Bloggfærslur mánaðarins, janúar 2010

Stjórnin farin að örvænta?

Fjármálajarðfræðingurinn er farinn að beita Birni Val Gíslasyni óspart, við að eggja forsetann til að klára að skrifa undir lögin um afnám fyrirvaranna við ríkisábyrgðinni á lánum Landsbankans.  Björn Valur ryðst fram á völlinn á hverri fréttastofunni af annarri, til að minna Ólaf Ragnar á, að ríkisstjórnarnefnan þurfi að fá þetta afgreitt í dag, í síðasta lagi.

Auðvitað er þetta leikrit, sem sett er upp, til þess að blekkja almenning og láta hann halda, að Ólafur Ragnar hafi þurft sérstakan umþóttunartíma, umfram átta mánuði, til þess að ákveða að staðfesta lögin.

Í viðtali við Bloombert lætur Björn Valur líta svo út, að verði blek forsetans ekki komið á pappírinn í fyrramálið, fari allir fjármálamarkaðir veraldar á hvolf og ríkisstjórnin muni segja af sér samstundis.

Þau hljóta að skemmta sér vel yfir þessum leikaraskap, forsetahjónin á Bessastöðum.


mbl.is Nauðsynlegt að fá niðurstöðu fljótt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þetta er líklega stuðningurinn sem vantaði

Ólafur Ragnar hefur nú látið líta svo út fyrir í nokkra daga, að hann sé að hugsa um hvað hann eigi að gera, varðandi staðfestingu eða synjun laganna um niðurfellingu fyrirvaranna við þrælasamninginn við Breta og Hollendinga.

Forsetinn er áreiðanlega sá þegn þessa lands, sem lengstan tíma hefur þurft til að mynda sér skoðun á málinu, en öllum öðrum hefur dugað átta mánaða umhugsunartími.

Nú er komin fram undirskriftasöfnun til að skora á forsetann að staðfesta lögin.  Undir hana hafa skrifað á áttundahundrað manns.  Þegar forsetinn ber hana saman við undirskriftinar sextíuþúsund, sem skoruðu á hann að synja lögunum staðfestingar, mun hann áreiðanlega leggja þær að jöfnu.

Þetta verður sjálfsagt sá stuðningur, sem hann mun nota til réttlætinar á staðfestingunni, ásamt orðskrúðinu, sem hann er auðvitað löngu búinn að semja og mun flytja við undirritunina.


mbl.is Skora á forsetann að staðfesta Icesave
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvað tefur hérlendis?

Lögreglan í Króatíu hefur handtekið bankastjóra og sex forsvarsmenn fyrirtækja, vegna lána sem ekki voru fullnægjandi veð fyrir.  Í fréttinni segir: 

"Bankastjórinn fyrrverandi er sakaður um að hafa veitt vildarvinum þáverandi stjórnvalda lá upp á að minnsta kosti 170 milljónir kuna, jafnvirði rúmlega 4,1 milljarðs króna, án þess að viðunandi veð væru fyrir hendi.  

Innanríkisráðuneyti landsins segir, að sjömenningarnir séu grunaður um glæpsamlegt athæfi í tengslum við áhættustýringu." 

Íslendski bankaruglarar lánuðu vildarvinum sínum og sjálfum sér hundruð, eða þúsundir milljarða króna, án viðunandi veða, í mörgum tilfellum engra veða, og allir ganga þeir lausir ennþá.

Ef Króatar fangelsa menn, á meðan að rannsakaðar eru lánveitingar upp á 4,1 milljarð króna, hvað dvelur þá orminn langa, hérlendis.

Hlýtur ekki að fara að styttast í að einhverjir aðrir en smáfuglarnir fari að gista tugthúsin?


mbl.is Króatískir bankamenn handteknir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvað veldur slíkri tvöfeldni?

Forsvarsmenn undirskriftarsöfnunarinnar gegn lögunum um afnám flestra fyrirvaranna um ríkisábyrgða á skuldum Landsbankans segja að a.m.k. fjórir stjórnarþingmenn hafi skrifðað undir áskorunina á forsetann að hafna lögunum staðfestingar.

Þetta er stórmerkilegt fyrir þær sakir að aðeins tveir stjórnarþingmenn greiddu atkvæði með breytingartillögu Péturs Blöndal, um að frumvarpinu yrði vísað til þjóðaratkvæðagreiðslu og aðeins tveir greiddu atkvæði gegn lagasetningunni.

Hvað getur valdið slíkri tvöfelni a.m.k. tveggja stjórnarþingmanna?

Hræsni eða lýðskrum, nema hvot tveggja sé.


mbl.is 4 stjórnarþingmenn skrifuðu undir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Er hægt að treysta Ólafi Ragnari?

Á þessu bloggi hefur því verið haldið fram, að þrátt fyrir þessa einstöku áskorun, muni forsetinn staðfesta lögin um niðurfellingu allra helstu fyrirvarana við þrælasamninginn um skuldir Landsbankans.

Nú hefur Ólafur Ragnar síðasta tækifærið á sínum ferli, til þess að standa með þjóðinni gegn undirlægjuhætti ríkisstjórnarnefnunnar, því ef hann staðfestir lögin, þvert gegn vilja 70% þjóðarinar, mun hann ekki eiga sér viðreisnar von í embætti og gæti eins sagt af sér strax.

Ólafur Ragnar á afar auðvelt með að segja lítið, með miklu orðskrúði og verður fróðlegt að heyra ræðuna, sem mun fylgja ákvörðun hans um staðfestinguna, því afar ólíklegt er að hann gangi gegn fyrstu hreinu vinstri stjórn landsins, sem hann er guðfaðir að, vegna baktjaldamakks síns við stofnun hennar.

Nú er spurt:  Er hægt að treysta Ólafi Ragnari Grímssyni.

Það hefur yfirleitt ekki verið hægt hingað til.


mbl.is Afhenda forseta undirskriftir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband