21.9.2015 | 12:26
Ótrúlega illa undirbúin tillaga þrátt fyrir langan aðdraganda
Dagur B., borgarstjóri, segir að klúður meirihlutans í borgarstjórn Reykjavíkur hafi skaðað meirihlutann og vonandi náist að vinna traustið aftur með leiðbeiningum og hjálp frá borgarstjóranum í Kaupmannahöfn.
Rétt er það hjá Degi B. að meirihlutinn í borgarstjórn hefur orðið fyrir miklum álitshnekki vegna óvandaðra vinnubragða og almennt lélegrar stjórnunar borgarinnar, en það eru þó smámunir miðað við þann skaða sem ruglið með viðskiptabann á Ísrael hefur haft á land og þjóð.
Bæði hefur kjánagangurinn orðið til að stórskaða viðskiptahagsmuni landsins um allan heim og orðið ýmsum grínistanum góður efniviður til að hæðast að þjóðinni og er þá ekki gerður greinarmunur á lánlausum borgarstjórnarmeirihluta og almenningi sem algerlega hefur þó misboðið þessi dæmalausa framganga Dags B. og félaga.
Nú er reynt að láta líta svo út að tillagan að viðskiptabanninu hefði þurft lengri umræðu og skoðun áður en hún var samþykkt, en hins vegar sagði flutningsmaðurinn, Björk Vilhelmsdóttir, í fréttum RÚV þann 11/09 að hún hefði verið lengi til umfjöllunar í meirihlutanum og um hana væri mikil og góð samstaða með öllum meirihlutaflokkunum. Sjá má þá frétt hérna: http://www.ruv.is/node/941679
Borgarstjórnarmeirihlutinn er með allt niður um sig í þessu máli og væri nær að girða sig í brók og reyna að sinna þeim málum sem hann var kosin til.
Hefur skaðað meirihlutann í borginni | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Bloggar | Breytt s.d. kl. 12:38 | Facebook
« Síðasta færsla | Næsta færsla »
Höfundur
Áhugamaður um lífið og tilveruna.
Athugasemdir og umræður eru öllum opnar á síðunni, en þess vænst að þær séu hófstilltar og án mikilla stóryrða.
Ruddalegar athugasemdir, sem innihalda lítið sem ekkert annað en skítkast og/eða persónulegar svívirðingar um menn og málefni verða fjarlægðar af þessari síðu, jafnóðum og þær uppgötvast.
Eldri færslur
2021
2020
2019
2018
2017
2016
2015
2014
2013
2012
2011
2010
2009
Færsluflokkar
Tenglar
Mínir tenglar
Bloggvinir
- malacai
- andres
- annabjorghjartardottir
- attilla
- skagstrendingur
- baldvinj
- benediktae
- beggo3
- h2o
- bbg
- bjarnimax
- bookiceland
- siggibragi
- brandarar
- deiglan
- gagnrynandi
- doggpals
- ekg
- elfur
- eeelle
- ellamagg
- elismar
- evaice
- ea
- fannarh
- lillo
- vidhorf
- gerdurpalma112
- gunnargunn
- tilveran-i-esb
- gthg
- gun
- gudbjorng
- zumann
- gudjul
- gp
- hreinn23
- brekkukotsannall
- gustaf
- hallarut
- morgunblogg
- hannesgi
- miniar
- maeglika
- heimssyn
- aanana
- hildurhelgas
- himmalingur
- minos
- atvinnulaus
- daliaa
- ingvarvalgeirs
- jakobk
- fun
- jennystefania
- jonsullenberger
- dondi
- jonsnae
- jonvalurjensson
- jonarni
- jonoskarss
- jorunnfrimannsdottir
- kaffistofuumraedan
- krist
- kristinn-karl
- krissiblo
- kristjan9
- altice
- sleggjudomarinn
- elvira
- mathieu
- morgunbladid
- ninasaem
- pallru
- pallvil
- palmij
- iceland
- ragnar73
- rannsoknarskyrslan
- redlion
- seinars
- fullvalda
- logos
- sigrunzanz
- sigurduringi
- sigurdurkari
- siggisig
- sisi
- siggifrikk
- stebbifr
- stjornuskodun
- stormsker
- saevargudbjornsson
- athena
- susannasvava
- tibsen
- ubk
- vala
- val
- vestarr
- postdoc
- gummih
- asdisran
- thjodarsalin
- mullis
- sumri
- t24
- omarragnarsson
- umbiroy
- thjodarheidur
- thorhallurheimisson
- flinston
- diva73
- thjodarskutan
- lifsrettur
- samstada-thjodar
- fullveldi
Jan. 2025 | ||||||
S | M | Þ | M | F | F | L |
---|---|---|---|---|---|---|
1 | 2 | 3 | 4 | |||
5 | 6 | 7 | 8 | 9 | 10 | 11 |
12 | 13 | 14 | 15 | 16 | 17 | 18 |
19 | 20 | 21 | 22 | 23 | 24 | 25 |
26 | 27 | 28 | 29 | 30 | 31 |
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (30.1.): 1
- Sl. sólarhring: 2
- Sl. viku: 21
- Frá upphafi: 1146725
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 21
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Málið vindur stöðugt upp á sig og verður æ undarlegra. Nú birtast fréttir af því að borgarstjórnarmeirihlutinn hafi verið búinn að ræða málið og velta fyrir sér útfærslu á því í HEILT ÁR.
Hvernig hægt er að klúðra málum svona algerlega eftir árs undirbúning er ofar venjulegum skilningi. Um hvernig meirihluti borgarstjórnar starfar og klúðrar málum má lesa í þessari nýju frétt: http://eyjan.pressan.is/frettir/2015/09/21/meirihlutinn-raeddi-snidgongu-i-eitt-ar-thetta-var-ekki-kvedjugjof-til-min/
Axel Jóhann Axelsson, 21.9.2015 kl. 13:21
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.