Dýrt stjórnlagaþing

Halli ríkissjóðs á þessu ári er áætlaður að verði 150 milljarðar króna, en miðað við fyrri reynslu má reikna með að hann fari í a.m.k. 170 milljarða.  Í samningi við Alþjóðagjaldeyrissjóðinn skuldbundu stjórnvöld sig til þess að skila hallalausum fjárlögum í síðasta lagi árið 2013, þannig að árlegur niðurskurður á árunum 2010-2012 þarf að vera a.m.k. 60-70 milljarðar til að ná því marki.  Á þessu ári var skorið niður um 40 milljarða frá upphaflegu fjárlagafrumvarpi og þótti mörgum nóg um og kölluðu þann niðurskurð blóðugan.

Miðað við niðurskurð ársins 2009 verður ekki hægt að skera niður um þær upphæðir sem nauðsynlegar eru nema með algerri uppstokkun á ríkiskerfinu, sem mun verða bæði erfitt og sársaukafullt og væntanlega fækka starfsmönnum á öllum sviðum opinberrar þjónustu.  Á sama tíma dettur ríkisstjórninni í hug að boða til stjórnlagaþings sem mun kosta rúmlega tvo milljarða króna.  Ætla má að fyrirséður niðurskurður ríkisútgjalda verði nógu erfiður, þó ekki þurfi að skera niður til viðbótar til að mæta kostnaði við verkefni, sem vel geta beðið þar til betur árar.

Jafnvel skattahækkunarflokkunum, sem vona að þeir fái áframhaldandi umboð eftir kosningar, geta ekki hækkað skatta svo mikið að viðbótartekjurnar dugi fyrir nema broti af þeirri fjárvöntun sem verður á næstu árum.

Samfylkingin og sérstaklega VG verða að fara að vakna upp af skattadraumum sínum.  Annars verða þeir að martröð þjóðarinnar.


mbl.is Stjórnlagaþing kostar 1,7 til 2,1 milljarða
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband