Óseðjandi gróðafíkn alþjóðarisafyrirtækja

Rio Tinto Alcan er dæmigert fyrir þau alþjóðafyrirtæki (og önnur) sem stjórnað er af siðblindingjum sem skammta sjálfum sér þvílík ofurlaun að þeim sjálum og ætt þeirra allri tækist ekki að eyða árslaunum þeirra á æviskeiði a.m.k. þriggja ættliða.

Siðblindingjar þessir sjá hins vegar ofsjónum yfir þeim launum sem óbreyttir starfsmenn þeirra fyrirtækja sem þeir stjórna strita fyrir og þurfa yfirleitt að horfa í hvern eyri til að sjá sér og fjölskyldum sínum farborða frá degi til dags.

Alltaf þykjast þetta siðblinda lið vera að "hagræða" í rekstrinum þrátt fyrir óheyrilegan hagnað fyrirtækjanna flest árin, þó inn á milli komi eitt og eitt ár þar sem gróðinn er minni en venjulega vegna einhverra markaðsaðstæðna.  Þær aðstæður hafa hins vegar aldrei náð yfir nema skamman tíma og jafnvel á þeim árum komast fyrirtækin ágætlega af vegna þeirra digru sjóða sem safnað er upp með svívirðilegri græðginni flest ár.

Rio Tinto Alcan er nú í alheimsbaráttu gegn starfsfólki sínu með það að markmiði að brjóta niður samstöðu þess og eins og venjulega til að auka gróða sinn, sem þó er ævintýralegur fyrir. Starfsfólk álversins í Straumsvík þurfa að standa í þessu stríði, eins og aðrir starfsmenn Rio Tinto annarsstaðar í heiminum, og beitir fyrirtækið því lúalagi að neita að gagna frá kjarasamningi nema verkalýðsfélögin samþykki að heimila verksmiðjunni að ráða stóran hóp fólks á smánarlaunum í svokallaðri undirverktöku.  Enginn er svo skyni skroppinn að skilja ekki til hvers siðleysingjarnir setja fram þessa úrslitakosti við kjarasamningagerðina.

Vonandi standa verkalýðsfélögin í lappirnar gegn þessum yfirgangi, en því miður hefur verkalýðshreyfingin ekki staðið sig sem skyldi í varðstöðunni um réttindi félaga sinna fram að þessu.


mbl.is Mótmæltu í Straumsvík
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Því miður hefur þú rétt fyrir þér. Verkalýðsfélögin, eru fyrir löngu búin að vera

smitberuð af þeim sem vilja stjórna launum hins almenna verkafólks.

Það er ekkert verklýðsfélag í dag, sem þorir að standa með sinni stétt, vegna

forystukálfa sem þykjast hafa hag þessa fólks í brjósti, en eru í raun að

berjast fyrir hagnaði þeirra fyrirtækja sem þeir eru viðsemjendur við.

Hvað og hvernig fá þeir umbunað fyrir sína vinnu..??

Margir ráðnir í sérfræðistörf fyrir viðkomandi fyrirtæki, með allskonar

eftir á útskýringum, að þeirra ráðning kom þessu bara ekkert við.

Algjör tilviljun.

Álverið á Reyðarfirði, er besta dæmi um slíkt.

Sigurður K Hjaltested (IP-tala skráð) 8.10.2015 kl. 00:00

2 Smámynd: Erlingur Alfreð Jónsson

Ég held Sigurður, að við höfum nokkur dæmi um stéttarfélög sem hafa sýnt það og sannað á undanförnum árum að þau þora að standa með sinni stétt, hvað svo sem mönnum kann að finnast um þá afstöðu. Vil í þessu sambandi benda á VLFA og Framsýn á Húsavík. ASÍ er hins vegar bara að berjast fyrir upptöku evru og ESB-aðild.

Erlingur Alfreð Jónsson, 8.10.2015 kl. 12:29

3 Smámynd: Axel Jóhann Axelsson

Það er rétt, Erlingur, að einstaka félög (örfá) hafa staðið á bak við félagsmenn sína þegar samningar eru á þeim brotnir.  Flest virðast einungis líta svo á að þeirra hlutverk sé eingöngu að semja um kaup og kjör og svo komi þeim málin nánast ekki við á milli samningatarna.

Hægt er að benda á fjölda dæma um að félög hafa ekkert gert til að aðstoða ungt fólk í baráttu við t.d. skyndibitastaði sem svindla á launagreiðslum til þeirra.

Sjálfur hef ég rætt við eitt stéttarfélag vegna slíks svindls og var þá tjáð að það væri lítið hægt að gera í málinu, enda væri þetta alsiða hjá skyndibitakeðjunum, veitingahúsum og verslunum.  Þar með var því máli lokið af hálfu verkalýðsfélagsins og svindlið grasserar ennþá og enginn gerir neitt, nema í þeim örfáu tilfellum þar sem foreldrar viðkomandi ungmennis fer með málið í fjölmiðla.  Þá þykist félagið vilja allt gera til að leysa málið, en svo hreiðra forkólfar félagsins sig aftur um sig í sófanum og sofna aftur.

Axel Jóhann Axelsson, 8.10.2015 kl. 12:54

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband