Allt þarf að gera til að kveða þennan "sið" niður

Svokölluð "heiðursmorð" eru ennþá algeng í múslimskum löndum og þekkjast reyndar einnig í samfélögum múslima í Evrópu og eru aðallega framin á stúlkum og konum, sem stórfjölskyldan telur að hafi vanvirt heiður ættingjanna, oftast með því að gefa karlmönnum hýrt auga.

Þetta er aldagömul "hefð" í þeim löndum, sem feðraveldið er sterkt og þar eru konur látnar ganga með blæjur eða í búrkum og yfirleitt ekki látnar ganga í skóla.  Þær eru eign feðranna, þangað til hann velur handa þeim brúðguma og eftir það eru þær réttmæt eign eiginmannsins.

Í mörgum múslimaríkjum eru viðurlög við "heiðursmorðum" ekki ströng, ef til vill nokkurra ára fangelsi, ef einhver viðurlög eru við þeim á annað borð.

Þessu verður ekki breytt, nema með fræðslu og aftur fræðslu, en bestur árangur myndi nást með því að stuðla að menntun kvennanna, þó oft sé menntun karlanna litlu meiri, a.m.k. í fátækum héruðum og löndum múslimaheimsins.

Blæjan, búrkan, umskurður kvenna og heiðursmorð eru atriði, sem berjast verður gegn, með öllum ráðum og byrjunin gæti verið að banna allt þetta í lögum vesturlanda, því stöðugt eykst straumur múslimskra innflytjenda vestur á bóginn.

Slík bönn á vesturlöndum gætu að endingu smitast inn í lagabálka þeirra landa, þar sem þessi ómennska viðgengst ennþá.


mbl.is Eiga lífstíðarfangelsi yfir höfði sér fyrir að grafa stúlku lifandi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Þetta eru villimenn allir upp til fóta.Lítið oft hægt að gera í þvi en hins vegar berum við Vesturlandabúar vissa ábyrgð gagnvart þessum stúlkum myndi ég ætla og með þvi að gera þessum mönnum eins erfitt fyrir og hægt er á með svona hluti í okkar löndum og reyna að koma í veg fyrir með lögum að svona hryllingsatburðir komi ekki fyrir eða hindri allavega frekari aukningu .Reyna að skylda þetta fólk til meiri menntunar og fræðslu jafnt konum sem mönnum til handa með dvalarleyfi þessa fólks ef hægt er. Það er nú samt svo merkilegt gagnvart svona atburðum varðandi Múslimakonur og stúlkur að það er ákaflega lítið sem vestræn ríki hafa gert þeim til hjálpar en við rjúkum upp til handa og fóta við ýmsar aðrar hamfarir sem okkur þykja að sjálfsagðar og allt gott um það að segja en alþjóðlega vakningu þarf meiri í þessum heimi til hjálpar svona vesalingsstúlkum eins og þessari sem grafin var LIFANDI AF SÍNUM EIGIN FÖÐUR OG AFA!

Guðrún (IP-tala skráð) 8.2.2010 kl. 13:58

2 Smámynd: Muddur

Fyrir mér er þessi "siður" eitthvað annað og meira heldur en bara afleiðing fáfræði. Þetta er viðbjóðsleg athöfn sem framfylgt er af þvílíkri grimmd og mannvonsku að það getur ekki annað búið að baki en illur ásetningur. Það er ótrúlegt að árið 2010 skuli ennþá vera til fólk sem finnst það í lagi að myrða börnin sín með grimmilegum hætti fyrir það eitt að vilja ekki lifa sem búpeningur sem gengur kaupum og sölum. Að einhver geti pyntað sitt eigið barn og myrt til þess að eitthvað lið í söfnuðinum fari ekki að gera grín að honum er ótrúlegt (heiður ofar mannslífum). Mér og sjálfsagt flestum sem þetta lesa þætti það sjálfsagt að vaða eld og brennistein og þola alla heimsins niðurlægingu í stað þess að missa barn, hvað þá að vera valdur að dauða þess.

Það eru vissulega allsstaðar til geðsjúklingar með kvalalosta og morðglampa í auga, en þegar slíkir viðbjóðir fá leyfi fjölskyldu sinnar eða samfélagsins sem þeir búa í, til að svala viðurstyggilegri fýsn sinni, þá er eitthvað mikið að. Það ættu allir, sem komu að þessarri ákvörðun að sæta fangelsi fyrir skipulagningu morðs.

Muddur, 8.2.2010 kl. 14:30

3 Smámynd: Axel Jóhann Axelsson

"Heiður" virðist vera ákaflega mikilvægur fyrir múslima og nægir að nefna skókastið, sem er einhver mesta niðurlæging, sem hægt er að sýna nokkrum manni og sá sem fyrir verður er álitinn hafa glatað "heiðri" sínum.

"Heiðursmorðin" eru aldagömul "hefð" til að vernda æru ættarinnar og geta ekki verið útskýrð með kvalalosta, morðglampa og viðurstyggilegri fýsn.  Til þess eru þau allt of útbreidd.  Þau eru hluti af aldagamalli "menningu" þessa fólks, eins og umskurðurinn, blæjan og búrkan. 

Rétt er hinsvegar, að kvenfólk er víða í þessum löndum meðhöndlað eins og búpeningurinn, en þó virðast giftar konur "ráða" heimilunum, svo langt, sem það nær.

Ekki er ég að verja þennan hroðalega ósið, en held að hann eigi sér dýpri rætur, en þú talar um.

Við á vesturlöndum skiljum alls ekki þessa "menningu", enda fórnar fólk hérna megin á hnettinum sér yfirleitt skilyrðislaust fyrir börn sín, þó ekki sé nú alltaf svo, t.d. er mikið um alls kyns kynferðislega misnotkun barna og kvenna í okkar heimshluta, ásamt ástríðuglæpum ýmisskonar.

Því getum við ekki afgreitt "heiðursmorðin" og aðra "siði" í allt annarri menningu, með ofstæki eða stórmennsku.

Axel Jóhann Axelsson, 8.2.2010 kl. 14:53

4 Smámynd: Ólafur Ingi Hrólfsson

"Heiður" múslima sem haga sér með þessum hætti er enginn - smán þeirra er algjör-

Það er ekki "ofstæki" eða "stórmennska" að hafna þessum "sið".

Til er fólk sem vill veita þessum aðilum inngöngu í okkar samfélag - múslimar flytja með sér sína "siði" en aðlagast ekki siðum gistilandsins. Vissulega eru ekki allir múslimar sekir um svona framferði - en of margir.

Ólafur Ingi Hrólfsson, 8.2.2010 kl. 15:57

5 Smámynd: Axel Jóhann Axelsson

Það var einmitt tekið fram í upphaflegu færslunni, að vesturlönd ættu að banna alla þessa "siði" með lögum, jafnvel þó þetta sé ekki orðið vandamál, nema á einstaka stað.

Strax ættu öll lönd, utan múslimaríkjanna, að banna umskurð kvenna, blæjuna, búrkuna og alla aðra "siði", sem ekki falla að vestrænni löggjöf.

Síðan á auðvitað að fylgja slíkum lögum fast eftir og ekki veita neinum búseturétt, nema viðkomandi undirgangist lög og siði gistilandsins.  Það á alls ekki að taka á þessum málum með nokkuri linkind, enda leyfa múslimar t.d. afar takmarkaða iðkun kristinnar trúar, eða aðra vestræna siði í sínum löndum.

Axel Jóhann Axelsson, 8.2.2010 kl. 16:27

6 Smámynd: Jóhannes Ólafsson Eyfeld

Gott fólk, gott fólk.

Það ætti að vera deginum ljósara fyrst maður getur fundið það í sér að svipta eigin afkvæmi lífi ætti að finnast góð og vel ígrunduð ástæða fyrir drápinu (þó af óæðra kyninu sé og ætti því að teljast sem hinn sjálfsagðasti hlutur).

Ég tel persónulega að það sé full nærri föðurnum ekið og ætti hann ekki að vera gerður ábyrgur í þessu máli; þó hann væri fundinn sekur ætti hann ekki að eiga mikið meira yfir höfði en að vera sleginnn með flötum lófa.

Honum rann greinilega blóðið til skyldunnar og ættum við því ekki að íkonísera manninn sem einhvurn grimman ribbalda, hvað þá að dásama hann sem gullkálf eins og mér finnst sumir hér gera.

-Eyfeld

Jóhannes Ólafsson Eyfeld, 8.2.2010 kl. 17:49

7 Smámynd: Axel Jóhann Axelsson

Jóhannes, ef þú ert að sneiða því að mér, að ég hafi dásamað manninn sem gullkálf, þá þarftu að lesa þetta allt aftur og það með skilningavitin opin.

Ertu kannski að gefa í skyn að vesturveldin ættu að ráðast inn í öll múslimalönd, þar sem svona "hefðir" eru við lýði og drepa þar alla karlmenn, eða a.m.k. alla feður, til þessa að útrýma þessum "siðum".

Ætli áróður og fræðsla væri ekki betri leið, ásamt því að banna umskurð kvenna, blæju og búrku á vesturlöndum, því "heiðursmorð" þarf auðvitað ekki að banna sérstaklega, því morð eru auðvitað alfarið bönnuð.

Axel Jóhann Axelsson, 9.2.2010 kl. 11:53

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband