Vinstri villan á undanhaldi

Nýjasti þjóðarpúls Gallup opinberar þau stórkostlega ánægjulegu tíðindi að vinstri villan í íslenskum stjórnmálum er á hröðu undanhaldi.

Stjórnarflokkarnir missa stöðugt meira af því fylgi sem þeir fengu í síðustu Alþingiskosningum og kemur auðvitað engum á óvart eftir tveggja ára óstjórn og nánast baráttu fyrir framlengingu kreppunnar og stöðnun atvinnulífsins, réttara sagt herferð gegn allri þeirri atvinnuuppbyggingu sem þó hefði verið völ á, ef ekki væri fyrir andstöðu ráðherranna við þá fjárfesta, sem bíða á hliðarlínunni og vilja stofna hér og reka mannaflsfrek fyrirtæki.

Því miður er kjörtímabilið aðeins hálfnað og því á þjóðin á hættu að þurfa að búa við ríkisstjórnina í heil tvö ár í viðbót, gerist ekki eitthvert kraftaverk sem kemur henni frá völdum. Reyndar er ósamkomulagið milli flokkanna og innan þeira svo mikið, að væntanlega springur ríkisstjórnin fljótlega af sjálfsdáðum, þannig að engin yfirnáttúruleg kraftaverk þurfi til.

Kjörtímabilið munu kjósendur hins vegar láta verða sér víti til varnaðar og í næstu kosningum mun ríkisstjórninni verða refsað að verðleikum, fari svo að hún hangi út tímabilið.


mbl.is Litlar breytingar á fylgi flokka
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

mikið sé ég eftir því að hafa ekki fengið að sjá hvað íslendingar hefðu verið ánægðir með aðgerðir íhaldsins í þessu ástandi ... núna fáum við ekkert að vita hvernig þeir hefðu komið skemmtilega á óvart í þessari stöðu :D  bjargað okkur, og jafnað okkur hækkað laun okkar lægstu, verndað okkur smáfólkið, með regni af peningum frá þeim æðri, þarna hæst uppi í fæðu-, eh meina efnahagskeðjunni ...

Jonsi (IP-tala skráð) 4.4.2011 kl. 10:58

2 Smámynd: Axel Jóhann Axelsson

Þeir hefðu að minnsta kosti ekki barist með kjafti og klóm gegn hvers konar atvinnumöguleikum.

Axel Jóhann Axelsson, 4.4.2011 kl. 11:13

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband