Upplýsing eða ljósaflóð?

Glerlistaverk Ólafs Elíassonar utan á tónlistarhúsinu Hörpu var sýnt í sinni endanlegu og fullsköpuðu mynd í gærkvöldi.

Margir virðast hafa reiknað með einhverri stórkostlegri ljósasýningu og urðu því fyrir vonbrigðum vegna þess að þegar til kom, var lýsingin hófleg en gaf þó húsinu fallegan svip í kvöldrökkrinu.

Það vill oft brenna við að ýmsir hafi annað álit en listamaðurinn sjálfur á því hvernig listaverk eigi að líta út og því skapast oft hatrammar deilur um einstök verk og má t.d. benda á Vatnsberann því til sönnunar, en um þá styttu urðu harðar deilur á sínum tíma og lenti hún í hálfgerðri útlegð áratugum saman vegna deilnanna um hana í upphafi.

Glerhjúpurinn á Hörpu er sköpunarverk Ólafs Elíassonar og alfarið hans að ákveða útlit þess. Um það má svo deila næstu áratugina hvort það hefði átt að vera eins og það er, eða einhvern veginn allt öðruvísi.


mbl.is Glerhjúpur Hörpu tendraður
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ómar Ragnarsson

Ég hef ekkert við glerhjúp Hörpu að athuga og finnst hann bæði fallegur og vel heppnaður.  Það voru hins vegar mistök að kynna hann eins og um eitthverja stórfenglega ljósasýningu yrði að ræða, svo að fólk fengi orbirtu í augun þegar hann ljósin yrði tendruð.

Ómar Ragnarsson, 21.8.2011 kl. 19:05

2 Smámynd: Axel Jóhann Axelsson

Alveg sammála þessu, Ómar. Það var búið að kynda undir væntingar um að þarna yrði um einhverja stórkostlega ljósasýningu að ræða. Það voru mikil mistök hjá stjórnendum Hörpu.

Axel Jóhann Axelsson, 21.8.2011 kl. 19:10

3 Smámynd: Þórir Kjartansson

Sá þetta ekki nema í sjónvarpinu en þar leit þetta eins út og ódýr  blikkandi jólaljósasería frá Kína.   En þessi hefur örugglega ekki verið ódýr.

Þórir Kjartansson, 21.8.2011 kl. 21:35

4 Smámynd: Axel Jóhann Axelsson

"Fegurðin er í auga þess sem sér" var einhvern tíma sagt. Það sannast á Hörpu, eins og svo mörgu öðru, því það sem einum þykir fallegt þykir öðrum alveg forljótt.

Smekkur ræður afstöðu til listar eins og flests annars. Um hann verður aldrei neitt "samkomulag", því yfirelitt bakka menn ekki frá smekk sínum.

Þess vegna má reikna með ágreiningi næstu áratugina um glerhjúpinn á Hörpu, lýsingu hans og allt annað varðandi húsið.

Axel Jóhann Axelsson, 21.8.2011 kl. 21:56

5 Smámynd: Bergljót Gunnarsdóttir

Við skulum nú vona að endingin verði betri en á þessum ódýru frá Kína. Annars er ég fullkomnlega sammála þér Axel, þó að ég sé ein af þeim sem varð fyrir vonbrigðum, en það er líklega vegna þess að Diddú var búin að undirbúa vel og vandlega að allir stæðu á öndinni.

Bergljót Gunnarsdóttir, 21.8.2011 kl. 21:57

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband