27.4.2009 | 10:00
Svínaflensa
Í nokkuð mörg ár hafa menn óttast að fuglaflensuveira myndi stökkbreytast og verða að banvænum smitfaraldri milli manna, með upphafi í Asíu, eins og flestar aðrar flensur. Það hefur ekki gerst ennþá, en nú berast allt í einu fréttir af nýrri stökkbreyttri veiru, sem ættuð virðist vera frá Mexikó og er tekinn að breiðast til annarra landa með miklum hraða.
Nú á dögum er erfitt að verjast faraldri sem þessum, þar sem samgöngur milli heimshluta eru svo miklar og ekki tekur nema hálfan til einn sólarhring að komast með flugi milli fjarlægustu staða veraldarinnar. Þannig getur veiran hafa borist til margra landa, jafnvel áður en menn átta sig í upprunalandinu, á alvarleika málsins.
Íslensk heilbrigðisyfirvöld verða að bregðast strax við og hefja allan þann varnarundirbúning sem mögulegur er og ekki síður að setja saman sérfræðingahóp til stjórnar aðgerðum þegar svínaflensan verður að faraldri hérlendis.
Svínaflensan virðist á ótrúlega stuttum tíma ætla að verða að nánast óviðráðanlegri heimsvá, ofan í heimskreppuna í efnahagsmálum.
Allt virðist ætla að verða óláni heimsins að vopni.
Óttast svínaflensuna meira en fuglaflensuna | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
« Síðasta færsla | Næsta færsla »
Höfundur
Áhugamaður um lífið og tilveruna.
Athugasemdir og umræður eru öllum opnar á síðunni, en þess vænst að þær séu hófstilltar og án mikilla stóryrða.
Ruddalegar athugasemdir, sem innihalda lítið sem ekkert annað en skítkast og/eða persónulegar svívirðingar um menn og málefni verða fjarlægðar af þessari síðu, jafnóðum og þær uppgötvast.
Eldri færslur
2021
2020
2019
2018
2017
2016
2015
2014
2013
2012
2011
2010
2009
Færsluflokkar
Tenglar
Mínir tenglar
Bloggvinir
- malacai
- andres
- annabjorghjartardottir
- attilla
- skagstrendingur
- baldvinj
- benediktae
- beggo3
- h2o
- bbg
- bjarnimax
- bookiceland
- siggibragi
- brandarar
- deiglan
- gagnrynandi
- doggpals
- ekg
- elfur
- eeelle
- ellamagg
- elismar
- evaice
- ea
- fannarh
- lillo
- vidhorf
- gerdurpalma112
- gunnargunn
- tilveran-i-esb
- gthg
- gun
- gudbjorng
- zumann
- gudjul
- gp
- hreinn23
- brekkukotsannall
- gustaf
- hallarut
- morgunblogg
- hannesgi
- miniar
- maeglika
- heimssyn
- aanana
- hildurhelgas
- himmalingur
- minos
- atvinnulaus
- daliaa
- ingvarvalgeirs
- jakobk
- fun
- jennystefania
- jonsullenberger
- dondi
- jonsnae
- jonvalurjensson
- jonarni
- jonoskarss
- jorunnfrimannsdottir
- kaffistofuumraedan
- krist
- kristinn-karl
- krissiblo
- kristjan9
- altice
- sleggjudomarinn
- elvira
- mathieu
- morgunbladid
- ninasaem
- pallru
- pallvil
- palmij
- iceland
- ragnar73
- rannsoknarskyrslan
- redlion
- seinars
- fullvalda
- logos
- sigrunzanz
- sigurduringi
- sigurdurkari
- siggisig
- sisi
- siggifrikk
- stebbifr
- stjornuskodun
- stormsker
- saevargudbjornsson
- athena
- susannasvava
- tibsen
- ubk
- vala
- val
- vestarr
- postdoc
- gummih
- asdisran
- thjodarsalin
- mullis
- sumri
- t24
- omarragnarsson
- umbiroy
- thjodarheidur
- thorhallurheimisson
- flinston
- diva73
- thjodarskutan
- lifsrettur
- samstada-thjodar
- fullveldi
Nóv. 2024 | ||||||
S | M | Þ | M | F | F | L |
---|---|---|---|---|---|---|
1 | 2 | |||||
3 | 4 | 5 | 6 | 7 | 8 | 9 |
10 | 11 | 12 | 13 | 14 | 15 | 16 |
17 | 18 | 19 | 20 | 21 | 22 | 23 |
24 | 25 | 26 | 27 | 28 | 29 | 30 |
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 14
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 10
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Váin er alvarleg, en hún þarf ekki að vera óviðráðanleg. Með traust heilbrigðiskerfi, örugga stjórnsýslu og vísindin að vopni eigum við að geta hrundið svona atlögu. Smitsjúkdómar eins og inflúensa og svínaflensa, lúta einföldum lögmálum um smit, dreifingu og aðlögun. Blessunarlega eru við viti bornar manneskjur og getum nýtt okkur þá þekkingu til að koma fyrir smit, setja upp sóttkví og meðhöndla þá sem sýktir eru. Lítil stoð verður í örvæntingu.
Arnar Pálsson, 27.4.2009 kl. 11:23
Arnar: Færslan var alls ekki skrifuð í neinni örvæntingu, heldur til að ítreka að vá er fyrir dyrum og yfirvöld verða að vera viðbúin snöggri útbreiðslu flensunnar. Allt er rétt sem þú segir um að gott heilbrigðiskerfi og þekking mun gagnast vel í baráttu við þennan vágest.
Aldrað fólk og þeir sem eru veikir fyrir hljóta að verða í mestri hættu, og við því þarf að bregðast. Eftir að pistillinn var skrifaður, hafa veriða að birtast nýjar fréttir um viðbrögð heilbrigðisyfirvalda um allan heim, og þar er auðvitað verið að bregðast við af viti bornum manneskjum, sem ekki eru endilega fullar örvæntingar.
Axel Jóhann Axelsson, 27.4.2009 kl. 11:39
Athygli vekur að Texas er einmitt nýbúið að hóta því að segja sig úr ríkjasambandinu (Bandaríkin hafa hvert um sig fullveldisrétt skv. stjórnarskrá), en lítið hefur borið á því máli í fjölmiðlum sökum landlægrar þöggunar. Á sama tíma logar allt í átökum glæpagengja beggja vegna landamæranna við Mexíkó. Svo kemur upp þessi svínaflensa og fullkomið tækifæri til að lýsa yfir neyðarástandi dettur í fangið á alríkisstjórninni í Washington, en við það virkjast tilskipun frá Bush sem enn er í gildi og heimilar beitingu hervalds innan landamæranna (sem alla jafna er óheimilt). Tilviljun? Beiting hervalds er það sjaldnast, og því er mikilvægt að fylgjast með hvernig þetta ástand þróast. Fordæmið gæti skipt máli varðandi umræðu hérna heima um ESB, því vegna óeiningar um efnahagsmál eru sumar þjóðir orðnar efins um aðild sína þar. Hvað gerist ef eitthvað ríki, t.d. Spánn eða Írland ákveður að ganga úr Evrópusambandinu vegna efnahagshruns?
Guðmundur Ásgeirsson, 27.4.2009 kl. 13:21
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.