Tekjutengd hjúkrun

Allir Íslendingar sitja við sama borð varðandi heilsugæslu og sjúkrahúsvist, þ.e. allir greiða sama gjald fyrir komu á heilsugæslustöðvar (að vísu eru börn gjaldfrí og ellilífeyrisþegar fá afslátt) og enginn borgar neitt fyrir sjúkrahúslegu.  Sama kerfi er á greiðslum fyrir lyf, með þeirri undantekningu að ellilífeyrisþegar fá meiri niðurgreiðslu en aðrir.  Alveg er sama hvort ríkið rekur stofnanirnar sjálft eða kaupir þjónustuna af einkaaðilum og nánast verið samstaða um það meðal almennings, að þeir efnameiri ættu ekki að geta keypt sig fram fyrir aðra, t.d. á biðlistum.

Því skýtur skökku við, að á hjúkrunarheimilum fyrir aldraða skulu dvalargjöld vera tekjutengd og fólk greiði þar allt að 240 þúsund krónum á mánuði fyrir dvöl og þjónustu á meðan aðrir greiða lítið sem ekki neitt.  Þar fyir utan er ekkert tillit tekið til þess hvort viðkomandi er að reka sitt gamla heimili fyrir makann eða fatlaða afkomendur.  Þetta er mismunun sem hvergi er annarsstaðar í kerfinu og verður að breyta strax.

Að níðast á gamalmennum, jafnvel þau þau hafi önglað einhverju saman um ævina, með þessum hætti er til háborinnar skammar.


mbl.is Eiginkonurnar settar út á götu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jóhannes H. Laxdal

þetta er ekkert nema rugl,  Hámarks þátttaka í dvalarkostnaði er 262.313 kr á mánuði.

ég er hættur að vera fúll yfir háu leiguverði á íbúðinni sem ég leigi.

Jóhannes H. Laxdal, 16.3.2009 kl. 18:29

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband