Gnarrið að renna af Reykvíkingum

Reykvíkingar, margir hverjir, voru (g)narraðir til að kjósa Besta flokkinn í síðustu borgarstjórnarkosningum, með loforðum um breytingar í stjórn borgarinnar í þá veru að útsvar yrði lækkað, þjónustugjöld yrðu ekki hækkuð og rólega yrði farið í að hækka gjaldskrár OR.  Ofan á allt saman átti að gera lífið í Reykjavík svo skemmtilegt, að íbúarnir yrðu síhlæjandi og svo góðir vinir að þeir gætu ekki slitið sig úr faðmi hvers annars.

Öll kosningabarátta Besta flokksins var rekinn með bröndurum og kæruleysislegum yfirlýsingum um að öll loforð yrðu svikin eftir kosningar og meira að segja loforðið um að svíkja öll loforð og þótti allt of stórum hluta kjósenda þessi aðferð í kosningabaráttu svo fyndin, að þeir hlógu alla leið á kjörstað og langleiðina heim aftur.

Eftir heimkomuna og við nánari yfirferð brandaranna og frammistöðu Besta flokksins í borgarstjórn og þá alveg sérstaklega meðhöndlun Jóns Gnarr á borgarstjóraembættinu, en hann kom nánast öllum störfum embættisins yfir á skrifstofustjóra borgarinnar, en stundar sín daglegu trúðslæti á þeim launum og hlunnindum, sem ætluð eru til greiðslu fyrir borgarstjóravinnuna.

Nú eru byrjaðar að renna tvær grímur á þá kjósendur sem slysuðust til að kjósa trúðaflokkinn í vor og skoðanakannanir byrjaðar að sýna fylgishrun hans, aðeins rúmu hálfu ári eftir kosningarnar.  Eins og allt sæmilega þenkjandi fóllk bjóslt við, mun Besti flokkurinn fljótlega heyra sögunni til, eins og önnur grínframboð sem komið hafa fram áður.


mbl.is Sjálfstæðisflokkur sækir í sig veðrið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hörður Þórðarson

Fólkið kaus trúð, og fékk trúð. Þeir sem kusu hann ættu að vera hæstánægðir. Varla voru þeir svo vitlausir upp til hópa að búast við einhverju öðru frá honum.

Það sorglega í þessu öllu er hins vegar að hinir hefðbundu flokkar voru, og eru síst skárri, því miður. Nýtt blóð verður að koma til og stjórnmálamenn sem tóku virkan þátt í hrunadansinum ættu að snúa sér að öðrum störfum.

Hörður Þórðarson, 29.12.2010 kl. 22:41

2 Smámynd: Kári Harðarson

Allir vissu að Gnarr væri óþekkt stærð. Stundum er bara betra að hoppa út um gluggann en að vera áfram í brennandi byggingu. Það er aldrei að vita...

Kári Harðarson, 30.12.2010 kl. 09:43

3 Smámynd: Axel Jóhann Axelsson

Kári, það vitlausa í þessu tilfelli er, að það var bara enginn eldur í byggingunni. Það var verið að vinna að viðhaldi hennar og ágætur og vanur viðhaldsflokkur að störfum.

Oftast er betra að hugsa áður en stokkið er út um glugga.

Axel Jóhann Axelsson, 30.12.2010 kl. 13:41

4 Smámynd: Haraldur G Magnússon

Ruddalegar athugasemdir, sem innihalda lítið sem ekkert annað en skítkast og/eða persónulegar svívirðingar um menn og málefni verða fjarlægðar af þessari síðu, jafnóðum og þær uppgötvast.

Haraldur G Magnússon, 30.12.2010 kl. 14:02

5 Smámynd: Axel Jóhann Axelsson

Haraldur, hvaða athugasemdir finnst þér innihalda svona mikið skítkast eða persónulegar svívirðingar?

Axel Jóhann Axelsson, 30.12.2010 kl. 16:38

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband