Ekki má anda á banka- og útrásargarka

Það er alkunna hvernig almannatengslafyrirtækjum var beitt miskunnarlaust gegn hverjum þeim, sem leyfði sér að gagnrýna Baugsveldið á tímum Baugsmálsins fyrsta, og nægir þar að nefna Jónínu Benediktsdóttur og Sullenberger.  Sá áróður var svo gengdarlaus og skipulagður, að almenningsálitið snerist algerlega með sakborningunum, en á móti ákærendum.

Nú er sami leikur hafinn vegna bankamógúlanna, en nú er hirðáróðursmeistari Ólafs Ragnars Grímssonar, tekinn til starfa fyrir bankamógúlana úr Gamla Kaupþingi og ræðst harkalega á Moggann fyrir að skýra frá gengdarlausri lántöku þeirra til jarðarkaupa á Mýrunum.

Jafnvel þó hlutafé Hvítsstaða ehf. sé orðið 91 milljón, er það ekki há upphæð miðað við milljarðs skuld félagsins vegna þessara jarðarkaupa.

Allir, sem munu gagnrýna, eða andmæla þessum furstum, munu þurfa að reikna með hörðum persónulegum árásum lögfræði- og almannatengslaþjóna þessara stórmenna, sem skuldsettu þjóðfélagið, nánast til örbirgðar.


mbl.is Hvítsstaðamenn mótmæla frétt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Bankarnir voru sameign thjódarinnar.  Hvada flokkur sá til thess ad thessir bankar thjódarinnar kaemust í hendurnar á thessum mönnum?  

Hvada flokkur sá til thess ad audlindir sjávar kaemust í hendur á örfáum útvöldum?

Halllelúhhúhúja (IP-tala skráð) 8.11.2009 kl. 21:46

2 identicon

Hvada flokkur sá til thess ad audlindir sjávar kaemust í hendur örfárra útvalinna?

Halllelúhhúhúja (IP-tala skráð) 8.11.2009 kl. 21:49

3 Smámynd: Axel Jóhann Axelsson

Börn, eins og þú, sem bulla á blogginu á kvöldin, undir mishálfvitalegum nöfnum, ættu að finna sér barnaleiki við sitt hæfi, eða bara fara að sofa á tíma, sem svona litlum börnum sæmir.

Axel Jóhann Axelsson, 8.11.2009 kl. 22:18

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband