Sanngjörn leið til jöfnunar afborgana

Árni Páll Árnason, félagsmálaráðherra, hefur hrakist úr einu víginu í annað, vegna skulda heimilanna.  Fram eftir öllu ári hélt hann því fram, að ekkert væri hægt að gera til að létta greiðslubyrði lána, en smátt og smátt hefur hann komist að þeirri niðurstöðu, sem var í raun lögleidd af fyrri ríkisstjórn á fyrra ári, að lausnin væri að færa afborganir í sama horf og þær voru í fyrravor og miða síðan við greiðslujöfnunarvísitölu, sem tekur mið af launa- og atvinnustigi í landinu á hverjum tíma.

Þetta er sanngjörn leið, því hún dreifir afborgununum í takt við launa- og atvinnuþróun, sem líklega mun leiða til þess, að allir geti greitt skuldir sínar á lánstímanum, a.m.k. húsnæðislánin, en ólíklegt er að allir jeppar, húsvagnar, húsbílar og vélsleðar greiðist að fullu á lánstímanum, að viðbættum þeim þrem árum, sem lánstíminn mun lengjast.

Þeir, sem "endurfjármögnuðu" íbúðalánasjóðslánin sín með nýjum og miklu hærri erlendum lánum, munu líklega þurfa að borga leikföngin með íbúðalánunum á lánstímanum og munu ekki fá hluta kaupverðs þeirra eftirgefin, eins og hinir, sem tóku sérstök erlend lán til kaupanna.

Að sjálfsögðu munu þeir skuldsettustu ekki sætta sig við þessa leið, þar sem "greiðsluvilji" þeirra er ekki lengur fyrir hendi og þeim finnst sjálfsagt að almennir skattgreiðendur taki á sig hluta af skuldunum. 

Þessi leið er hinsvegar sanngjörn í ljósi þeirra gömlu og góðu gilda, að þeir sem taka lánin, endurgreiði þau sjálfir, en láti þau ekki falla á aðra.


mbl.is Gott til skamms tíma
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband