar
-
maeglika
-
heimssyn
-
aanana
-
hildurhelgas
-
himmalingur
-
minos
-
atvinnulaus
-
daliaa
-
ingvarvalgeirs
-
jakobk
-
fun
-
jennystefania
-
jonsullenberger
-
dondi
-
jonsnae
-
jonvalurjensson
-
jonarni
-
jonoskarss
-
jorunnfrimannsdottir
-
kaffistofuumraedan
-
krist
-
kristinn-karl
-
krissiblo
-
kristjan9
-
altice
-
sleggjudomarinn
-
elvira
-
mathieu
-
morgunbladid
-
ninasaem
-
pallru
-
pallvil
-
palmij
-
iceland
-
ragnar73
-
rannsoknarskyrslan
-
redlion
-
seinars
-
fullvalda
-
logos
-
sigrunzanz
-
sigurduringi
-
sigurdurkari
-
siggisig
-
sisi
-
siggifrikk
-
stebbifr
-
stjornuskodun
-
stormsker
-
saevargudbjornsson
-
athena
-
susannasvava
-
tibsen
-
ubk
-
vala
-
val
-
vestarr
-
postdoc
-
gummih
-
asdisran
-
thjodarsalin
-
mullis
-
sumri
-
t24
-
omarragnarsson
-
umbiroy
-
thjodarheidur
-
thorhallurheimisson
-
flinston
-
diva73
-
thjodarskutan
-
lifsrettur
-
samstada-thjodar
-
fullveldi
Apríl 2025 | ||||||
S | M | Þ | M | F | F | L |
---|---|---|---|---|---|---|
1 | 2 | 3 | 4 | 5 | ||
6 | 7 | 8 | 9 | 10 | 11 | 12 |
13 | 14 | 15 | 16 | 17 | 18 | 19 |
20 | 21 | 22 | 23 | 24 | 25 | 26 |
27 | 28 | 29 | 30 |
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (2.4.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 2
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 2
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Þau stóðu sig snilldarlega Geir, Ingibjörg og svo Davíð í Seðlabankanum! Og svo auðvitað hún Þorgerður sem sagði að hagfræðingurinn sem spáði fyrir um hrun bankanna ætti bara að reyna að læra fræðin sín betur!
Mundu að "markaðurinn leiðréttir sig sjálfur!"
Árni Gunnarsson, 29.11.2009 kl. 11:13
Árni, ekki er augljós tilgangur þinn með því að reyna að leiða athyglinga frá kjarna málsins, með þessu ótrúlega þreytta gaspri um fólk, sem hafði ekkert með rekstur banka og útrásarfyrirtækja að gera. Sem betur fer var sósíalisminn ekki á því stigi, þó þróunin til Sovét Íslands sé nú komin á góðan rekspöl.
Það verður væntanlega draumaríki, eða hvað?
Axel Jóhann Axelsson, 29.11.2009 kl. 11:42
Já, íslenska ríkisstjórnin sjálf er skelfileg, Axel, og nánast allt sem þeir takast á hendur og stjórnarflokkarnir vinna örugglega ekki fyrir okkur. Og ég man enn eftir þessum orðum Þorgerðar sem Árni lýsir. Það var minnir mig tengt hagfræðiprófessornum Robert Wade.
Elle_, 29.11.2009 kl. 19:07
Ekki finnst mér þetta þreytt gaspur hjá Árna. Við megum til með að minna okkur á þetta öðru hverju.
Líkast til verða neyðarlögin samþykkt fyrir rest. Klárleg mismunun á milli þegna landa. Hvernig er það ef að íslenskir dómstólar felli lögin ekki úr gildi, getur þá bankinn áfrýjað til erlendra dómstóla?
bestu kveðjur
einar
Einar T (IP-tala skráð) 29.11.2009 kl. 21:45
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.