10.11.2015 | 18:38
Kunna forsprakkarnir að skammast sín?
Ótrúleg múgæsing greip um sig í þjóðfélaginu í gær eftir að auglýsingasnepillinn, sem kallar sig "Fréttablaðið", spann upp æsingafrétt um meinta nauðgun og hreinlega laug því að annar hinna ákærðu í málinu byggi í íbúð sem "útbúin væri til nauðgana".
Það er ekki nýtt að þessi umræddi snepill og fleiri óvandaðir fjölmiðlar birti fréttir af þessum toga til að vekja á sér athygli, en það furðulega gerðist að ótrúlegasta fólk gekk af göflunum vegna málsins og hreinlega tók hina ákærðu og alla þeirra aðstandendur nánast af lífi án dóms og laga, eins og raunar er vani dómstóls götunnar.
Viðbjóðurinn sem gekk um samfélagsmiðlana, jafnvel með myndbirtingum og hótunum allskonar, er ótrúlegur og gekk óþverrahátturinn svo langt að boðað var til útifundar við lögreglustöðina við Hlemm þar sem krafist var gæsluvarðhalds yfir hinum grunuðu, án þess að mannsöfnuðurinn hefði nokkrar sannanir eða annað en slúður og kjaftasögur til réttlætingar gerðum sínum.
Fréttastofur sjónvarpsstöðvanna, sem vilja láta taka sig alvarlega, tóku fullan þátt í uppþotinu með því að birta viðtöl við forsprakka uppþotsins án þess að sýna nokkurn skilning á þeim óhæfuverkum sem þetta lið átti upptök að og æsti til.
Svokallað "Fréttablað" hefur ekki séð sóma sinn í að biðjast afsökunar á sínum þætti þessa hneykslis og varla er að vænta að flestir þeirra sem verst létu geri það heldur.
Svona óþverraháttur er öllum sem að komu á einhvern hátt til ævarandi skammar og vonandi læra þeir að hugsa áður en þeir framkvæma næst þegar reynt verður að kalla saman dómstól götunnar.
þu munt missa útlimi | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
« Síðasta færsla | Næsta færsla »
Höfundur
Áhugamaður um lífið og tilveruna.
Athugasemdir og umræður eru öllum opnar á síðunni, en þess vænst að þær séu hófstilltar og án mikilla stóryrða.
Ruddalegar athugasemdir, sem innihalda lítið sem ekkert annað en skítkast og/eða persónulegar svívirðingar um menn og málefni verða fjarlægðar af þessari síðu, jafnóðum og þær uppgötvast.
Eldri færslur
2021
2020
2019
2018
2017
2016
2015
2014
2013
2012
2011
2010
2009
Færsluflokkar
Tenglar
Mínir tenglar
Bloggvinir
- malacai
- andres
- annabjorghjartardottir
- attilla
- skagstrendingur
- baldvinj
- benediktae
- beggo3
- h2o
- bbg
- bjarnimax
- bookiceland
- siggibragi
- brandarar
- deiglan
- gagnrynandi
- doggpals
- ekg
- elfur
- eeelle
- ellamagg
- elismar
- evaice
- ea
- fannarh
- lillo
- vidhorf
- gerdurpalma112
- gunnargunn
- tilveran-i-esb
- gthg
- gun
- gudbjorng
- zumann
- gudjul
- gp
- hreinn23
- brekkukotsannall
- gustaf
- hallarut
- morgunblogg
- hannesgi
- miniar
- maeglika
- heimssyn
- aanana
- hildurhelgas
- himmalingur
- minos
- atvinnulaus
- daliaa
- ingvarvalgeirs
- jakobk
- fun
- jennystefania
- jonsullenberger
- dondi
- jonsnae
- jonvalurjensson
- jonarni
- jonoskarss
- jorunnfrimannsdottir
- kaffistofuumraedan
- krist
- kristinn-karl
- krissiblo
- kristjan9
- altice
- sleggjudomarinn
- elvira
- mathieu
- morgunbladid
- ninasaem
- pallru
- pallvil
- palmij
- iceland
- ragnar73
- rannsoknarskyrslan
- redlion
- seinars
- fullvalda
- logos
- sigrunzanz
- sigurduringi
- sigurdurkari
- siggisig
- sisi
- siggifrikk
- stebbifr
- stjornuskodun
- stormsker
- saevargudbjornsson
- athena
- susannasvava
- tibsen
- ubk
- vala
- val
- vestarr
- postdoc
- gummih
- asdisran
- thjodarsalin
- mullis
- sumri
- t24
- omarragnarsson
- umbiroy
- thjodarheidur
- thorhallurheimisson
- flinston
- diva73
- thjodarskutan
- lifsrettur
- samstada-thjodar
- fullveldi
Nóv. 2024 | ||||||
S | M | Þ | M | F | F | L |
---|---|---|---|---|---|---|
1 | 2 | |||||
3 | 4 | 5 | 6 | 7 | 8 | 9 |
10 | 11 | 12 | 13 | 14 | 15 | 16 |
17 | 18 | 19 | 20 | 21 | 22 | 23 |
24 | 25 | 26 | 27 | 28 | 29 | 30 |
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 14
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 10
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
HEFUR ÞÚ SÖNNUN FYRIR ÞVÍ AÐ ÞETTA SE UPPSPUNI ???
Erla Magna Alexandersdóttir, 10.11.2015 kl. 19:51
Það er hvergi sagt í textanum að málið sé allt uppspuni. Það er hins vegar óviðunandi að dómstóll götunnar kveði upp dóma og taki fólk af lífi án nokkurrar vitneskju um málin.
Axel Jóhann Axelsson, 10.11.2015 kl. 20:04
Erla hefur þú sannanir fyrir því að þetta sé ekki uppspuni?
Kveðja frá Houston
Jóhann Kristinsson, 12.11.2015 kl. 04:46
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.