Færsluflokkur: Bloggar
4.5.2012 | 14:46
Sanngjörn og heiðarleg stjórnarandstaða
Furðuleg uppákoma varð í þinginu í gær, þegar stjórnarandstaðan bauðst til að flýta afgreiðslu þeirra mála sem fyrir Alþingi liggja og lítill ágreiningur er um, til þess að mögulegt væri að koma þeim til umfjöllunar þingnefnda í næstu viku. Þessa tillögu setti stjórnarandstaðan fram til að liðka fyrir þingstörfum, en þá brá svo undarlega við að þingmenn stjórnarmeirihlutans snerust öndverðir við tillögunni og höfnuðu henni algerlega.
Þessi einkennilega afstaða stjórnarþingmannanna varð til þess að umræður um stórt og mikið deilumál stóðu langt fram á nótt og var langt frá því lokið, þegar þingforseti samþykkti loksins viturlega tillögu minnihlutans um vinnubrögð í þinginu, frestaði umræðum um breytingar á stjórnarráðinu og tók á dagskrá þau mál sem minni ágreiningur er um.
Sem betur fer hafði þingforsetinn ekki neitt samráð við Björn Val Gíslason, þingflokksformann VG, um þessa dagskrárbreytingu enda er nánast fullvíst að hann hefði staðið gegn henni, enda þekktur fyrir flest annað en að vera samvinnuþýður, sanngjarn eða málefnalegur þingmaður.
Þingforseti varð maður að meiri að fara að sanngjarnri og heiðarlegri tillögu stjórnarandstöðunnar um vinnubrögð þingsins, enda hafa þau verið alveg ótæk hingað til.
![]() |
Ekki haft samráð við þingflokksformenn |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
4.5.2012 | 01:10
Jóhanna skammast, en ætti að skammast sín
Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra, er í krafti embættis síns æðsti handhafi framkvæmdavaldsins í landinu, en eins og allir vita á að vera skýr aðskilnaður á milli löggjafar-, framkvæmda- og dómsvalds í landinu.
Sem launaður starfsmaður framkvæmdavaldsins á Jóhanna ekkert með að ráðskast með fundi Alþingis, hvorki daglegan fundartíma né dagsetningu þingslits að vori. Þetta leyfir hún sér hins vegar að gera og hefur í hótunum við þingmenn um að þeir verði "látnir sitja eftir" fram í júlí, láti þeir ekki að hennar vilja um hvenær og hvernig mörg af arfavitlausum þingmálum ríkisstjórnarinnar verða afgreidd á þinginu.
Undanfarna daga hefur Jóhanna rifist og skammast í þingmönnum fyrir að vilja ræða og betrumbæta stjórnarfrumvörp, sem hrannast upp í þinginu illa unnin og "hrá", eins og ráðherrarnir hafa sjálfir viðurkennt að þau séu, enda eigi að lagfæra þau í meðförum þingnefnda og þingsins sjálfs. Til þess að svo megi verða þarf þingið góðan tíma til þess að fjalla um málin og kalla til þá sérfræðiaðstoð sem til þarf í hverju máli.
Frekar en að skammast í þinmönnum ætti Jóhanna Sigurðardóttir að skammast sín.
![]() |
Jóhanna skammaði Ragnheiði Elínu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
2.5.2012 | 13:01
Ekki lækka skuldirnar af húsnæðislánum erlendis
Margir láta eins og hvergi sé við vanda að etja vegna efnahagserfiðleika annarsstaðar en á Íslandi eftir banka- og efnahagskreppuna sem brast yfir heiminn eftir fall Leman bankans haustið 2008 og leiddi m.a. af sér hrun bankanna hér á landi.
Kreppan sem fylgdi í kjölfar bankahrunsins olli skuldurum hér á landi gífurlegum erfiðleik um, ekki eingöngu skuldurum húsnæðislána, heldur ekki síður hinum sem skulduðu há neyslulán, svo sem bíla-, yfirdráttar- og kreditkortaskuldir. Lán með gengisviðmiði hafa verið dæmd ólögleg, en þeir sem tóku verðtryggð lán, flest með okurvöxtum, glíma við vandann sem fylgdi lækkun húsnæðisverðs eftir hrunið.
Lækkun á húsnæðisverði er hins vegar fylgifiskur efnahagserfiðleikanna í öllum löndum og lántakendur alls staðar eru í miklum vandræðum vegna þess, þar sem skuldirnar lækka ekki og margir hafa því misst húsnæði sitt vegna þess að það hefur ekki lengur staðið undir veði vegna áhvílandi lána.
Í meðfylgjandi frétt kemur m.a. fram um þessa erfiðleika: "Samkvæmt tölum sem Seðlabanki Íslands birtir í mánaðarlegum hagvísum sínum lækkaði íbúðaverð um 3,4% að raunvirði í Bretlandi á síðasta ári og á sama tíma lækkaði raunverð íbúða um 7% í Bandaríkjunum. Í Finnlandi lækkaði íbúðaverð um 2,4% á síðasta ári og um 5,3% í Svíþjóð."
Þarna er ekki minnst á lönd eins og Grikkland, Írland og Spán, þar sem íbúðaverð hefur lækkað miklu meira en í þeim löndum sem nefnd eru í fréttinni og erfiðleikar skuldara eru því meiri sem efnahagserfiðleikarnir hafa leikið lönd þeirra grárra.
Nógu erfitt er fyrir íbúalánaskuldara þessara landa að glíma við sín "gengistryggðu lán, þó þeir sleppi við þá erfiðleika sem vaxtaokrið veldur íslenskum skuldurum til viðbótar öðrum erfiðleikum sem þeir glíma við og er reyndar eitt mesta böl sem íslendinga hrjáir.
![]() |
Íbúðaverð hækkaði um 1,5% |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
1.5.2012 | 19:19
Óskiljanlegt slagorðaglamur forsetaframbjóðanda
Sífellt gjaldfellur forsetaembættið eftir því sem fleiri "bjóða sig fram" til að gegna embættinu, án þess að hafa nokkuð það til að bera sem prýða þarf góðan forseta.
Sumir frambjóðendur tala í slagorðum og klisjum, sem erfitt er að skilja, eins og t.d. sá nýjasti, Andrea J. Ólafsdóttir, sem flutti þjóðinni þennan boðskap þegar framboð var tilkynnt: "Hún sagði Alþingi ekki geta leyst stór mál sem gangi þvert á flokkslínur og þurfi því aðstoð til. Ein leið til þess er að láta verkin tala í þágu meirihluta þjóðarinnar. Fólkið verði að koma þinginu til aðstoðar með beinni aðkomu. Ég tel að það geti gerst í gegnum forsetaembættið, með traustum forseta sem er tilbúinn að vera lýðræðislegt verkfæri meirihlutans."
Svona þvælu leyfa frambjóðendur sér að kasta fram án nokkurra útskýringa á því hvað þeir eru að meina, eða hvernig í ósköpunum forsetaembættið skuli t.d. notað til að "láta verkin tala í þágu meirihluta þjóaðinnar".
Það hlýtur að vera lágmarkskrafa að "forsetaframbjóðendur" tali ekki til kjósenda eins og þeir séu alger fífl.
![]() |
Þar sem er vilji er vegur |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (13)
30.4.2012 | 20:38
Banna fuglaveiðar til að semja svo um þær við ESB?
Enn einn ótrúlegur angi af samningum ríisstjórnarinnar um innlimun landsins í ESB er að komast í dagsljósið, en það er hugmynd Svandísar Svavarsdóttur um fuglaveiðibann í þeim tilgangi að setja inn í innlimunarsamninginn að Íslendingum verði frjálst að leyfa fuglaveiðar í trássi við reglur stórríkisins.
Svandís ber því reyndar við að hún vilji friða blessaða fuglana frá veiðimönnum vegna þess að ýmsir fuglastofnar séu að svelta í hel vegna ætisskorts og verður það að teljast furðuleg umhyggja fyrir skepnunum að vilja forða þeim veiðimönnum til þess eins að drepast svo úr hor.
Innlimunarruglið tekur sífellt á sig furðulegri myndir.
![]() |
Stjórni áfram svartfuglsveiðum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
27.4.2012 | 19:53
Samfylkingin í stríði við þjóðina
Enn ein skoðanakönnunin staðfestir að tveir þriðju hlutar þjóðarinnar eru algerlega andvígir innlimun Íslands í væntanlegt stórríki ESB og aðeins þriðjungur gæti hugsað sér að afsala fullveldi landsins í hendur erlends valds.
Þessi síðasta könnun sýnir einnig að þeir sem eru andvígir innlimunninni eru mun ákveðnari í afstöðu sinni og ólíklegri til að skipta um skoðun en hinir, sem minna er annt um fullveldi og sjálfstæði þjóðarinnar.
Stuðningsmenn allra flokka, annarra en Samfylkingarinnar, vilja standa vörð um hag lands og þjóðar til framtíðar og þar á meðal eru kjósendur Vinstri grænna, sem láta þó Samfylkinguna teyma sig á asnaeyrunum í innlimunarferlinu.
Hvenær skyldi Samfylkingin láta af þessu stríði gegn Íslenskri þjóð og hagsmunum hennar?
![]() |
Mikill meirihluti vill ekki í ESB |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)
24.4.2012 | 19:52
Pólitísk réttarhöld - ópólitískur dómur
Ákærurnar gegn Geir H. Haarde voru pólitískur skollaleikur sem byggðist á hatri og hefndarhug andstæðinga hans og Sjálfstæðisflokksins á Alþingi og til þess hugsaðar að reyna að niðurlægja formamann flokksins og skaða flokkinn sjálfan til framtíðar.
Allur undirbúningur málsins og meðferð fyrir Alþingi byggðist ekki á neinu öðru en illvilja þeirra þingmanna sem að því stóðu og hatri þeirra og ofstæki á pólitískum andstæðingum.
Þrátt fyrir þennan pólitíska grunn málsins voru það mistök Geirs H. Haarde að segja að sektardómurinn fyrir að halda ekki sérstakan ráðherrafund um efnahagsþrengingarnar á árinu 2008 hafi litast af pólitískum áhrifum, enda dæma dómstólar landsins eingöngu eftir laganna bókstaf og það var auðvitað gert í þessu tilfelli eins og öðrum.
Yfirlýsing Geirs er þó skiljanleg í ljósi þeirra vonbrigða sem yfir hann helltust við uppkvaðningu dómsins og bættust þar með við það andlega álag sem hann hefur verið þjakaður af vegna þessara persónulegu og pólitísku árása sem hann varð að þola af hendi þrjátíuogþriggja fyrrum starfsfélaga sinna á Alþingi.
Lærdómurinn sem hlýtur að verða dreginn af þessu máli hlýtur að verða sá, að ákæruvald verði tekið af Alþingi, enda hefur það sýnt og sannað að það kann ekki með það vald að fara.
![]() |
Landsdómi ekki beitt í hefndarskyni |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
24.4.2012 | 11:31
Hvar eru prófarkalesararnir?
Íslensk málnotkun líður fyrir sífellt minni tilfinningu á tilbrigðum tungumálsins og fjölbreytileika. Þetta leiðir til notkunar færri orða og hugtaka og kennsla í málfræði virðist vera síminnkandi í íslenska skólakerfinu.
Ein afleiðing þessa er afkáraleg beyging orða og nægir þar að nefna orðin diskur og fiskur því til staðfestingar. Nú er orðið landlægt að segja "disknum" í staðinn fyrir "diskinum" og eins virðist vera að fara fyrir "fiskinum", eins og sjá má í meðfylgjandi frétt, en þar er sagt að "fisknum" hafi verið mokað um borð í báta í netarallinu.
Ef ekki eru gerðar kröfur til blaðamanna lengur um góða kunnáttu í sínu eigin tungumáli, verður a.m.k. að gera kröfur til þess að prófarkalesarar hafi hana og "ritskoði" fréttir illa talandi fréttamanna.
Líklega er orðið of seint að bjarga þessum orðum frá misþyrmingu og að fast sé að verða í málinu að fisknum sé einfaldlega leyft að rotna á disknum.
![]() |
Fisknum mokað um borð |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
23.4.2012 | 17:41
Þessir þingmenn eiga að skammast sín og segja af sér
Björn Valur Gíslason, Steingrímur J. Sigfússon, Þór Saari og fleiri þingmenn hafa sýnt mikinn hroka í dag, eftir áfellisdóm Landsdóms yfir pólitískri haturs- og hefndaraðgerð 33 þingmanna á hendur Geir H. Haarde með því að ákæra hann fyrir falskar sakargiftir. Þann hroka hafa þeir sýnt með svörum sínum við niðurstöðu Landsdóms og með því að viðurkenna ekki skömm sína vegna aðildar sinnar að málinu.
Eftirtaldir 33 þingmenn urðu sjálfum sér og Alþingi til ævarandi skammar með því að samþykkja þessa einstæðu pólitísku sakargiftir, sem vitnað mun verða til svo lengi sem land byggist sem mestu niðurlægingar löggjafarþings Íslands:
Atli Gíslason, Álfheiður Ingadóttir, Árni Þór Sigurðsson, Ásmundur Einar Daðason, Birgitta Jónsdóttir, Birkir Jón Jónsson, Björn Valur Gíslason, Eygló Harðardóttir, Helgi Hjörvar, Huld Aðalbjarnardóttir, Jón Bjarnason, Jónína Rós Guðmundsdóttir, Katrín Jakobsdóttir, Lilja Rafney Magnúsdóttir, Lilja Mósesdóttir, Magnús Orri Schram, Margrét Pétursdóttir, Margrét Tryggvadóttir, Mörður Árnason, Oddný G. Harðardóttir, Ólína Þorvarðardóttir, Sigríður Ingibjörg Ingadóttir, Sigurður Ingi Jóhannsson, Siv Friðleifsdóttir, Skúli Helgason, Steingrímur J. Sigfússon, Svandís Svavarsdóttir, Valgerður Bjarnadóttir, Vigdís Hauksdóttir, Þór Saari, Þráinn Bertelsson, Þuríður Backman, Ögmundur Jónasson.
Ef þessir þingmenn hafa nokkurn snefil af manndómi, þá munu þeir allir segja af sér þingmennsku strax á morgun. Það er eina leiðin til að endurvekja virðingu Alþingis eftir þennan ömurlega og skammarlega gjörning.
![]() |
Full ástæða fyrir málarekstrinum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (9)
23.4.2012 | 15:04
Hvað segja margir þingmenn af sér í kjölfar Landsdóms?
Ákæurnar á hendur Geir H. Haarde fyrir Landsdómi hafa frá upphafi verið þeim þingmönnum til skammar, sem svo lágt lögðust að reyna að nota dómstólinn til að ná sér niðri á pólitískum andstæðingi an hreinum hefndar- og haturshug í garð andstæðins síns í stjórnmálum.
Nú, þegar dómur hefur fallið, sannast endanlega að hér var um algerlega tilefnislausar ofsóknir að ræða, enda sýknað í öllum efnisatriðum, en sakfellt án refsingar fyrir formsatriði varðandi fyrirkomulag ríkisstjórnarfunda. Í raun á sú sakfelling við um allar ríkisstjórnir frá því Ísland fékk fullveldi og því alls ekki áfellisdómur yfir ríkisstjórn Geirs H. Haarde, eða honum sjálfum, heldur því fyrirkomulagi sem tíðkast hefur frá upphafi í þeim efnum.
Sigurður Líndal, einn virtasti lögspekingur landsins, er á þessari skoðun en hann segir m.a. í viðtali við mbl.is: Dómurinn hefur sakfellt en refsar ekki, þetta fer þannig nokkuð nærri því sem ég bjóst við. Mín fyrstu viðbrögð eru þau að þetta sé að sumu leyti áfellisdómur yfir stjórnsýslunni almennt, ég held að þetta sé það sem hefur viðgengist, kemur fram í rannsóknarskýrslunni og þingmannaskýrslunni og öllu því sem hefur verið farið í saumana á."
Sakfellingin er því fyrir smávægilegt aukaatriði í ákærunum, en sýknað var í öllum ákæruliðum, sem ekki hafði verið vísað frá dómi áður og sýnir það svart á hvítu hversu fáránlega var staðið að þessum pólitíska hráskinnaleik og þar með er dómurinn í raun gríðarlegur áfellisdómur yfir öllum þeim þingmönnum sem misnotuðu vald sitt og dómstólinn í hefndar- og ofsóknaræði sínu.
Hvað skyldu margir þeirra axla ábyrgð sína á þessu máli með afsögn þingmennsku?
![]() |
Áfellisdómur yfir stjórnsýslunni |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)