Ríkisstjórn í bakkgír

Það er einkenni sitjandi ríkisstjórnanefnu, að boða alls kyns óhugsaðar aðgerðir og draga þær svo til baka nokkrum dögum síðar.  Oft gefst betur að hugsa fyrst og framkvæma svo, en þessi svokallaða ríkisstjórn boðar ýmsar aðgerðir, en hugsar aldrei.

Nýbúið er að tilkynna skerðingar á fæðingarorlofi og í dag eru þær dregnar til baka, en boðað að stytta fæðingarorlog næsta árs um einn mánuð, sem heimilt verður að nýta síðar, væntanlega þegar barnið verðu fermt.

Það er alveg með ólíkindum hversu ráðvillt og þar með villuráfandi þessi volaða ríkisstjórnarnefna er.

Hún veit ekkert í hvaða átt hún er að fara, en heldur að hægt sé að áfangastað verði náð í bakkgírnum.


mbl.is Foreldrar fresta einum mánuði
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Jú hún er ráðvillt, en hún veit alveg nákvæmlega hvert hún vill fara, en það er til Brussel.

Rafn Haraldur Sigurðsson (IP-tala skráð) 28.11.2009 kl. 20:37

2 identicon

Þetta getur aldrei gengið svona, dæmigert fyrir vanhugsuð fáránlingavinnubrögð ríkisstjórnarinnar. Þetta gerir það að verkum að konur sem vilja og geta haft börn sín á brjósti í 6 mánuði eins og WHO mælir með geta það ekki og einstæðar mæður þurfa að fara fyrr að vinna frá ungbörnum sínum. Þetta er steypa!

Hanna (IP-tala skráð) 28.11.2009 kl. 21:19

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband