Ríkið eykur atvinnuleysið á almennum markaði

Jóhanna, ríkisverkstjóri, og Steingrímur Jong Sig., fjármálajarðfræðingur, boðuðu fyrir kosningar, að ríkið myndi leggja mikið í að halda úti mannaflsfrekum framkvæmdum, til þess að sporna gegn atvinnuleysinu á almenna vinnumarkaðinum.  Nú eru efndirnar að koma í ljós og þær eru í takt við allt annað hjá þessum ríkisvinnuflokki, sem sagt þveröfugar við það sem lofað var fyrir kosningar.

Ríkisvinnuflokkurinn getur ekki komið sér saman um sparnað og hagræðingu í rekstri ríkisstofnana og grípur því til þess ráðs, að skerða ekki hár á höfði nokkurs ríkisstarfsmanns, en senda enn fleiri starfsmenn almenna markaðarins á atvinnuleysisskrá.

Á meðan einhver hefur ennþá vinnu á almenna markaðinum, skal hann og fyrirtækið sem hann vinnur hjá, skattpínt í drep, til þess að greiða ríkisstarfsmönnunum, sem ekki má hrófla við, sem óbreyttust laun.  Með þessu er ekki verið að halda því fram, að ríkisstarfsmenn séu of sælir af sínu, en það skýtur bara skökku við, að enginn áhugi virðist vera á, að koma almenna atvinnulífinu aftur á fæturna, til þess að halda opinbera kerfinu gangandi, án endalausra skattahækkana.

Á þessu þarf kannski enginn að vera hissa, því opinberir starfsmenn eru tryggustu kjósendur vinstri flokkanna.

Hvað gera menn ekki til að halda kjósendum sínum góðum? 


mbl.is Verktakastarfsemi blæðir út
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband