Hver rannsakar Scotland Yard?

Alveg er ótrúlegt að einhver undirtilla hjá Scotland Yard skuli geta ráðstafað 30 milljónum punda úr sjóðum stofnunarinnar, án þess að yfirgjaldkerinn viti nokkuð um málið.  Í fréttinni segir: 

„Þetta er algjört stórslys,“ sagði Jenny Jones, sem situr í stjórninni fyrir hönd Græna flokksins. „Þetta er hræðileg eyðsla á fjármunum og sýnir hið raunverulega vandamál við fyrirkomulagið. Opinber stofnun á ekki að geta fjárfest fyrir 30 milljónir punda án þess að féhirðirinn viti nákvæmlega hvað er að gerast.“

Stjórn lögreglunnar fjárfesti fyrst í Landsbankanum í febrúar í fyrra vegna þeirra góðu vaxta sem bankinn bauð. Lögreglan vissi hins vegar í apríl af neikvæðu mati Fitch matsfyrirtækisins á bankanum.  

Þetta hlýtur að kalla á rannsókn á meðferð fjármuna hjá Scotland Yard, en þá vaknar spurningin um hver á að rannsaka rannsóknarlögregluna.  Er það Scotland Yard sjálft, M5, M6 eða einhver annar?

Steingrímur J. gæti bent Bretunum á Evu Joly.


mbl.is Scotland Yard tapaði á falli Landsbankans
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband