16.12.2010 | 08:06
Atvinnubótavinna með svikum og bellibrögðum
Samgönguráðherra boðar vegaframkvæmdir fyrir sex milljarða króna á næstu fjórum árum, sem fjármagnaðar verða með veggjöldum og segir ráðherrann að vegtollarnir séu alger grunnforsenda þess að ráðist verði í framkvæmdirnar, án gjaldanna verði ekkert unnið í vegagerð í nágrenni Reykjavíkur.
Svo langt gengur þetta skattabrjálæði, að áætlað er að íbúar eins af hverfum Reykjavíkur verði skattlagðir um leið og þeir fara út úr hverfinu til að sækja skóla, vinnu eða þjónustu borgarinnar, en lítið er um þjónustuútibú borgarstofnana á Kjalarnesi og meira að segja þarf að sækja nánast alla verslun út fyrir hverfið og því mun þessi skattur verða nokkurs konar ábót á aðra matarskatta fyrir þá sem þarna búa.
Skattleggja á hvern einasta kílómetra á öllum vegum í nágrenni Reykjavíkur um sjö krónur á kílómetra með þeirri röksemd að ekki sé óeðlilegt að þeir sem noti vegina greiði sérstaklega fyrir þá notkun. Það er í sjálfu sér ekki órökrétt, nema ef ekki væri fyrir þá staðreynd að bifreiðaeigendur leggja fé í vegaframkvæmdir í hvert einasta skipti sem þeir setja eldsneyti á bifreiðar sínar, kaupa dekk undir þær og greiða bifreiðagjöldin, því stór hluti þeirrar skattheimtu allrar á að ganga til nýbygginga vega og viðhalds þeirra.
Með því að "stela" þeim peningum sem innheimtir eru til vegagerðar með venjulegri skattheimtu í þeim tilgangi og ætla síðan að leggja á nýja vegaskatta er vægast sagt ósvífin aðgerð af hálfu ríkisstjórnarinnar og er þó ekki úr háum söðli að detta í þeim efnum hjá þessari ömurlegu ríkisstjórn.
Ögmundur segir að ekkert verði af framkvæmdunum, nema með nýrri skattheimtu. Landsmenn hljóta að afþakka þessa atvinnubótavinnu, sem fyrirhugað er að fjármagna með tvöfaldri skattheimtu.
Ráðherrum á ekki að líðast að þykjast vera að gera sérstakt átak í atvinnu- og vegamálum með svona svikum og bellibrögðum.
![]() |
Veggjöld milli hverfa í Reykjavík |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
15.12.2010 | 23:15
Verður unnið hratt og vel, enda Árni Páll víðsfjarri
Á blaðamannafundi í dag kynnti Árni Páll, efnahags- og viðskiptaráðherra, ásamt fulltrúum bankanna og Samtaka atvinnulífsins, samkomulag um skuldaafskriftir bankanna vegna lítilla og meðalstórra fyrirtækja og sagði m.a. að þetta væri brýnasta efnahagsverkefnið á næstu mánuðum. Munu þessar skuldaniðurfellingar ná til á milli 5.000 og 7.000 fyrirækja.
Einstaka sinnum ratast kjöftugum satt orð á munn og það henti Árna Pál þarna, en allar framkvæmdir og aðgerðir sem Árni hefur boðað fram að þessu, hafa átt að koma til framkvæmda "eftir helgi", þegar hugmyndirnar hefðu "verið útfærðar", en svo hefur hver vikan liðið af annarri án þess að útfærðu hugmyndirnar hafi tíma komið fram í dagsljósið.
Að þessu sinni snýr framkvæmd aðgerðanna ekkert að Árna Páli, eða ríkisstjórninni yfirleitt, enda verður þeim ýtt úr vör fljótlega og stefnt að því að þeim verði lokið fyrir vorið. Bráðnauðsynlegt er að flýta skuldaafskriftum fyrirtækjanna, smárra, meðalstórra og stórra, ef nokkur von á að vera til þess að innlend fyrirtæki fari að fjárfesta á ný og skapa verðmæti, þannig að mannaráðningar fari að komast í gang, en það er alger forsenda þess að efnahagslífið taki við sér og ráðstöfunartekjur almennings aukist.
Mikið er búið að ræða um nauðsyn þessara skuldaafskrifta á fyrirtækin, en um leið og skriður kemst á málið má búast við miklum bollaleggingum í fjölmiðlum og á netinu um framkvæmdina og söngurinn um að það sé glæpur að fella niður skuldir af fyrirtækjum þegar aldrei sé nóg gert af slíku fyrir almenning.
Nú þýðir ekkert að láta þann söng tefja lengur fyrir endurreisn fyrirtækjanna og þar með von almennings um bættan efnahag og möguleika til að standa við skuldbindingar sínar, ásamt því að framfleyta fjölskyldunum og gefa þeim möguleika á að veita sér einhvern óþarfa til viðbótar.
![]() |
Brýnasta verkefnið |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
15.12.2010 | 19:22
Kröfuharðir þiggjendur
Mikil ásókn hefur verið í úthlutanir sjálfboðaliðasamtaka á mat og öðrum nauðsynjavörum til fólks sem ekki er í færum til að sjá sér farborða á annan hátt. Sjálfboðaliðarnir leggja á sig ómælda vinnu og erfiði við hjálparstörf sín, en uppskera alls ekki í öllum tilfellum þakkir fyrir fórnirirnar sem þeir þurfa að færa í þágu hjálparsamtakanna.
Ekki alls fyrir löngu fékk Fjölskylduhjálpin mikla dembu yfir sig vegna þess að setja átti þá reglu að konur með börn fengju forgang í biðröðinni og síðar kom í ljós að dæmi væru um að konur fengju börn "lánuð" til að hafa með sér í röðina og reyna þannig að komast í forgang fram yfir aðra.
Í dag var óvenju mikil aðsókn að Fjölskylduhjálpinni, enda engin önnur samtök að gefa nauðsynjavörur og myndaðist því nokkuð löng biðröð "viðskiptavina" sem ekki höfðu allir vitað að í dag var einungis úthlutað til þeirra, sem skráð höfðu sig á lista fyrirfram og ekki er samkennd þiggjendanna meiri en svo, að nánast kom til átaka á staðnum og starfsmenn Fjölskylduhjálparinnar þurftu að sitja undir skömmum og svívirðingum vegna frekju og yfirgangs þeirra sem ekki höfðu skráð sig fyrirfram.
Útvarpið birti viðtal við konu, sem sagðist hafa verið búin að bíða lengi í röðinni, þegar hún hafi fengið nóg af svo slakri "þjónustu" og því hafi hún farið heim tómhent, enda "léti hún ekki bjóða sér svona lagað" eins og hún orðaði það svo snyrtilega.
Fólk sækir sér ekki aðstoð hjálparsamtaka að gamni sínu, en lágmark er að það kunni lágmarkskurteisi og sýni ekki fólki sem leggur á sig ómælt erfiði í sjálfboðavinnu yfirgang og frekju.
![]() |
Aðrir voru ævareiðir |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 20:14 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
15.12.2010 | 17:25
ESA sammála snilldinni við Neyðarlögin
Eftirlitsstofnun EFTA hefur nú kveðið upp úrskurð vegna kæra frá nokkrum lánadrottnum gömlu bankanna, en þeir töldu sér mismunað með Neyðarlögunum, sem sett voru í miklum flýti við hrun bankanna í október 2008. Með Neyðarlögunum voru bankainnistæður gerðar að forgangskröfum í þrotabú bankanna og urðu þar með grundvöllur að stofnun nýrra banka á rústum þeirra gömlu.
Með setningu Neyðarlaganna á ögurstundu og að það tókst að halda opnum öllum greiðslumiðlununarkerfum kortafyrirtækjanna og tölvuaðgangi almennings og fyrirtækja að bankareikningum sínum var nánast ótrúlegt kraftaverk og forðaði algerri stöðvun og upplausn þjóðfélagsins.
Fram til þessa hefur þetta afrek ekki fengið þá athygli og viðurkenningu sem það á svo sannarlega skilið, enda hefur ríkisstjórninni sem við tók í febrúar 2009 tekist svo hörmulega upp við endurreisn atvinnulífsins og þar með í glímunni við atvinnuleysið, að öll einbeitning þjóðarinnar hefur nánast farið í að lifa frá degi til dags og glíma við það skattahækkanabrjálæði sem á henni hefur dunið og ekki sér fyrir endan á ennþá.
Í stað þess að heiðra og virða þá sem heiður eiga skilinn vegna þeirra aðgerða sem gripið var til á þessum örlagaríka tíma, þá hafa þeir verið ofsóttir af pólitískum ofstopamönnum, sem meira að segja leggjast svo lágt, að reyna að sverta mannorð þeirra með ákærum fyrir dómstólum.
Sagan mun dæma þessa ofstopamenn og víst er að þeir geta ekki reiknað með að þá verði nokkur miskunn sýnd.
![]() |
Neyðarlögin ekki brot á EES-samningi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
15.12.2010 | 14:36
Gnarrandi alkóhólismi
Okkar stórkostlegi, mikilhæfi, dáði og elskaði leiðtogi, Gnarr, hélt innblásna ræðu við umræður um fjárhagsáætlun borgarinnar, um afleiðingar dagdrykkju og áhrif hennar á fjölskyldu alkóhólista. Ræðan, sem var mjög góð, enda flutt eftir fyrirframsömdu handriti góðra höfunda og vel æfð fyrir flutninginn í ræðustólnum, en tók þó ekki alls kostar rétt á umræðuefninu, þar sem sagt var að þjóðin hefði verið bláedrú og meðvirk með alkóhólista sem bruðlaði með fé sitt og annarra, þar til allt var komið í rúst og þá hafi hann farið í meðferð og skilið fjölskylduna (þjóðina) eftir með hrunið sem ofdrykkjan olli.
Það hefði verið miklu réttara að segja að stór hluti fjölskyldunnar (þjóðarinnar) hafi tekið fullan þátt í drykkjunni og því ætti þessi lýsing leiðtogans mikla við þjóðina sjálfa, en ekki eingöngu mestu drykkjuhrútana: "Alkohólistinn er ennþá í meðferð. Við vitum ekki hvort hann verður breyttur maður þegar hann kemur tilbaka. Við vitum ekki hvort hann hefur látið af hrokanum. Kannski er honum ekki viðbjargandi. Við vitum það ekki. Við vonum það auðvitað."
Leiðtoginn stórkostlegi, mikilhæfi, dáði og elskaði, varpaði fram nokkrum spurningum í þessari annars ágætu ræðu og meðal annars þessum: "Ætlum við að halda áfram að ásaka hvert annað hás og finna okkar einu huggun í að tala um HANN og hvað HANN sé mikið helvítis fífl? Ætlum við að halda áfram að vera sjúkir aðstandendur og fórnarlömb?"
Alkóhólisti verður aldrei fær um að takast á við vandamál sitt fyrr en hann viðurkennir vandann og í þessu tilfelli þarf fjölskyldan (þjóðin) að takast á við sinn eigin sjúkdóm og fyrsta skrefið er að viðurkenna að hún sé/hafi verið eyðslu- og lánasjúk og að á löngu árabili fyrir hrun hafi hún vanið sig á að kaupa allt sem hana langaði í og gat fengi lán til að kaupa, án þess að gera sér nokkrar grillur um hvernig ætti að vera mögulegt að endurgreiða öll lánin öðruvísi en að taka nýn og hærri lán.
Þegar sá hluti fjölskyldunnar (þjóðarinnar) sem sjálfur var í langtímaofdrykkju viðurkennir sjúkdóm sinn, þá fyrst verður hægt að taka á og lækna þessi verstu og langvinnustu veikindi, sem þjóðina hafa þjakað í marga áratugi.
![]() |
Líkti þjóðinni við fjölskyldu alkóhólista |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 16:48 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
14.12.2010 | 22:18
Gnarr boðar Sovét Reykjavík
Okkar stórkostlegi, mikilhæfi, dáði og elskaði leiðtogi Gnarr boðar nýja gjaldskrárstefnu í borginni sinni, þar sem hann ætlar að taka virkan þátt í því með stjórnendum ríkisins að gera alla þegna borgarinnar jafn fátæka.
Þessa nýju stefnu kallar leiðtoginn mikli "lauatengistefnu", en hún feslt í því að þeir sem lág laun hafa greiði lítið sem ekkert fyrir þjónustu borgarinnar, en þeir sem hafa há laun borgi svo mikið fyrir sömu þjónustu, að þeirra ráðstöfunartekjur verði ekki meiri og reyndar helst minni en þeirra, sem lágu launin hafa.
"Launatengistefnan" hefur gefið svo góða raun hjá ríkinu, að hvergi í heiminum eru skráðar fleiri einstæðar mæður en á Íslandi, en það stafar auðvitað af því að hjón með börn fá miklu lægri barnabætur en einstæðir foreldrar og alls ekki borgar sig orðið að reyna að hækka ráðstöfunartekjur heimila, því þá eru vaxtabætur umsvifalaust lækkaðar. Til að falla sem best inn í kerfið reynir fólk að vinna sem mest á svörtu og skilja á pappírunum og skrá heimilisföngin á sitt hvorum staðnum, enda eru allir á góðri leið með að verða jafn fátækir og um leið sérfræðingar í bótakerfinu.
Núna, þegar leiðtoginn stórkostlegi, mikilhæfi, dáði og elskaði, ætlar að endurbæta þetta kerfi ennþá meira en snillingum ríkisins hefur tekist, með því að tengja þjónustu borgarinnar við laun viðskiptavinanna, mun verða afar stutt í að engin millistétt verði eftir í landinu, aðeins samansafn af jafn fátækum einstæðingum af báðum kynjum og algerlega launalausum, fyrir utan bæturnar og það sem hægt verður að krafsa inn á svarta markaðinum.
Þegar svo verður komið mun leiðtoginn stórkostlegi, mikilhæfi, dáði og elskaði fullkomna drauminn um sovétið með því að koma á kerfinu góða: Hver leggi það af mörkum til þjóðfélagsins sem hann getur og uppskeri eftir þörfum.
Strax er hægt að byrja að syngja ljóðið góða: "Sovét Ísland, draumalandið, hvenær kemur þú?"
![]() |
Gjaldskrár tekjutengdar? |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 22:50 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (9)
14.12.2010 | 19:50
Upplýsingalög í stað Wikileaks
Lagt hefur verið fram á Alþingi frumvarp til endurnýjunar á upplýsingalögum opinberra fyrirtækja og stofnana, þannig að framvegis nái lögin yfir fyrirtæki sem eru a.m.k. eru að þrem fjórðu hlutum í eigu hins opinbera. Mun upplýsingaskyldan því ná til fyrirtækja eins og opinberu orkufyrtirtækjanna, en af einhverjum ástæðum eiga lögin ekki að ná til allra fyrirtækja og stofnana.
Lögin eiga ekki að ná til Ríkisútvarpsins, skóla, bókasafna, skjalasafna, rannsóknastofnana og ekki heldurl menningarstofnana. Einnig er tekið fram að breytingarnar á lögunum feli ekki í sér að allar upplýsingar verði sjálfkrafa aðgengilegar almenningi. Áfram verður byggt á þeirri reglu að vegna samkeppnishagsmuna sé heimilt að undanþiggja ýmsar upplýsingar aðgangsrétti almennings. Að langstærstum hluta verða takmarkanir á upplýsingarétti almennings óbreyttar frá gildandi lögum.
Að mörgu leyti eru þetta jákvæðar breytingar sem boðaðar eru á upplýsingalögunum, en þó ganga þær allt of skammt og fjöldi stofnana og fyrirtækja verða áfram lokaðar hvað upplýsingagjöf varðar og er það algerlega óviðunandi.
Í lýðræðisríkjum á öll stjórnsýsla að vera eins opin og mögulegt er, nánast ekkert annað en öryggismál og annað slíkt ætti að vera sveipað einhverjum leyndarhjúp, en þó ekki svo miklum að mögulegt sé að vinna einhver myrkraverk í skjóli leyndarinnar. Vegna slíkra mála ætti að setja á stofn sérstaka eftirlitsnefnd, sem hefði það hlutverk að sjá til þess að öll slík atriði séu innan laga og reglna.
Með opnari og bættri stjórnsýslu lýðræðisríkja og aflagningu óþarfa leyndar verður almenningur landanna vel upplýstur um gang mála, án þess að upplýsingaþjófar og samverkamenn þeirra, eins og Wikileaks, vaði uppi og brjótist inn í tölvukerfi fyrirtækja, stofnana og ríkja og steli jafnvel upplýsingum, sem viðkvæmar eru, t.d. vegna öryggissjónarmiða eða samkeppnismála.
![]() |
Upplýsingalög ná til ohf. |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
14.12.2010 | 15:08
Dýrar Bónusblekkingar
Endalaust er flett ofan af glæpastarfsemi í viðskiptum hér á landi og er nýjasta dæmið um svindl Haga á verðmerkingum kjötvara í verslunum Bónuss, Hagkaups og 10/11 í samstarfi við ýmsa kjötheildsala. Þegar upp komst um svindlið og rannsókn Samkeppniseftirlitsins hófst á því "gáfu kjötsalarnir sig fram" við eftirlitið í þeim tilgangi að bjóðast til að leysa frá skjóðunni, gegn vægari viðurlögum en ella hefðu orðið.
Þrátt fyrir samninga um umtalsverða lækkun á sektum munu fyrirtækin samt greiða 405 milljónir króna í sektir vegna brota sinna, en þetta eru Hagar vegna Bónuss, Hagkaups og 10/11, Kjarnafæði, Kjötbankinn, Kjötafurða-stöðvar KS, Norðlenska, Reykjagarður og Sláturfélag Suðurlands. Kjötbankinn greiddi að vísu enga sekt og telst því ekki með í sektarupphæðinni, þar sem hann er orðinn gjaldþrota og ekki náðist niðurstaða um samninga sektar vegna Síldar og fisks og Matfugls, þannig að endanleg niðurstaða um heildarsektina er ekki ljós.
Þegar tvö síðast nefndu fyrirtækin hafa fengið á sig sína sekt, má reikna með að heildargreiðslur fyrirtækjanna vegna lögbrota sinna verðu um hálfur milljarður króna, sem þó er verulega miklu lægri upphæð en sektirnar hefðu orðið ef fyrirtækin hefðu ekki iðrast gjörða sinna í sparnaðarskyni. Þetta sýnir einni hversu alvarlegum augum Samkeppniseftirlitið hefur litið þessa glæpastarfsemi og þann skaða sem Hagar f.h. Bónuss, Hagkaupa og 10/11 hafa valdið neytendum í gegnum tíðina.
Vonandi verða þær aðgerðir sem gripið verður til í framhaldinu til þess að losa það kverkatak sem Bónusgengið hefur haldið birgjum landsins í undanfarin tuttugu ár og eðlilegt samkeppnisástand fari að ríkja á smásölumarkaðinum hérlendis.
Sem betur fer hefur Bónusgengið misst eignarhaldið á verslunum sínum og það eitt og sér vekur vonir um heilbrigðari verslunarhætti eftirleiðis.
![]() |
405 milljónir í sektir |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
13.12.2010 | 21:30
Útrásarhugsun í menntaskólarekstri?
Óráðsía, rugl og jafnvel hreinir glæpir virðast hafa teygt sig inn í hing ýmsu skúmaskot þjóðfélagsins á árunum fyrir hrun og er nú komið í ljós að skólastarfið hefur ekki einu sinni sloppið við sukkið og svínaríið.
Menntaskólinn Hraðbraut virðist hafa gefið upp allt of mikinn fjölda nemenda við skólann og samkvæmt þjónustusamningi við Menntamálaráðuneytið hafa fengið ofgreiddar tugi eða hudruð milljóna króna, sem síðan hafa verið notaðar til að greiða út í arð til eiganda skólans. Furðulegt er að þessi háttsemi sýnist hafa viðgengist árum saman án þess að ráðuneytismönnum hafi nokkurn tíma dottið í hug að fá nemendafjöldann staðfestann eða að Ríkisendurskoðun skuli aldrei hafa yfirfarið samninginn við skólann og framkvæmd hans.
Menntamálanefnd Alþingis hefur nú loksins tekið málið til skoðunar og óskað eftir úttekt Ríkisendurskoðunar á framkvæmdinni og segir í fréttinni m.a: "Meirihlutinn gagnrýnir að á sama tíma og virkt eftirlit er með því gagnvart opinberum skólum að ríkisframlög fylgi raunverulegum nemendafjölda hafi ráðuneytið vanrækt að fylgja eftir hliðstæðum ákvæðum þjónustusamnings um rekstur umrædds einkaskóla. Telur meiri hlutinn mikilvægt að fullt samræmi sé í eftirfylgni ráðuneytisins með ráðstöfun opinbers fjár í menntakerfinu, hvort sem um opinbera skóla eða einkaskóla er að ræða. ..................
Meðferð þeirra á fjárframlögum úr ríkissjóði verður að teljast sérstaklega ámælisverð þegar höfð er hliðsjón af arðgreiðslum sem byggðust á vafasömum forsendum, lánveitingum til eigenda í andstöðu við ákvæði þjónustusamnings og ítrekuðum ofgreiðslum fjármuna sem ekki voru endurgreiddar í ríkissjóð."
Sé það rétt að um ofgreiðslur hafi verið að ræða til skólans á að sjálfsögðu að innheimta þær til baka og hafi verið greiddur út arður vegna hagnaðar sem myndaðist vegna falsaðra pappíra um fjölda nemenda skólans á að sjálfsögðu að kæra slíkt umsvifalaust til Ríkislögreglustjóra, sem þá myndi væntanlega setja sakamálarannsókn í gang á grundvelli slíkra upplýsinga.
Svind og þjófnað á ekki að líða neins staðar í kerfinu. Hvorki bankakerfinu né menntakerfinu.
![]() |
Vilja úttekt á einkareknum skólum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)
13.12.2010 | 19:41
Stjórnarmeirihlutinn er í þjóðarminnihluta
Vefsíða Financial Times, hins virta breska fjármálablaðs, birtir grein þar sem viðurkennt er að Íslendingar verði skattaþrælar Breta og Hollendinga næstu áratugina ef það ótrúlega myndi gerast að Íslendingar sjálfir samþykki að gangast undir slíka ánauð. Auðvitað mun þjóðin aldrei samþykkja sjálfviljug að gangast þessum yfirgangsþjóðum á hönd sem skattanýlenda vegna fjárkúgunar, sem studd er og unnið öttullega að, af hendi útsendara kúgaranna hér á landi.
Í greininni kemur fram að ríkisábyrgð sé alls ekki á tryggingarsjóðum innistæðueigenda og niðurlag fréttar mbl.is um greinina er svohljóðandi: "Þar segir jafnframt að niðurstaða Icesave-málsins sé dapurleg, því hún styðji við hugmyndir um ótakmarkaða ríkisábyrgð á rekstri banka: Í þessu tilfelli er ekki hægt að færa lagaleg rök fyrir slíkri ábyrgð og alls ekki á forsendum sanngirni, því breska eða hollenska ríkið myndi aldrei ábyrgjast innlán í eigu erendra aðila sem jafngiltu nærri þriðjungi þjóðarframleiðslu, myndi einn af stærri bönkum þar í landi falla, segir leiðarahöfundur Financial Times."
Engin þjóð á vesturlöndum myndi láta kúga sig til að undirrita samþykki við öðrum eins fjárkúgunum og hér er verið að beina að Íslendingum og engin ríkisstjórn með sjálfsvirðingu myndi láta sér detta í hug að vinna þannig gegn hagsmunum sinnar eigin þjóðar og ættjarðar.
Því miður er þó ein ríkisstjórn á vesturlöndum sem gerir nú atlögu að þjóð sinni í þriðja sinn í þágu erlendra yfirgangsseggja. Þjóðin hefur sýnt áður að hún lætur ekki bjóða sér slíkt og mun vafalaust gera það sama núna.
![]() |
Fangelsi skattgreiðenda |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)