22.11.2009 | 18:26
Njóta trausts eftir þúsund milljarða tap
Stjórnendur Arion banka segja að Hagar séu ekki til sölu, því verið sé að leita lausna með núverandi "eigendum" Haga, vegna þess að þeir njóti svo mikils trausts og þá væntanlega meira trausts en nokkur annar.
Þetta kemur fram í frásögn Brynjars Níelssonar, hæstaréttarlögmanns, sem fór á fund stjórenda bankans í dag, fyrir hönd Þjóðarhags og kynnti vilja hans til að kaupa Haga. Í fréttinni segir: "Þegar Brynjar spurði hvers vegna hluturinn hefði ekki verið boðinn hæstbjóðanda vísuðu stjórnendur bankans í verklagsreglur, þar sem segir að að áframhaldandi þátttaka eigenda og stjórnenda byggist á því að þeir njóti trausts og þyki mikilvægir fyrir framtíð fyrirtækisins."
Baugsfeðgar eiga í raun ekki nokkurn skapaðan hlut í Högum, því þeir fengu þrjátíumilljarða lánaða frá Kaupþingi/Arion til að "kaupa" fyrirtækið og það án þess að leggja fram eina krónu sjálfir. Með því aðstoðaði bankinn feðgana við að koma Högum undan gjaldþroti Baugs og þar að auki bjargaði bankinn feðgunum úr snörunni með því að gefa þeim kost á að selja Baugi sjálfum þau hlutabréf, sem þeir áttu í því fyrirtæki. Þannig kom bankinn þeim hjá því að tapa fimmtán milljörðum persónulega á gjaldþroti Baugs.
Hjá hvejum njóta Baugsfeðgar alls þessa trausts.
Það getur ekki verið annarsstaðar en hjá stjórnendum Arions banka.
Hlutur í Högum ekki til sölu | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
« Síðasta færsla | Næsta færsla »
Höfundur
Áhugamaður um lífið og tilveruna.
Athugasemdir og umræður eru öllum opnar á síðunni, en þess vænst að þær séu hófstilltar og án mikilla stóryrða.
Ruddalegar athugasemdir, sem innihalda lítið sem ekkert annað en skítkast og/eða persónulegar svívirðingar um menn og málefni verða fjarlægðar af þessari síðu, jafnóðum og þær uppgötvast.
Eldri færslur
2021
2020
2019
2018
2017
2016
2015
2014
2013
2012
2011
2010
2009
Færsluflokkar
Tenglar
Mínir tenglar
Bloggvinir
- malacai
- andres
- annabjorghjartardottir
- attilla
- skagstrendingur
- baldvinj
- benediktae
- beggo3
- h2o
- bbg
- bjarnimax
- bookiceland
- siggibragi
- brandarar
- deiglan
- gagnrynandi
- doggpals
- ekg
- elfur
- eeelle
- ellamagg
- elismar
- evaice
- ea
- fannarh
- lillo
- vidhorf
- gerdurpalma112
- gunnargunn
- tilveran-i-esb
- gthg
- gun
- gudbjorng
- zumann
- gudjul
- gp
- hreinn23
- brekkukotsannall
- gustaf
- hallarut
- morgunblogg
- hannesgi
- miniar
- maeglika
- heimssyn
- aanana
- hildurhelgas
- himmalingur
- minos
- atvinnulaus
- daliaa
- ingvarvalgeirs
- jakobk
- fun
- jennystefania
- jonsullenberger
- dondi
- jonsnae
- jonvalurjensson
- jonarni
- jonoskarss
- jorunnfrimannsdottir
- kaffistofuumraedan
- krist
- kristinn-karl
- krissiblo
- kristjan9
- altice
- sleggjudomarinn
- elvira
- mathieu
- morgunbladid
- ninasaem
- pallru
- pallvil
- palmij
- iceland
- ragnar73
- rannsoknarskyrslan
- redlion
- seinars
- fullvalda
- logos
- sigrunzanz
- sigurduringi
- sigurdurkari
- siggisig
- sisi
- siggifrikk
- stebbifr
- stjornuskodun
- stormsker
- saevargudbjornsson
- athena
- susannasvava
- tibsen
- ubk
- vala
- val
- vestarr
- postdoc
- gummih
- asdisran
- thjodarsalin
- mullis
- sumri
- t24
- omarragnarsson
- umbiroy
- thjodarheidur
- thorhallurheimisson
- flinston
- diva73
- thjodarskutan
- lifsrettur
- samstada-thjodar
- fullveldi
Nóv. 2024 | ||||||
S | M | Þ | M | F | F | L |
---|---|---|---|---|---|---|
1 | 2 | |||||
3 | 4 | 5 | 6 | 7 | 8 | 9 |
10 | 11 | 12 | 13 | 14 | 15 | 16 |
17 | 18 | 19 | 20 | 21 | 22 | 23 |
24 | 25 | 26 | 27 | 28 | 29 | 30 |
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.11.): 5
- Sl. sólarhring: 5
- Sl. viku: 18
- Frá upphafi: 1146437
Annað
- Innlit í dag: 5
- Innlit sl. viku: 14
- Gestir í dag: 5
- IP-tölur í dag: 2
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
þú spyrð hjá hverjum þeir njóta trausts ?
Nú Samfylkinguni auðvitað !
afb (IP-tala skráð) 22.11.2009 kl. 18:56
Auðvelt að reka fyrirtæki vel ef ekki þarf að borga reikningana,við borgum þá bara með sköttunum okkar.
Sigríður Sigurðardóttir (IP-tala skráð) 22.11.2009 kl. 21:14
Vöruverðið í Bónus yrði nokkuð hátt, ef allt tap á félögum Bónusfeðga yrði reiknað inn þar inní.
Þá er ekki víst, að álit almennings á feðgunum sem verslunarrekendum yrði mikið eftir það.
Axel Jóhann Axelsson, 22.11.2009 kl. 21:27
Sammála þessu. Og mig langar að spyrja þá sem dásama Baugsmenn fyrir "lágt" vöruverð í Bónus hvort það sé ekki alveg eins sjálfsagt að dásama innbrotsþjófa fyrir það að selja fartölvur og flatskjái á mun lægra verði en verslanir? Því þetta er jú sami hluturinn. Baugur/Hagar (what ever) notar glæpsamlegar aðferðir til að bjóða upp á lægra vöruverð en aðrir með því að nota markaðsráðandi stöðu sína til að svínbeygja birgja til að selja þeim á undirverði (svipaðar aðferðir og mafíur og handrukkarar beita) og jafnvel sleppa því að greiða birgjum ef því er að skipta. Vesalings birgjarnir neyðast þá til að hækka verð til annarra til að vega upp á móti tapinu sem heldur vöruverði, annarsstaðar en í Bónus, þeim mun hærra. Munurinn á Baugsmönnum og innbrotsþjófum er þó sá að það er auðveldara að fá innbrotsþjóf dæmdan fyrir sín brot og þess vegna er Jón Ásgeir og co. ekki í fangelsi. Það er ekki nógu mikið bolmagn í ákæruvaldinu hér til að ráða við svona stóra fiska.
Muddur, 23.11.2009 kl. 12:16
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.