Jákvæðar stöðugar horfur, sem skipta engu máli

Greiningadeildir bankanna, sem eru uppfullar af sérfræðingum í efnahagsmálum og vaka yfir öllum hræringum í fjármálalífi landsins og gáfu íslenska banka- og útrásarruglinu ávallt hæstu einkunn á undanförnum árum. 

Þegar kerfið hrundi undan utanaðkomandi áhrifum og aðallega eigin vankunnáttu, fjárglæfrum og Matadorspili, kom það engum eins gjörsamlega á óvart og greiningadeildum bankanna.

Enn er leitað álits þessara deilda, sem að stórum hluta eru skipaðar sömu snillingunum og áður, en nú bregður svo við að svörin eru þannig, að hægt er að túlka þau eins og hver og einn vill, þannig að deildirnar geti svo sagt eftirá, að þessi eða hinn skilningurinn hafi ekki verið meining deildarinnar.

Nýjasta spekin kemur frá Greinindardeild Íslandsbanka og hún hljóðar á þá leið, að jákvætt sé að Moody´s telji horfur íslensks fjármálakerfis stöðugar á barmi ruslflokks, en þó skipti það í sjálfu sér ekki máli, af því að enginn sé að taka lán og enginn vilji lána hvort sem er.

Í fréttinni segir:  "Þetta þýðir að öll matsfyrirtækin setja skuldabréf ríkissjóðs einu þrepi frá svokölluðum ruslbréfum, svo kölluðum spákaupmennskubréf (e. junk bonds)."

Þetta mat hlýtur að vera ákaflega jákvætt, án þess að skipta nokkru máli.  Það þorir enginn að lána svona skuldara hvort sem er, og enginn skuldari getur tekið lán á svona kjörum.

Ef þetta er óskiljanlegt, þá var það einmitt meiningin, til þess að geta sagt síðar, að það hafi hvort sem er ekki þýtt það, sem einhver kann að hafa lesið út úr því.


mbl.is Telur jákvætt að Moody's meti horfur stöðugar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband