Harðasta stjórnarandstaðan úr óvæntri átt

Andstæðingum ríkisstjórnar Jóhönnu Sigurðardóttur fjölgar stöðugt og er nú svo komið að hörðustu stjórnarandstæðingarnir eru margir af fyrrum fylgendum ríkisstjórnarinnar og má í því sambandi benda á Gylfa Arnbjörnsson, forseta ASÍ, og ýmsa aðra verkalýðsforingja, sem fam undir það síðasta hafa verið dyggir fylgismenn stjórnarflokkanna.

Gylfi hefur gagnrýnt ríkisstjórnina harðlega undanfarið vegna svika hennar í öllum málum sem snúa að atvinnumálum og ekki síður vegna svika við lífeyrisþega, en stjórnin hefur boðað að nokkurra mánaða loforð um að lífeyrir skyldi fylgja vísitölu verði svikið, ásamt því að lauma inn skattahækkunum með því að skattþrep verði ekki látin fylja launavísitölu, þrátt fyrir fögur fyrirheit.

Sambandsþing Alýðusambands Norðurlands hefur einnig sent frá sér harðorðaða ályktun vegna sömu svika og Gylfi hefur rætt um, ásamt áskorun um að fiskveiðifrumvarpið verði afturkallað og ný lög byggð á sátt sem ríkisstjórnin hafði sjálf staðið að, en auðvitað svikið.

Í ályktuninni segir m.a: "Nú eru blikur á lofti. Stutt er í endurskoðun kjarasamninga og samkvæmt nýútkomnu fjárlagafrumvarpi er ekki gert ráð fyrir að ellilífeyrir, örorkubætur og atvinnuleysisbætur hækki í samræmi við lægstu laun, eins og lofað var í tengslum við gerð kjarasamninganna."

Skyldi nokkur ríkisstjón, sem kennir sig við "velferð", hafa svikið jafn mörg velferðarloforð á jafn skömmum tíma? 


mbl.is Vilja að stjórnvöld standi við gefin loforð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Skyldi nokkur ríkisstjón, sem kennir sig við "velferð", hafa svikið jafn mörg velferðarloforð á jafn skömmum tíma? 

Nei en spurningin er bara ætlum við að láta hana komast upp með það?

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 10.10.2011 kl. 17:59

2 Smámynd: Axel Jóhann Axelsson

Jóhanna og Steingrímur hafa margsýnt að þau taka ekkert mark á gagnrýni og allra síst frá almenningi.

Axel Jóhann Axelsson, 10.10.2011 kl. 18:15

3 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Nákvæmlega.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 10.10.2011 kl. 18:46

4 Smámynd: Magnús Óskar Ingvarsson

Því er alveg fyllilega treystandi að þegar þessi ríkisstjórn lofar einhverju þá verða efndirnar öndverðar.

Magnús Óskar Ingvarsson, 10.10.2011 kl. 18:57

5 Smámynd: Valdimar Samúelsson

Gylfi má líka taka sig á eftir að ljúga til um stuðning aðildarfélaga ASÍ með inngöngu í ESB Ég skrifaði öllum formönnum þeirra og sagðist engin styðja aðild og það væri ekki í þeirra höndum hvað félagsmenn gerðu. Semsagt stuðningur ASÍ við inngöngu á sínum tíma var ein lygasaga ofan á allar hinar.

Valdimar Samúelsson, 10.10.2011 kl. 22:36

6 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Alveg það sem ég þóttist vita Valdimar.  Gott og þarft framtak hjá þér.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 10.10.2011 kl. 22:40

7 Smámynd: Valdimar Samúelsson

Ég hef öll afrit á tölvunni. Þetta er með ólíkindum hve menn geta logið í þessum geira.

Valdimar Samúelsson, 10.10.2011 kl. 22:57

8 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Gott hjá þér.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 10.10.2011 kl. 22:59

9 Smámynd: Axel Jóhann Axelsson

Valdimar, þetta eru athyglisverðar upplýsingar sem þú hefur í fórum þínum. Þeim þyrfti að koma betur á framfæri opinberlega.

Axel Jóhann Axelsson, 10.10.2011 kl. 23:14

10 Smámynd: Elle_

Gleymum ALLS EKKI að Gylfi var með Guðmundi Gunnarssyni úr Rafiðnaðarsambandinu og Vilhjálmi úr SA, einn harðasti kröfumaður fyrir kúguninni ICESAVE gegn eigin skjólstæðingum og gegn þjóðinni.  Hver getur tekið hann alvarlega núna? 
Hví vildi hann og hinir endilega að hundruðir milljarða af ólöglegri kröfu yrðu lagðir yfir okkur?????  Það er ekki í lagi.

Elle_, 11.10.2011 kl. 15:14

11 Smámynd: Axel Jóhann Axelsson

Gylfi hefur alltaf verið dyggur þjónn Jóhönnu og Samfylkingarinnar og því er maður hissa á þessum viðsnúningi hans gagnvart ríkisstjórninni núna. Sjálfsagt býr eitthvað þar að baki sem maður er ekki búinn að uppgötva ennþá.

Axel Jóhann Axelsson, 11.10.2011 kl. 18:12

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband