Engin iðrun sparisjóðanna

Á aðalfundi Sambands íslenskra sparisjóða virðist ekki koma fram mikil iðrun vegna þátttöku sparisjóðanna í fjármálaruglinu á síðustu árum, en á þeim tíma tókst stjórendum nánast allra sparisjóðanna að leggja fjárhag þeirra í rúst með stórveldisdraumum sínum og sukki.

Í ályktun aðalfundarins kemur m.a. fram þetta:  "Þá skorar fundurinn á stjórnvöld að koma í veg fyrir að viðskiptasiðferði síðustu ára nái aftur fótfestu."

Væri ekki nær, að þessir fjármálarugludallar litu sér nær?

Viðskiptasiðferði verður til í höfði þeirra, sem stunda viðskipti.

Það verður ekki bætt með lagasetningu.


mbl.is Sparisjóðir vilja bæta fyrir sinn þátt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Mig persónulega langar til að skipta um banka er  með mín viðskipti í KB banka og er ekki hrifin getur einhver sagt mér þá hvernig Mp banki er er hann líka spilltur. Þessi ríkisstjórn hamrar á að bankarnir hefðu verið seldir spilltum mönnum en hvað gera þau nú, þau eru engu betri þau viðhalda sukkinu í gömlu bönkunum, alla vega eru þau ekki að benda á neitt annað.

Sigurbjörg Jónsdóttir (IP-tala skráð) 22.11.2009 kl. 15:24

2 Smámynd: Baldvin Björgvinsson

Það eru tveir bankar á landinu sem náðu að halda sig við sömu heiðarlegu viðskiptin og þeir hafa alltaf gert. Þessir tveir bankar þurfa ekki aðstoð ríkisins.

Þessir tveir bankar eru Sparisjóður Strandamanna og Sparisjóður Suður Húnvetninga.

Það ættu í raun að vera bara til tveir bankar í landinu í dag, það eru þessir tveir fyrrnefndu.

MP banki er nýr og á enn eftir að vinna sér traust, ég veit ekkert um hann. Ég flutti mín viðskipti til Sparisjóðs strandamanna en bý þó í Kópavogi.

Baldvin Björgvinsson, 23.11.2009 kl. 06:36

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband