27.2.2009 | 15:45
Eitt vandamál leyst
Vandræðagangur "aðgerðaríkisstjórnarinnar" hefur ekki riðið við einteyming þessar fjórar vikur sem stjórnin hefur setið og eitt dæmið um það var skipun Steingríms, fjármálajarðfræðings, á vini sínum sem stjórnarformanns í Nýja kaupþingi. Vinurinn var skipaður á mánudegi og afskipaður á miðvikudegi, þegar fjármálajarðfræðingurinn komst að því að nýji stjórnarformaðurinn stóð í tugmilljóna skaðabótamáli gegn Fjármálaráðuneytinu.
Annað vandræðamál er að eftir samþykkt hefndarlaganna gegn Davíð Oddssyni skuli stjórnarskráin brotin með skipun hins nýja seðlabankastjóra. Einnig er athyglisvert að aðalhagfræðingur seðlabankans skuli hafa verið skipaður aðstoðarbankastjóri og eigi þar með að koma í stað tveggja hagfræðinga, sem áður gengdu bankastjórastöðum í bankanum. Samkvæmt kenningunni er hrun þjóðarbúsins seðlabananum að kenna og þar með mætti ætla að hagfræðingaliðið í bankanum væri samsekt í þrotinu, en a.m.k. virðist aðalhagfræðingurinn hafa staðið utanvið þetta allt saman, fyrst honum er treyst í aðstoðarbankastjórastólinn. Varla verður fram hjá honum gengið þegar staðan verður auglýst.
Eftir vandræðaganginn með tveggja daga stjórnarformanninn hefur vel menntuð og reynslumikil kona verið sett í stól stjórnarformanns Nýja kaupþings og vonandi verður hún ekki sett af aftur á næsta aðalfundi bankans, eins og búið var að hóta næstsíðasta stjórnarformanni.
Stjórnmálaskoðanir Huldu Dóru Styrmisdóttur eru ekki ljósar og skipta í sjálfu sér engu máli, en hún á a.m.k. ættir að rekja til valinkunnra og heiðarlegra sjálfstæðismanna. Það eru mikil meðmæli.
Aðeins konur í stjórn Nýja Kaupþings | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
« Síðasta færsla | Næsta færsla »
Höfundur
Áhugamaður um lífið og tilveruna.
Athugasemdir og umræður eru öllum opnar á síðunni, en þess vænst að þær séu hófstilltar og án mikilla stóryrða.
Ruddalegar athugasemdir, sem innihalda lítið sem ekkert annað en skítkast og/eða persónulegar svívirðingar um menn og málefni verða fjarlægðar af þessari síðu, jafnóðum og þær uppgötvast.
Eldri færslur
2021
2020
2019
2018
2017
2016
2015
2014
2013
2012
2011
2010
2009
Færsluflokkar
Tenglar
Mínir tenglar
Bloggvinir
- malacai
- andres
- annabjorghjartardottir
- attilla
- skagstrendingur
- baldvinj
- benediktae
- beggo3
- h2o
- bbg
- bjarnimax
- bookiceland
- siggibragi
- brandarar
- deiglan
- gagnrynandi
- doggpals
- ekg
- elfur
- eeelle
- ellamagg
- elismar
- evaice
- ea
- fannarh
- lillo
- vidhorf
- gerdurpalma112
- gunnargunn
- tilveran-i-esb
- gthg
- gun
- gudbjorng
- zumann
- gudjul
- gp
- hreinn23
- brekkukotsannall
- gustaf
- hallarut
- morgunblogg
- hannesgi
- miniar
- maeglika
- heimssyn
- aanana
- hildurhelgas
- himmalingur
- minos
- atvinnulaus
- daliaa
- ingvarvalgeirs
- jakobk
- fun
- jennystefania
- jonsullenberger
- dondi
- jonsnae
- jonvalurjensson
- jonarni
- jonoskarss
- jorunnfrimannsdottir
- kaffistofuumraedan
- krist
- kristinn-karl
- krissiblo
- kristjan9
- altice
- sleggjudomarinn
- elvira
- mathieu
- morgunbladid
- ninasaem
- pallru
- pallvil
- palmij
- iceland
- ragnar73
- rannsoknarskyrslan
- redlion
- seinars
- fullvalda
- logos
- sigrunzanz
- sigurduringi
- sigurdurkari
- siggisig
- sisi
- siggifrikk
- stebbifr
- stjornuskodun
- stormsker
- saevargudbjornsson
- athena
- susannasvava
- tibsen
- ubk
- vala
- val
- vestarr
- postdoc
- gummih
- asdisran
- thjodarsalin
- mullis
- sumri
- t24
- omarragnarsson
- umbiroy
- thjodarheidur
- thorhallurheimisson
- flinston
- diva73
- thjodarskutan
- lifsrettur
- samstada-thjodar
- fullveldi
Jan. 2025 | ||||||
S | M | Þ | M | F | F | L |
---|---|---|---|---|---|---|
1 | 2 | 3 | 4 | |||
5 | 6 | 7 | 8 | 9 | 10 | 11 |
12 | 13 | 14 | 15 | 16 | 17 | 18 |
19 | 20 | 21 | 22 | 23 | 24 | 25 |
26 | 27 | 28 | 29 | 30 | 31 |
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (31.1.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 19
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 19
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.