Gamansamir vinstri grænir

Vinstri grænir ætla ekki að samþykkja byggingu álvers í Helguvík, sem áætlað er að skapi tvöþúsund ársstörf á byggingartíma.  Þeir ætla reyndar ekki að styðja byggingu neinna fyrirtækja sem "menga", en slík fyrirtæki eru reyndar fá, ef þau eru í einhverjum framleiðslugreinum.

Sérstaklega er tekið fram í samþykkt ríkisstjórnarinnar um fjölgun starfa að það skuli verða "fjölgun í hópi þeirra sem njóta listamannalauna og við inn- og útflutning á óunnum fiski".  Þetta þarf að lesa a.m.k. tvisvar til að treina brandarann svolítið.  Ekki verður séð í fljótu bragði séð að það sé sérstaklega þjóðhagslega hagkvæmt að bæta við 33 listamönnum á ríkislaun, væntanlega við að mála málverk, semja sinfóníu eða skrifa jólabók.  Hvað skyldu margir geta fengið vinnu við innflutning á óunnum fiski?  Væri ekki meira atvinnuskapandi að stuðla að minni útflutningi á óunnum fiski og stuðla að meiri fullvinnslu innanlands?

Nú eru liðnar fimm vikur frá því að Jóhanna, ríkisverkstjóri, og vinnuflokkur hennar tók til óspilltra málanna við björgun atvinnulífsins og heimilanna og svo eru lagðar fram svona tillögur.

Þetta er ágætis föstudagsbrandari.

 

 


mbl.is Ætla að skapa 4000 ársverk
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

4000 ársverka nýsköpun gæti verið heiðarleg tilraun til að bæta kjör einhverra. Kannski betra en akkúrat ekkert?

Nú bíð ég spennt eftir að heyra hvernig þetta góða fólk nýtir fjölmiðlana til að  segja tíðindin.

Ég er líka spennt að heyra hvaða meðfjöllun fjölmiðlar gefa þessari samþykkt ríkisstjórnarinnar og líka hvort þeir komi til með að  fylgist með framkvæmdinni.

Agla (IP-tala skráð) 6.3.2009 kl. 15:49

2 identicon

Afhverju eru þið íhaldsmenn á móti atvinnusköpun?

Bobbi (IP-tala skráð) 6.3.2009 kl. 16:31

3 Smámynd: Axel Jóhann Axelsson

Íhaldsmenn eru hreint ekki á móti atvinnusköpun.  Þeir kunna líka vel að meta góða brandara.

Axel Jóhann Axelsson, 6.3.2009 kl. 17:11

4 identicon

Álverð hefur lækkað um helming frá því í júlí á síðasta ári og heyrt hef ég að álfyrirtækin hafi verið að tapa á álverum sínum hér áður en þessi mikla lækkun gekk í garð. Hvað um það, þú vilt byggja álver og talar svo um brandara? Við skulum gera okkur grein fyrir því að fyrirbærið er alheimskreppa en ekki Íslandskreppa eingöngu. Samdráttur er og mun verða í margs konar iðnaði sem notar ál í framleiðslu sinni.

Sjá gífurlegt fall álverðs hér:

http://www.lme.co.uk/aluminium_graphs.asp

eða hér:

http://www.basemetals.com/freecharts/freechart.aspx?id=2833967c-4a16-4048-b992-c613900e27d2

Gunnar Geir (IP-tala skráð) 7.3.2009 kl. 09:43

5 Smámynd: Axel Jóhann Axelsson

Verð á áli, eins og öllum öðrum framleiðsluvörum, hefur sveiflast mikið, er stundum hátt og stundum lágt, en fyrirtækin reyna alltaf að komast í gegnum niðursveiflurnar og vera tilbúin fyrir uppsveifluna.  Þegar efnahagslíf heimsins tekur við sér aftur verður þörf fyrir ál eins og áður. 

Brandari vinstri grænna snerist ekki um álver, heldur að kynna það sem átak í atvinnumálum að fjölga fólki á listamannalaunum.

Vinstri grænir mega eiga það að þeir eru gamansamir á þessum krepputímum.

Axel Jóhann Axelsson, 7.3.2009 kl. 11:05

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband