Var byssugjöfin keypt?

Dularfulla hríðskotabyssumál ríkislögreglunnar verður sífellt einkennilegra í eyrum og augum almennings í landinu, ekki síst eftir fréttatíma sjónvarpsstöðvanna í kvöld.

Stöð2 sagði frá því í sínum fréttatíma að á árinu 2011 hefði Innanríkisráðuneytið falast eftir byssunum að gjöf frá Norðmönnum og endanlega hafi verið gengið frá þeim málum í maí 2013 þó samningur hafi ekki verið formlega undirritaður fyrr en í desember það ár og byssurnar svo afhentar í framhaldinu.  Skilyrði fyrir gjöfinni hefði þó verið að Landhelgisgæslan yrði móttakandi gjafarinnar og greiddi flutningskostnaðinn til Íslands.  Landhelgisgæslan hafi síðan afhent Ríkislögrelunni hluta gjafarinnar, enda hafi norski herinn talið eðlilegra að gefa vopnin til gæslunnar en lögreglunnar.

Í fréttatíma RÚV var hins vegar sagt að byssurnar hefðu verið keyptar fyrir tólf milljónir króna og birt viðtal við fulltrúa norska hersins því til staðfestingar.  Ekkert kom fram í þeim fréttatíma hvort Landhelgisgæslan hefði komið beint eða óbeint að þessum vopnakaupum.

Burtséð frá því hvaða álit fólk hefur á því hvort lögreglan í landinu eigi að hafa aðgang að svona vopnabúri eða ekki er alveg óþolandi leynimakk í kring um þetta mál af hálfu lögreglunnar, gæslunnar og ráðuneytisins.  

Það hlýtur að vera einfalt mál af hálfu ráðuneytisins að upplýsa í eitt skipti fyrir öll hvernig í þessu máli liggur og hvort Norðmenn hafi selt Íslendingum þessar byssur eða gefið þær. 


mbl.is Gæslan keypti hríðskotabyssur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Halldór Egill Guðnason

Í meira lagi klúðurslegt allt saman, svo ekki sé meira sagt.

Halldór Egill Guðnason, 23.10.2014 kl. 20:32

2 Smámynd: Guðmundur Ásgeirsson

Klúðurslegt? Þú meinar glæpsamlegt !

Guðmundur Ásgeirsson, 23.10.2014 kl. 21:28

3 Smámynd: Axel Jóhann Axelsson

Guðmundur, endilega upplýstu um hvaða glæpur var framinn

Axel Jóhann Axelsson, 23.10.2014 kl. 22:34

4 Smámynd: Anna Sigríður Guðmundsdóttir

Axel. Ekkert er ókeypis í þessu viðskiptalífi heimsveldismafíustýrða trúarbragðastríðandi og sundrandi jarðlífi ó-siðmenntunarstjórnunar bankanna/lífeyrissjóðanna. Bretaheimsveldið er komið á bjargbrún tortímingar.

Að einhver skuli raunverulega vera svo barnalegur að trúa því og fullyrða, að skotvopn séu ókeypis? Og það í nettengdu og svokölluðu þróuðu,upplýstu og siðmenntuðu ríki? Það er vissulega áhyggjuefni og rannsóknarefni á siðrofi vesturlanda-siðmenntunarstjórnsýslu! Siðlaus tækniþróun er dauðadómur allra gesta á hótel jörð. Háskólar heimsins bera ábyrgð á vottuðum siðleysis-heilaþvottatorlímingum, og handvöldum svikara-prófessorum og svikara-dósentum mafíunnar undirheimastýrandi og svikulu.

Þegar fólk fer að horfa út fyrir þrönga ramma flokkseigendamafíustjóra, þá er von til að eitthvað þokist í átt að siðmenntuðum og mannlegum samfélögum. Fólk er ekki flokkar! 

M.b.kv.

Anna Sigríður Guðmundsdóttir, 24.10.2014 kl. 13:21

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband