Ótrúlegur árangur Nígeríusvindlara

Reglulega berast fréttir af svokölluðum Nígeríusvindlurum, þó ekki séu þeir allir frá Nígeríu, sem tekst ótrúlega vel upp í svindli sínu á auðtrúa sakleysingjum.  Oft hafa þeir ótrúlegar upphæðir upp úr svindlstarfsemi sinni og gefa íslenskum útrásarskúrkum lítið eftir, svona hlutfallslega.

Nýjasta fréttin er af guðhræddum svindlara, sem gaf kirkjunni sinni í Lagos tíund af svindlafrakstri sínum, sem nam samtals um tólf milljónum króna.  Í þessu tilfelli virðist trúræknin hafa orðið manninum að falli og verður væntanlega að iðka sína trú, staurblankur, í tugthúsinu á næstunni.

Trúrækni hans varð honum að falli, eins og trúgirni fórnarlamba hans varð þeim að falli.

Alveg er með ólíkindum, hve margir falla fyrir þessum svindlurum á netinu, því nánast í hvert skipti tekst svindlurunum að hafa eitthvað upp úr krafsi sínu og oft þora fórnarlömbin ekki að kæra, því þau skammast sín fyrir heimsku sína og trúgirni.

Nígeríusvindl mun halda áfram, svo lengi sem trúgjarnar sálir finnast í veröldinni, enda fylgir oftast græðgi og gróðavon með trúgirninni, því oftast er lofað gulli og grænum skógum fyrir svör og aðstoð við einhverskonar peningaflutninga frá Nígeríu eða öðrum löndum.

Græðgin verður mörgum að falli, það hefur sannast eftirminnilega hérlendis undanfarin ár.

 


mbl.is Nígeríusvindlari gaf kirkjunni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband