28.12.2010 | 15:32
Siglfirðingar byrja ungir og hætta seint
Það verður ekki af Siglfirðingum skafið að þeir byrja ungir að láta að sér kveða og hætta því svo ekkert aftur fyrr en í fulla hnefana.
Þegar afar á níræðisaldri fara í bíltúr með níu ára barnabarn þykir þeim ekkert sjálfsagðara en að skiptast á að keyra bílinn. Í því tilfelli sem fréttin fjallar um, þá keyrði afinn frá Siglufirði til Ólafsfjarðar og barnabarnið til baka, eins og ekkert væri sjálfsagðara.
Ferðininni var heitið í gegnum hin nýju Héðinsfjarðargöng og afinn hefur auðvitað vitað sem var, að nánast væri útilokað að þeir félagar myndu mæta nokkrum bíl á ferð sinni, því á leið um Héðinsfjarðargöng er eftir þessu að dæma ekki líklegra að mæta bíl, en á hverjum öðrum sveitavegi þar sem aðrir stelast til að leyfa próflausum börnum að taka í bíla sína.
Auðvitað er alger vitleysa að vera að láta börn keyra bíla, en það er þó sök sér þar sem engin hætta er á að lenda í árekstrum við aðra bíla eða keyra niður aðra vegfarendur.
Níu ára ökumaður | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Bloggar | Breytt s.d. kl. 16:38 | Facebook
« Síðasta færsla | Næsta færsla »
Höfundur
Áhugamaður um lífið og tilveruna.
Athugasemdir og umræður eru öllum opnar á síðunni, en þess vænst að þær séu hófstilltar og án mikilla stóryrða.
Ruddalegar athugasemdir, sem innihalda lítið sem ekkert annað en skítkast og/eða persónulegar svívirðingar um menn og málefni verða fjarlægðar af þessari síðu, jafnóðum og þær uppgötvast.
Eldri færslur
2021
2020
2019
2018
2017
2016
2015
2014
2013
2012
2011
2010
2009
Færsluflokkar
Tenglar
Mínir tenglar
Bloggvinir
- malacai
- andres
- annabjorghjartardottir
- attilla
- skagstrendingur
- baldvinj
- benediktae
- beggo3
- h2o
- bbg
- bjarnimax
- bookiceland
- siggibragi
- brandarar
- deiglan
- gagnrynandi
- doggpals
- ekg
- elfur
- eeelle
- ellamagg
- elismar
- evaice
- ea
- fannarh
- lillo
- vidhorf
- gerdurpalma112
- gunnargunn
- tilveran-i-esb
- gthg
- gun
- gudbjorng
- zumann
- gudjul
- gp
- hreinn23
- brekkukotsannall
- gustaf
- hallarut
- morgunblogg
- hannesgi
- miniar
- maeglika
- heimssyn
- aanana
- hildurhelgas
- himmalingur
- minos
- atvinnulaus
- daliaa
- ingvarvalgeirs
- jakobk
- fun
- jennystefania
- jonsullenberger
- dondi
- jonsnae
- jonvalurjensson
- jonarni
- jonoskarss
- jorunnfrimannsdottir
- kaffistofuumraedan
- krist
- kristinn-karl
- krissiblo
- kristjan9
- altice
- sleggjudomarinn
- elvira
- mathieu
- morgunbladid
- ninasaem
- pallru
- pallvil
- palmij
- iceland
- ragnar73
- rannsoknarskyrslan
- redlion
- seinars
- fullvalda
- logos
- sigrunzanz
- sigurduringi
- sigurdurkari
- siggisig
- sisi
- siggifrikk
- stebbifr
- stjornuskodun
- stormsker
- saevargudbjornsson
- athena
- susannasvava
- tibsen
- ubk
- vala
- val
- vestarr
- postdoc
- gummih
- asdisran
- thjodarsalin
- mullis
- sumri
- t24
- omarragnarsson
- umbiroy
- thjodarheidur
- thorhallurheimisson
- flinston
- diva73
- thjodarskutan
- lifsrettur
- samstada-thjodar
- fullveldi
Nóv. 2024 | ||||||
S | M | Þ | M | F | F | L |
---|---|---|---|---|---|---|
1 | 2 | |||||
3 | 4 | 5 | 6 | 7 | 8 | 9 |
10 | 11 | 12 | 13 | 14 | 15 | 16 |
17 | 18 | 19 | 20 | 21 | 22 | 23 |
24 | 25 | 26 | 27 | 28 | 29 | 30 |
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 14
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 10
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Sæll .....eitt sem að mig langar til að vita ?? hvernig veist þú hvort að þessi ungi drengur og afi hans séu frá siglufirði ??
spurning (IP-tala skráð) 28.12.2010 kl. 15:49
Thja spurning, það er nú spurning. Heldur þú að það sé líklegra að þeir hafi skotist t.d. frá Reykjavík til að finna nokkuð öruggan vegarspotta til að láta guttann taka aðeins í bílinn?
Mér finnst nefninlega líklegra að þetta séu Siglfirðingar, frekar en Ólafsfirðingar, vegna þess að þeir voru að koma inn á Siglufjörð þegar þeir voru stoppaðir. Afi frá Ólafsfirði hefði mjög líklega snúið við í Héðinsfirði og látið barnabarnið sitt keyra heim þaðan.
Axel Jóhann Axelsson, 28.12.2010 kl. 16:18
Heyrðu ekkert svona gamli :D hahahah
Ragna Dís Einarsdóttir (IP-tala skráð) 28.12.2010 kl. 16:29
Ragna Dís, þar er greinilegt að öllu hefur farið aftur þarna fyrir norðan hjá ykkur, síðan að ég flutti. Það er ekki hlæjandi að vitleysunni sem viðgengst þarna nú orðið. Svei, svei.
Axel Jóhann Axelsson, 28.12.2010 kl. 16:41
Já þetta er náttúrulega bara fáránlegt!!! komdu og fluttu bara aftur til Sigló og hafðu hemil á þessu öllu saman og þá getum við séð ykkur oftar líka :D
Ragna Dís Einarsdóttir (IP-tala skráð) 28.12.2010 kl. 16:44
Maður þorir ekki að láta sjá sig þarna á næstunni af hræðslu við að smákrakkarnir keyri mann niður á afatrukkunum.
Axel Jóhann Axelsson, 28.12.2010 kl. 16:49
hahah já það er alveg rétt :D við erum soddan krimmar hérna :D
Ragna Dís Einarsdóttir (IP-tala skráð) 28.12.2010 kl. 17:13
Þarna er líklega komin réttlæting Siglfirðinga á því að senda þjóðinni 16 milljarða króna reikning fyrir þessari "vitlausustu samgönguframkvæmd í sögunni".
Þetta á sem sagt að nota sem æfingaakstursbraut fyrir þá sem eru að læra á bíl.
Svo er víst líka vinsælt að æfa og spila fótbolta inn í göngunum.
En dýr er Hafliði allur. Enda ættu þeir sem nota þessi göng, að greiða fyrir þau, eins og lagt er til víðast hvar núna í vegaframkvæmdum.
Dexter Morgan, 29.12.2010 kl. 09:02
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.