26.7.2015 | 17:11
Er krafa um læknisvottorð eintómt grín?
Hælisleitandi, sem virðst hafa talið sjálfan sig stálheilbrigðan þrátt fyrir að vera HIV smitaður, segist hafa á rúmu ári sængað með einhverjum tugum kvenna og vegna þess hvernig í pottinn er búið hugsanlega smitað a.m.k. einhvern hluta þeirra af veirunni.
Það einkennilega við málið er að allir sem sækja um dvalarleyfi, þar á meðal hælisleitendur, eiga að skila læknisvottorði, en eins og fram kemur í fréttinni virðist vera farið frjálslega með þá skyldu og enginn sem virðist eiga að taka við vottorðunum eða fylgjast með að þeim sé skilað.
Í frétt mbl.is er rætt við Harald Briem, sóttvarnarlækni, sem segir m.a: ""Allir sem sækja um dvalarleyfi, hælisleitendur þar á meðal, þurfa að skila vottorði," segir Haraldur og bætir við að það geti tekið sinn tíma að hafa vottorðið frágengið. Það eru ekki neinar nákvæmar dagsetningar á því hvenær menn eiga að vera komnir í skoðun og þess háttar, segir Haraldur enda hafa heilbrigðisyfirvöld ekki tök á því að taka fólk í læknisskoðun þegar í stað."
Það verður að teljast furðulegt, svo vægt sé til orða tekið, að enginn opinber embættismaður telji það vera í sínum verkahring að framfylgja reglum um heilsufarsskoðun þeirra sem sækja um dvalarleyfi, fyrst reglurnar eru fyrir hendi á annað borð.
Hafði ekki skilað læknisvottorði | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
« Síðasta færsla | Næsta færsla »
Höfundur
Áhugamaður um lífið og tilveruna.
Athugasemdir og umræður eru öllum opnar á síðunni, en þess vænst að þær séu hófstilltar og án mikilla stóryrða.
Ruddalegar athugasemdir, sem innihalda lítið sem ekkert annað en skítkast og/eða persónulegar svívirðingar um menn og málefni verða fjarlægðar af þessari síðu, jafnóðum og þær uppgötvast.
Eldri færslur
2021
2020
2019
2018
2017
2016
2015
2014
2013
2012
2011
2010
2009
Færsluflokkar
Tenglar
Mínir tenglar
Bloggvinir
- malacai
- andres
- annabjorghjartardottir
- attilla
- skagstrendingur
- baldvinj
- benediktae
- beggo3
- h2o
- bbg
- bjarnimax
- bookiceland
- siggibragi
- brandarar
- deiglan
- gagnrynandi
- doggpals
- ekg
- elfur
- eeelle
- ellamagg
- elismar
- evaice
- ea
- fannarh
- lillo
- vidhorf
- gerdurpalma112
- gunnargunn
- tilveran-i-esb
- gthg
- gun
- gudbjorng
- zumann
- gudjul
- gp
- hreinn23
- brekkukotsannall
- gustaf
- hallarut
- morgunblogg
- hannesgi
- miniar
- maeglika
- heimssyn
- aanana
- hildurhelgas
- himmalingur
- minos
- atvinnulaus
- daliaa
- ingvarvalgeirs
- jakobk
- fun
- jennystefania
- jonsullenberger
- dondi
- jonsnae
- jonvalurjensson
- jonarni
- jonoskarss
- jorunnfrimannsdottir
- kaffistofuumraedan
- krist
- kristinn-karl
- krissiblo
- kristjan9
- altice
- sleggjudomarinn
- elvira
- mathieu
- morgunbladid
- ninasaem
- pallru
- pallvil
- palmij
- iceland
- ragnar73
- rannsoknarskyrslan
- redlion
- seinars
- fullvalda
- logos
- sigrunzanz
- sigurduringi
- sigurdurkari
- siggisig
- sisi
- siggifrikk
- stebbifr
- stjornuskodun
- stormsker
- saevargudbjornsson
- athena
- susannasvava
- tibsen
- ubk
- vala
- val
- vestarr
- postdoc
- gummih
- asdisran
- thjodarsalin
- mullis
- sumri
- t24
- omarragnarsson
- umbiroy
- thjodarheidur
- thorhallurheimisson
- flinston
- diva73
- thjodarskutan
- lifsrettur
- samstada-thjodar
- fullveldi
Des. 2024 | ||||||
S | M | Þ | M | F | F | L |
---|---|---|---|---|---|---|
1 | 2 | 3 | 4 | 5 | 6 | 7 |
8 | 9 | 10 | 11 | 12 | 13 | 14 |
15 | 16 | 17 | 18 | 19 | 20 | 21 |
22 | 23 | 24 | 25 | 26 | 27 | 28 |
29 | 30 | 31 |
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (3.12.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 20
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 20
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Þetta fólk á þá einfaldlega að vera í eingangrun þar til þessi rannsókn hefur farið fram og niðurstöður fengnar.
Dýr eru höfð í eingangrun þar til úr skugga er gengið að þau beri ekki sjókdóma sem ógnað geta dýraheilbrigði. Síðan er þetta í einhverju alsherjar rugli ! Landlæknir og smitsjúkdómalæknir vita vel að fólk sem kemur frá langtíburtistan er haldið ýmsum kvillum, sem búið er að uppræta hér á landi með ærnum tilkostnaði og óþægindum.
Síðan er þetta fólk bara látið á garðann og leikur sér eins og enginn sé morgundagurinn !!!
Senda þetta lið beina leið heim til sín, án refja.
Sindri Karl Sigurðsson, 26.7.2015 kl. 18:19
Það er víst mikilvægara að skaffa þeim ókeypis lögfræðiaðstoð
forréttindi sem venjulegu fólki á Íslandi stendur ekki til boða
Grímur (IP-tala skráð) 26.7.2015 kl. 18:39
Það er nú einmitt málið, þá má ekki stugga við hælisleitendum því þá verður vinstri vængurinn alveg snælduvitlaus því það eru nefnilega allir svo rosalega vondir í heiminum... það á sko að taka við þeim öllum án nokkurra athugasemda, byggja undir þá hús og gefa þeim nægann aur til að lifa í vellystingum það sem eftir er...
Halldór (IP-tala skráð) 26.7.2015 kl. 20:59
Það er ekki hælisleitendunum um að kenna að íslenskir ríkisstarfsmenn skuli ekki sinna vinnu sinni betur en fram kemur í þessu tilfelli a.m.k.
Axel Jóhann Axelsson, 26.7.2015 kl. 21:22
Nú skorar smitsjúkdómalæknirinn á allar konur sem hræddar eru um að hafa smitast að fara strax í skoðun og það taki einungis sólarhring að fá niðurstöðu um hvort viðkomandi hafi smitast af HIV eða ekki.
Það er því með ólíkindum að slík prufa sé ekki tekin af umsækendum um dvalar- eða hælisleyfi við komuna til landsins fyrst það er svona einfalt að fá niðurstöðu.
Þar að auki er alltaf ákveðin hætta á að aðrir sjúkdómar berist til landsins, sem þarf að vera á varðbergi fyrir, eins og t.d. berklar sem nú eru farnir að láta á sér kræla víða, þó tekist hafi að útrýma þeim hér á landi.
Axel Jóhann Axelsson, 27.7.2015 kl. 12:36
Mexíkönsk stúlka um tvítugt sem kom hingað til náms í fyrra fékk að vita að hún yrði að fara í læknisskoðun innan 2ja vikna frá komu til landsins, annars myndi hún fá synjun á dvalarleyfi (sem hún hafði sótt um 3 mánuðum fyrr) og henni vísað úr landi. Þess var krafizt þótt engar farsóttir séu í México. Hún greiddi svo um 30 þúsund úr eigin vasa (var ekki niðurgreitt) sem er mjög hátt gjald fyrir eina blóðprufu. Hún var síðan úrskurðuð heilbrigð, en aðspurðir svöruðu starfsmen Útlendastofnun að þótt hún hefði haft hiv yrði henni ekki vísað úr landi. Sennilega yrði þá sett einhver aðgerðaráætlun í gang.
Hvers vegna hælisleitendur geta komizt hjá þessari skoðun er þess vegna hulin ráðgáta. Sérstaklega afrískir, þar eð hiv er landlægt í mörgum löndum Afríku.
Pétur D. (IP-tala skráð) 27.7.2015 kl. 17:07
Þetta er á ábyrgð heilbrigðisráðherra og þar á eftir er næsti ábyrgðarmaður landlæknir. Að vísa frá sér ábyrgð þýðir að vera ekki starfi sínu vaxinn og það er ósómi.
Kex (IP-tala skráð) 27.7.2015 kl. 20:59
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.