Djörfung ríkisstjórnarinnar

"Gylfi Magnússon, viðskiptaráðherra, segist telja að svigrúm sé nú til þess, að nafnvextir lækki jafnhratt og verðbólgan. Sagðist hann á blaðamannafundi í dag myndu fagna djarfri ákvörðun Seðlabankans um vaxtalækkun en vaxtaákvörðunardagur er nú á fimmtudag."   Á þessum orðum hefst frétt mbl.is um væntingar ríkisstjórnarinnar til djörfungar Seðlabankans á fimmtudaginn.  Miðað við fyrri verk norska förusveinsins og peningastefnunefndarinnar er ekki að vænta stórafreka úr þeirri átt.

Við hverja stýrivaxtaákvörðun ruglar bankinn um tólf mánaða verðbólgu aftur í tímann, en hún skiptir nákvæmlega engu máli í framtíðinni, því núverandi verðbólgustig er aðeins 1,4%.  Ef Gylfa á að verða að ósk sinni þyrfti stýrivaxtalækkunin næsta fimmtudag að fara strax niður í 3-4% og niður í 1% fyrir lok ársins, enda verður þá líklega verðhjöðnun í landinu, en ekki verðbólga.

Nú kemur í fyrsta skipti fram hjá ríkisstjórninni að gríðarlegt verk væri framundan í ríkisfjármálum og nú þyrfti hún að fá skoðanir frá fulltrúum launþega, atvinnurekenda, bænda og sveitarfélaga.  Það var nú tími til kominn, að stjórnin færi að gera sér grein fyrir þeim efnahagsvanda sem þjóðfélagið er í og hefur reyndar átt í um átta mánaða skeið.  Betra seint en aldrei.

Eftir uppgjöfina í ESB málinu, þyrfti ríkisstjórnin sjálf að fara að sýna dálitla djörfung á einhverjum sviðum.

 


mbl.is Myndi fagna djarfri vaxtalækkun
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Ertu þá að meina að ríkisstjórnin ætti að fara að vinna fyrir okkur fólkið? Er það ekki doldið mikils til ætlast?

Svavar Friðriksson (IP-tala skráð) 5.5.2009 kl. 14:49

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband