Pólitískur rétttrúnaður á háu stigi

Í Þýskalandi liggur forstjóri Deutsche Bank undir harðri gagnrýni fyrir að láta þau almæltu sannindi út úr sér að fjölgun kvenna í stjórn bankans myndi auka fegurð og litadýrð í hópi stjórnendanna.  Þetta liggur svo í augum uppi að í raun ætti að vera óþarfi að nefna það, en kvenfólkið er auðvitað fallegra kyn mannskepnunnar og klæðist að auki mun smekklegri og litaglaðari fötum en karlkynið.

Samkvæmt pólitískum rétttrúnaði má alls ekki benda á svona einfaldar staðreyndir, heldur á alltaf að láta eins og enginn mismunur sé á kynjunum og allra síst má tala um að konur séu fallegar, eingöngu má segja að þær séu gáfaðar, snjallar og standi körlunum snúning á öllum sviðum mannlegrar tilveru.  Hins vegar má alls ekki segja um nokkra konu að hún sé ljót eða heimst, því þá er verið að gera lítið úr kvenkyni veraldarinnar í heild á svívirðilegan hátt, en þó kona segi eitthvað álíka um karlmann, þá er það bæði saklaust og einfaldlega verið að benda á staðreyndir.

Í annarri frétt kemur fram að skoskir vísindamenn hafi komist að því eftir ýtarlegar rannsóknir að konur séu blíðari en karlar og þó þetta hafi verið almælt tíðindi frá örófi alda, þá þykir virtum vísindamönnum samt ástæða til að leggja tíma, fé og fyrirhöfn í að rannsaka þetta til hlítar.

Í anda pólitísks rétttrúnaðar hljóta konur að rísa upp og mótmæla því að þær séu blíðari í sér en karlar.  Viðurkenning á slíku jafngildir því að segja að kynin hugsi ekki nákvæmlega eins og að jafnvel gæti verið mismunur á hegðun þeirra og viðbrögðum við utanaðkomandi áreiti.

Gagnrýni á við þá sem forstjóri Deutsche Bank sætir nú, er auðvitað ekkert annað en hlægileg, en verst er að ekki hafa allir húmor til að sjá bjálfaganginn sem að baki býr.


mbl.is „Fegurð ykist með konum í stjórn“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Ackermann hefur alltaf verið aðeins fljótari að tala en hugsa. Það gera nú ansi margir.

Konurnar voru nú fljótar að svara fyrir sig. Þeir sögðu að ef hann vildi litadýrð, þá ætti hann að hengja upp nokkrar myndir í fundarherbergjum bankans eða þá bara fara í skrúðgarð.

Annars sagði Harald Schmidt í gær að nú væri vera að gera nýjan sjónvarpsþátt, Ackermann sucht Frau, með tilvísun í vinsælan þátt á RTL sem heitir Bauer sucht Frau, http://www.rtl.de/cms/unterhaltung/bauer-sucht-frau.html.

Stefán Júlíusson (IP-tala skráð) 9.2.2011 kl. 15:52

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband