13.11.2009 | 11:20
Bragð er að þá barnið finnur
Samfylkingin og hennar áhangendur, hafa hangið á því, eins og hundar á roði, að íslenskir skattgreiðendur skulduðu breskum sparifjáreigendum fullar bætur fyrir þær innistæður, sem þeir áttu hjá einkafyrirtækinu Landsbanka, í Englandi, við bankahrunið í fyrra.
Fram að þessu, hefur ekki heyrst ein einasta efasemdarrödd frá Samfylkingarliðinu, um málið, heldur hefur það allt gengið glatt í gegnum svipugöng Breta og Hollendinga og látið hýða sig duglega, enda litið á sig sem sakborninga í málinu og þar fyrir utan hafi þetta verið nauðsynleg fórn fyrir greiða inngöngu Íslands í ESB.
Nú kemur fyrrverandi formaður Samfylkingarinnar, seint og um síðir, og lýsir íslenska skattgreiðendur sýkna af kröfum kúgaranna, eða eins og segir í viðtali hennar við Sölva Tryggvason: Núna þegar við erum að reyna að semja okkur í gegnum Icesave, þá finnst mér svolítið eins og við komum fram eins og hinn seki.....göngum til samninganna eins og sakamaðurinn, en hins vegar séu bresk stjórnvöld laus allra mála, þau eru það auðvitað ekki.
Einnig er þessi yfirlýsing Ingibjargar merkileg í ljósi framgöngu flokkssystkina hennar: "Ingibjörg segir að sér finnist að íslenska samninganefndin hafi ekki lagt nógu mikla áherslu á ábyrgð Breta og ábyrgð Evrópusambandsins. Við séum að vinna samkvæmt dirctívi" frá Evrópusambandinu sem sé meingallað, sérstaklega þegar komi að alþjóðlegum bönkum."
Er þetta ný vitrun innan Samfylkingarinnar?
Vita Jóhanna og Össur um um þetta?
Ingibjörg Sólrún: Komum fram eins og sá seki | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
« Síðasta færsla | Næsta færsla »
Höfundur
Áhugamaður um lífið og tilveruna.
Athugasemdir og umræður eru öllum opnar á síðunni, en þess vænst að þær séu hófstilltar og án mikilla stóryrða.
Ruddalegar athugasemdir, sem innihalda lítið sem ekkert annað en skítkast og/eða persónulegar svívirðingar um menn og málefni verða fjarlægðar af þessari síðu, jafnóðum og þær uppgötvast.
Eldri færslur
2021
2020
2019
2018
2017
2016
2015
2014
2013
2012
2011
2010
2009
Færsluflokkar
Tenglar
Mínir tenglar
Bloggvinir
- malacai
- andres
- annabjorghjartardottir
- attilla
- skagstrendingur
- baldvinj
- benediktae
- beggo3
- h2o
- bbg
- bjarnimax
- bookiceland
- siggibragi
- brandarar
- deiglan
- gagnrynandi
- doggpals
- ekg
- elfur
- eeelle
- ellamagg
- elismar
- evaice
- ea
- fannarh
- lillo
- vidhorf
- gerdurpalma112
- gunnargunn
- tilveran-i-esb
- gthg
- gun
- gudbjorng
- zumann
- gudjul
- gp
- hreinn23
- brekkukotsannall
- gustaf
- hallarut
- morgunblogg
- hannesgi
- miniar
- maeglika
- heimssyn
- aanana
- hildurhelgas
- himmalingur
- minos
- atvinnulaus
- daliaa
- ingvarvalgeirs
- jakobk
- fun
- jennystefania
- jonsullenberger
- dondi
- jonsnae
- jonvalurjensson
- jonarni
- jonoskarss
- jorunnfrimannsdottir
- kaffistofuumraedan
- krist
- kristinn-karl
- krissiblo
- kristjan9
- altice
- sleggjudomarinn
- elvira
- mathieu
- morgunbladid
- ninasaem
- pallru
- pallvil
- palmij
- iceland
- ragnar73
- rannsoknarskyrslan
- redlion
- seinars
- fullvalda
- logos
- sigrunzanz
- sigurduringi
- sigurdurkari
- siggisig
- sisi
- siggifrikk
- stebbifr
- stjornuskodun
- stormsker
- saevargudbjornsson
- athena
- susannasvava
- tibsen
- ubk
- vala
- val
- vestarr
- postdoc
- gummih
- asdisran
- thjodarsalin
- mullis
- sumri
- t24
- omarragnarsson
- umbiroy
- thjodarheidur
- thorhallurheimisson
- flinston
- diva73
- thjodarskutan
- lifsrettur
- samstada-thjodar
- fullveldi
Nóv. 2024 | ||||||
S | M | Þ | M | F | F | L |
---|---|---|---|---|---|---|
1 | 2 | |||||
3 | 4 | 5 | 6 | 7 | 8 | 9 |
10 | 11 | 12 | 13 | 14 | 15 | 16 |
17 | 18 | 19 | 20 | 21 | 22 | 23 |
24 | 25 | 26 | 27 | 28 | 29 | 30 |
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 14
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 10
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Leiðtoginn að senda skilaboð...
Birgir Viðar Halldórsson, 13.11.2009 kl. 11:33
Númer 1), þá er hún hætt í stjórnmálum, þannig að hún getur talað eins og ótýndur bloggari. Hún er nú bara að vinna sér inn vinsældir, greyið konan, eftir að hafa pissað í skóinn sinn síðasta árið sitt í pólitíkinni.
Númer 2), þá segir hún nú að við berum ábyrgð á lágmarksupphæðinni. Hver lágmarksupphæðin er, er ómögulegt að segja, vegna flækjustigs málsins. Líklegt er þó að við þurfum að borga minna en lágmarksábyrgð, þannig að hvað er málið???
Bárður (IP-tala skráð) 13.11.2009 kl. 11:52
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.