17.4.2009 | 09:49
Stjórnin selur vændið
Loksins hafa stjórnarflokkarnir séð að sér og hætt við að keyra stjórlagafrumvarpsbastarðinn í gegnum þingið fyrir kosningar. Nánast allir umsagnaraðilar, sem komu fyrir þingnefnd eða sendu inn umsagnir, mæltu á móti breytingunum og ráðlögðu meiri og betri vinnu við frumvarpsgerðina og að stjórnarskráin yrði ekki gerð að pólitísku bitbeini, sem stjórnarmeirihluti hverju sinni hringlaði með að eigin geðþótta.
Samfylkingin keypti Framsóknarflokkinn til að verja ríkisstjórn sína og VG vantrausti, með því að lofa þeim að koma þessu illa undirbúna máli í gegnum þingið fyrir kosningar. Jóhanna, ríkisverkstjóri, hafði þó í raun engan sérstakan áhuga á málinu, en vegna sinnar einstöku þrjósku, að ekki sé sagt frekju, hefur þessu máli verið haldið í umræðunni á meðan ríkisverkstjórinn hefur verið að vinna sér tíma til að koma öðrum málum í gegnum þingið. Alvaran með þetta mál var engin, það var ljóst frá upphafi.
Hér hafði því verið spáð, að eftir að ríkisvinnuflokkurinn hefði tafið þingstörfin nægilega lengi, í sína þágu, myndi Smáflokkafylkingin selja stjórnarskrárfrumvarpið gegn samþykkt álvers í Helguvík. Það er nú komið á daginn.
Hins vegar þurftu VG að fá eitthvað fyrir sinn snúð líka, en því er sleppt í þessari frétt mbl.is, þó hún sé byggð á frétt úr Fréttablaðinu. Málið sem VG seldi stjórnarskrárfrumvarpið fyrir, er nefnilega frumvarp VG um bann við kaupum á vændi.
VG hlýtur að vera stolt af þessari vændissölu.
Stjórnarskrá ekki breytt | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
« Síðasta færsla | Næsta færsla »
Höfundur
Áhugamaður um lífið og tilveruna.
Athugasemdir og umræður eru öllum opnar á síðunni, en þess vænst að þær séu hófstilltar og án mikilla stóryrða.
Ruddalegar athugasemdir, sem innihalda lítið sem ekkert annað en skítkast og/eða persónulegar svívirðingar um menn og málefni verða fjarlægðar af þessari síðu, jafnóðum og þær uppgötvast.
Eldri færslur
2021
2020
2019
2018
2017
2016
2015
2014
2013
2012
2011
2010
2009
Færsluflokkar
Tenglar
Mínir tenglar
Bloggvinir
- malacai
- andres
- annabjorghjartardottir
- attilla
- skagstrendingur
- baldvinj
- benediktae
- beggo3
- h2o
- bbg
- bjarnimax
- bookiceland
- siggibragi
- brandarar
- deiglan
- gagnrynandi
- doggpals
- ekg
- elfur
- eeelle
- ellamagg
- elismar
- evaice
- ea
- fannarh
- lillo
- vidhorf
- gerdurpalma112
- gunnargunn
- tilveran-i-esb
- gthg
- gun
- gudbjorng
- zumann
- gudjul
- gp
- hreinn23
- brekkukotsannall
- gustaf
- hallarut
- morgunblogg
- hannesgi
- miniar
- maeglika
- heimssyn
- aanana
- hildurhelgas
- himmalingur
- minos
- atvinnulaus
- daliaa
- ingvarvalgeirs
- jakobk
- fun
- jennystefania
- jonsullenberger
- dondi
- jonsnae
- jonvalurjensson
- jonarni
- jonoskarss
- jorunnfrimannsdottir
- kaffistofuumraedan
- krist
- kristinn-karl
- krissiblo
- kristjan9
- altice
- sleggjudomarinn
- elvira
- mathieu
- morgunbladid
- ninasaem
- pallru
- pallvil
- palmij
- iceland
- ragnar73
- rannsoknarskyrslan
- redlion
- seinars
- fullvalda
- logos
- sigrunzanz
- sigurduringi
- sigurdurkari
- siggisig
- sisi
- siggifrikk
- stebbifr
- stjornuskodun
- stormsker
- saevargudbjornsson
- athena
- susannasvava
- tibsen
- ubk
- vala
- val
- vestarr
- postdoc
- gummih
- asdisran
- thjodarsalin
- mullis
- sumri
- t24
- omarragnarsson
- umbiroy
- thjodarheidur
- thorhallurheimisson
- flinston
- diva73
- thjodarskutan
- lifsrettur
- samstada-thjodar
- fullveldi
Nóv. 2024 | ||||||
S | M | Þ | M | F | F | L |
---|---|---|---|---|---|---|
1 | 2 | |||||
3 | 4 | 5 | 6 | 7 | 8 | 9 |
10 | 11 | 12 | 13 | 14 | 15 | 16 |
17 | 18 | 19 | 20 | 21 | 22 | 23 |
24 | 25 | 26 | 27 | 28 | 29 | 30 |
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 14
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 10
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Veistu....ég held að þetta sé rétt hjá þér......
Eldur Ísidór, 17.4.2009 kl. 10:38
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.